Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Tilvistin · Íslenska

Hálf ostsneið

Gouda-ostsneiðar. Ljósmynd: CNEcija12345 / Wikimedia Commons, CC BY-SA 4.0.
Gouda-ostsneiðar. Ljósmynd: CNEcija12345 / Wikimedia Commons, CC BY-SA 4.0.

Í Ísafjarðarbæ bjuggu 3.899 manns um síðastliðin áramót. Til þess að geta haldið úti bæjarlistamanni þarf 350 þúsund krónur og til þess að fá 350 þúsund krónur í kassann þarf hver og einn þessara 3.899 íbúa að leggja fram tæplega níutíu krónur, eða sem nemur einsog um fimmtungi úr oststykki. Það gerir tæplega hálfa ostsneið á mánuði – 0.014 grömm af osti á dag. Þetta eru að vísu 90 krónur á hverju ári – og safnast auðvitað saman þegar saman kemur. Á 40 ára starfsævi nær maður að spandera heilum 3.600 krónum í fjörutíu ólíka auðnuleysingja sem ekkert gera nema mæla göturnar og drekka latté, með nefið upp í loft af virðingarleysi fyrir vinnandi fólki. Fyrir 3.600 krónur má gera ýmislegt. Til dæmis kaupa tvær kippur af bjór. Hjón gætu líka lagt saman í púkk og keypt sér eina nýútkomna jólabók. Fjölskylda gæti keypt sér bæði bjór og bók – og nostrað við góðgætið á sinni 40 ára starfsævi.

En þetta er auðvitað ekki flókið. Bæjarfélag sem á ekki fyrir eigin reisn – á ekki 350 þúsund krónur á ári til að leggja í listamennina sína – er á vonarvöl og væntanlega ekki viðbjargandi. Slíkt bæjarfélag er ekki líklegt til þess að laða til sín mikið af fólki – slíkt bæjarfélag er augljóslega í andarslitrunum. Ég hef ekki komið vestur í tæpt ár og vissi ekki að svona illa væri komið fyrir sveitungum mínum. Maður bíður þess bara að einhver kveði upp úr um að nú sé allt dautt – nú sé kominn tími til að loka búðunum, bíóinu, leikhúsinu, tónlistarskólanum, félagsheimilinu, Edinborgarhúsinu og Slúnkaríki og húkka sér far suður. Þar er þó enn menning.

Nema þetta sé einfaldlega ekki satt. Nema þetta séu ýkjur – gæti það hugsast? Gæti hugsast að menn séu að nýta sér tækifærið – alla þessa umræðu um skuldir og kreppu og ólukkans myntkörfur fullar af föllnum hlutabréfum – til þess að losa sig við „óþarfann“. Til þess að losa sig við auðnuleysingjana, sem mergsjúga þessar níutíu krónur úr skelfingu lostnum, sársoltnum bæjarbúum?

Að hengja listamann fyrir kennara

Í frétt sem birtist á bb.is í gær gat manni virst sem þetta væri ný ákvörðun – en svo er ekki. Þetta var ákveðið á bæjarstjórnarfundi fyrir tæpu ári síðan. Þar voru fjárlög bæjarins til umræðu og Jóna Ben, bæjarfulltrúi Í-listans, kennari og meðlimur í Vinstrihreyfingunni Grænu-framboði, lagði fram tvær tillögur, svohljóðandi:

,,Fræðslunefnd lagði til á fundi sínum 15. desember sl., að ráðstefnu- og námskeiðsgjöld í grunnskólum sveitarfélagsins yrðu hækkuð sem nemur kr. 275.000.-.  Sú tillaga er ekki inni í breytingatillögum meirihlutans.  Ég undirrituð legg því til að þessi liður verði hækkaður eins og fræðslunefnd hefur lagt til.“


,,Þar sem gæta þarf ýtrasta sparnaðar í rekstri Ísafjarðarbæjar legg ég til að fjárhagsliðurinn 05-54- bæjarlistamaður, sem er kr. 350.000.- verði felldur út að þessu sinni.“

Altso – samtímis og Jóna leggur fram tillögu um að styrkur til kennara verði hækkaður leggur hún til að styrkur til listamanna verði lagður niður. Einhver hefði sjálfsagt talað um hagsmunaárekstur. En hvernig sem á því stendur finnst Jónu greinilega að á meðan gæta þurfi ýtrasta sparnaðar í útgjöldum til listamanna, sé óhætt að eyða meiru í ferðalög kennara. Peningarnir eru sem sagt til – að hennar mati – það þarf bara að eyða þeim í annað. Ætli það geti hugsast að hún hafi beitt bæjarlistamanninum fyrir sig í þeirri von að þá væri auðveldara að fá hækkaðan kennarastyrkinn – að hún hafi þess vegna hent bæjarlistamanninum? Að því sögðu skal bætt við að á meðan tillaga Jónu um bæjarlistamann var samþykkt var tillaga um styrkhækkun felld. Svo ef eitthvað slíkt vakti fyrir henni, þá hafðist það ekki.

Að spara fyrir listamanni

Nú skal ég fyrstur til að viðurkenna að ég er ekki með launamál Ísafjarðarbæjar á hreinu – og biðst fyrirfram velvirðingar á öllum mistökum í útreikningi, þótt ég geri nú samt ekki ráð fyrir að þetta valdi miklum skekkjum.

Samkvæmt tæplega 3 ára gömlum upplýsingum fengu bæjarstjórnarmenn 21.244 krónur fyrir hvern fund – forseti bæjarstjórnar og bæjarstjóri tvöfalda þá upphæð. Í bæjarstjórn sitja 9 manns. Kostnaður við fundinn þar sem ákveðið var að leggja niður listamannalaun – fyrir utan sjálfan skrifstofukostnað og fastar launagreiðslur bæjarfulltrúa – var sem sagt 233.684 krónur. Sem er auðvitað ekki mikill ostur – á mann – en slagar samt hátt upp í kostnað við bæjarlistamann og ef allt er talið (fastar greiðslur, pappír, sími, blek og skúringar) nær þetta áreiðanlega 350 þúsund krónum. Nema auðvitað að bæjarstjórn fundar tvisvar í mánuði en bæjarlistamaður fær greitt einu sinni á ári – og hver og einn fær þau bara einu sinni (á meðan stjórnmálamenn hanga oft inni í heilu áratugina – sjúga sig hreinlega fasta – og haga sér undantekningalítið einsog fábjánar allan tímann).

Það hefði sem sagt mátt sleppa fundinum – og borga bæjarlistamanninn með því sem sparaðist.

Auðnuleysingjar, elítistar og óskiljanleg gjörningalist

Ég nenni varla að réttlæta styrki til lista – ég verð hreinlega þunglyndur af tilhugsuninni um að listina þurfi stöðugt að réttlæta á meðan sendiráðin, bjúrókratarnir og hnallþórurnar standa óáreitt, tútna út og blómstra ár eftir ár alveg sama hver staðan er í buddunni. Mig svimar og mig langar að garga eitthvað hryllilega ókurteist að ókunnugu fólki úti á götu – fólki sem ég ímynda mér að haldi að listamenn þjóðarinnar séu að sjúga úr henni lífsblóðið, fyrir það eitt að fá stöku sinnum smáaura í vasann (og skít og skammir í ofanálag) – ég þekki marga listamenn og þeir lifa allir í bannsettu andskotans hokri, hanga á horriminni rétt hérnamegin við gjaldþrot. Ég sé rautt og ég verð fjúkandi reiður – einsog nú eigi maður enn eina ferðina að sanna hið augljósa. Og þá langar mig að tala einsog Þráinn Bertelsson gerði í útvarpinu fyrir einhverjum misserum – tala um menningarsnauðar þjóðir sem dýrka heimskuna og útrýmingu mannsandans. En ég þori það ekki. Því þrátt fyrir gjammið í stjórnmálamönnum, og fáeinum háværum blábjánum, trúi ég því ekki að fólk sé mótfallið styrkjum til listamanna – og fari ég að garga að fólki að það sé fávitar, er kannski líklegra að það verði mótfallið slíkum styrkjum en ella.

Staðreyndin er þessi: það er auðvelt að gera óvini úr listamönnum. Ímynd þeirra er ekki góð. Talað er um listamenn sem einhvern lattéþambandi lýð sem þykist betri en allir aðrir og geri aldrei neitt. Því af einhverjum orsökum fer það framhjá okkur þegar við njótum góðs af listinni – við áttum okkur ekki á því að Elfar Logi sé lattéþambandi auðnuleysingi, eða Billa konan hans, skiljum ekki að það eru Villi Valli og Harpa Jóns sem við úthúðum þegar við tölum um afætur, að það eru Jón Sigurpáls og Pétur Hjálmars sem aldrei gera neitt fyrir neinn og Reynir Torfa sem gengur um og lætur rigna upp í nefið á sér af stolti, Sigga Ragnars og Jónas Tómasson sem hafa aldrei verið samfélagi sínu til sóma og Baldur Geirmunds sem fremur óskiljanlega gjörninga sem enginn heilbrigður maður myndi kalla list.

Þetta er fólkið sem við höfum heiðrað síðustu ár. Það er fólk af þessu tagi sem ákveðið hefur verið að styrkja ekki – og þið megið alveg treysta mér um það, að langflestu af þessu fólki, ef ekki hreinlega öllum, væri lífsins ómögulegt að leggja stund á list sína án aðstoðar ríkis og bæjar. Þið getið síðan gert það upp við ykkur hvort ykkur þætti lífið í Ísafjarðarbæ merkilegt án framlags þeirra.

En í ár heiðrum við ekki neinn. Því við eigum ekki tæpar tvær krónur aflögu á viku.

Greinarhöfundur vill taka það fram að hann gæti ekki sjálfur, það best hann veit, hlotið titil bæjarlistamanns, enda ekki lengur með lögheimili í bænum – þótt það verði vonandi einhvern tíma aftur.

← Allt safnið