„Hvers manns líf er ævintýri skrifað af fingrum Guðs.“
HC Andersen
Ég hef verið tæpa viku í Danmörku og ég er hættur að muna eftir dögunum fyrir páska. Eða páska? Það komust satt að segja mjög litlir páskar fyrir á Ísafirði fyrir Rokkhátíð Alþýðunnar, það var rétt maður næði að skjótast til foreldrahúsa og fá sér væna flís af páskalambi milli þess sem maður þaut frá einum fögnuði til annars. Í um tvær vikur hefur lífið verið sem ævintýri skrifað af fingrum Guðs, frá subbulegu kjallarapartíi upp í rússibana á Bakken, ofaní Karlakórinn Ernir, konur sem skenkja bjór með sínu allra heilagasta, börn með alvæpni, skáldmælta óð-Fúsa, ósvífnustu blaðamenn Íslands, gamlar uppdiktaðar sögupersónur sem skyndilega reynast til í heiminum, endalaust sólskin og túrettískar samræður sem ég hugsa að hafi snert á meiri sannleikum en flestar, blaðskellandi ættingja ókunnugs manns með kókaín-taumana út um nefið og taugaveiklað málæðið skrúfað í botn, einhvern að pikka fæting og allt í bland við ævintýri HC Andersens og morðið á Taxa-Torben.
Í Danmörku var drepinn maður nefndur Taxa-Torben, rétt áður en ég kom, og hann svo bútaður niður í sex hluta. Hann var víst hreinræktuð skepna og átti þetta skilið, má bara þakka fyrir að ekki fór verr. Fyrstir fundust fæturnir á honum. Fáeinum dögum síðar tók sig einhver til og málaði hvít fótspor um allan miðbæinn. Þau eru tvö og tvö, næstum hlið við hlið, á nokkurra metra fresti. Við skoðuðum þau gaumgæfilega, reyndum að herma eftir gormslegu göngulaginu og stökkva frá einu pari til annars og eltum þau um bæinn með þá hálfvelgjulegu tilætlun í maganum að við enda fótsporanna finndum við kannski augnlok eða forhúð. Í versta falli kartnögl.
Sporin reyndust minna spennandi en okkur hafði órað. Minnst mögulega spennandi. Þetta voru fótspor HC Andersen, og leiddu okkur að litlum miða sem á stóð að þarna, nákvæmlega þarna og hvergi annars staðar, hefði HC Andersen látið raka sig og klippa. Klippa hljómaði örlítið spennandi, en fjaraði fljótt í burtu. Frisör er eitt af lélegustu orðum á dönsku. Þetta blessaða hrognamál er nú annars ekki beysið, á lítið í sænskuna eða finnskuna, þó það sé samkeppnisfært við norsku. Íslenskan er svo aftur ekki bara upprunamálið, þríein þrenning sönn og ein, heldur líka hið eina skáldlega í gervallri veröldinni:
„Fátt heillar meira en farmiðinn burt
ég fer um síðir en veit ekki hvurt
það er skárra en flest að skjótast með skutl’ útí geim
en hvað sem því líður kem ég kjökrandi aftur heim.“
Svo orti Skúli Þórðarson í laginu Aftur heim. Þangað er ég einmitt að fara. Heim. Ég hef ekki verið þar lengi, þó einungis sé liðin rétt um vika síðan ég stakk af úr firðinum góða. Það er svo undarleg þessi tilfinning að komast að heiman, og þá ekki bara til Reykjavíkur heldur til útlanda. Tilfinning ábyrgðar- og tímaleysis nær algerlega yfirhöndinni á lífi manns, maður stendur í öðrum heimi og þarf að hafa sig allan við til að ímynda sér að maður eigi sér jú líf annars staðar – einhverstaðar gegni maður jafnvel mörgum vinnum – og það reynist nær ómögulegt að hugsa sér að lífið sem maður skyldi eftir skuli hafa haldið áfram að líða, að það sé ekki póstkort með fastri mynd af föstu fólki sem getur ekki upplifað hluti án manns. Ef tré fellur í skógi þegar ég er annars staðar, heyrist þá hljóð?
Og alltaf kemur maður kjökrandi aftur heim í brauðstritið með visa-reikning á bakinu og dálitla timburmenn í kollinum. Skutlan sem skaut manni er biluð, ef ekki bara hreinlega sprungin í tætlur. Engu að síður skiptir litlu hvar maður er staddur, hvort maður er að koma eða fara, að heiman eða heima, alltaf er það farmiðinn burt sem kveikir á sterkustu hvötum tilfinningalífsins, möguleikinn á breytingum, kollvörpunum á umhverfi sem stundum virðist staðna jafn óðum og það líður hjá – þetta morbid augnablik þegar lífið hættir að vera möguleiki og verður minning. Og eftir þvi sem magnaðari minningar safnast upp, eftir því sem lífið verður áhugaverðara þeim mun meiri verður hræðslan við að nú hafi bestu stundir lífsins liðið hjá, og allir straumar hljóti að liggja niður á við héðan. Öll vötn til Dýrafjarðar.
Ætli þetta sé ekki óttinn við að eldast, óttinn við að manni þverri þróttur til allra þeirra verka sem maður vildi helst vinna? Jafnvel bara óttinn við að fyrr eða síðar þurfi maður að hætta að eyða peningum og fara að borga skuldabréf, yfirdrætti, gamlar skattaskuldir, símareikninga, leiguna og það alltsaman heila húmbúkkið. Að maður þurfi að negla sig við færibandið og þjarka til hinsta dags. Getur það staðist að skemmtiefnið endist að eilífu? Hlýtur ekki spólan loks að klárast, ljósin verða kveikt og allir reknir heim? Verður það kannski meiri blessun en maður getur ímyndað sér mitt í allri þessari lífshysteríu kvíðasjúklinga og sadista? Eða er það kannski reiðin sem skiptist mestu, hraðinn og keyrslan og lífið sem virðist aldrei tifa hraðar en rétt á meðan maður stendur í stríðinu miðju, með annan fótinn í rússibananum á Bakken og hinn í fótspori HC Andersens og Taxa-Torben. Þegar augun opnast, nasavængirnir hefja mann til flugs og taugarnar trekkjast til hins ítrasta.
