Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Málið er náttúrulega og málið er náttúrulega og málið er náttúrulega

Gjá eftir Hauk Má Helgason.
Gjá eftir Hauk Má Helgason.

Haukur Már Helgason er ekki bara uppáhalds ritgerðasmiðurinn minn, hann er líka besti vinur minn. Í lífi mínu hafa komið stundir þar sem ég kunni ekki almennilega að greina okkur í sundur; stundir þar sem ég vissi hreinlega ekki hvaða hugsanir voru mínar eigin og hverjar voru hans. Ég á honum auk þess margan kvöldverðinn að gjalda, ótal vínflöskur og bjóra, gistinætur, bækur og annan áþreifanlegri varning en hugsanir mínar (eða hans?). Ég heftaði fyrstu bókina hans og hann heftaði fyrstu bókina mína. Þetta einfaldar mér ekki það verk að skrifa formálann að þessari bók en gerir mér ómögulegt að neita boðinu. En þetta er auðvitað enginn formáli. Þetta er meira svona fordrykkur.

* * *

Þegar best lætur ræktar Haukur Már Helgason analýtíska skóga úr póetískum trjám – innri gerð hans er ljóðræn en mótorinn sundurgreinandi og sálkannandi (svo báðar merkingar útlenska orðsins „analytical“ fái að njóta sín). Verkfærin eru ljóðræn en vöðvarnir analýtískir … þið afsakið umorðanir/endurtekningar, ég er að reyna að útskýra eitthvað sem ég uppgötvaði sjálfur fyrir mjög skömmu síðan:

Í ritgerðum Hauks Más er eitthvert samspil óhlutbundins hugsunarháttar og kerfislægrar, vitrænnar könnunar á heiminum sem ég þekki ekki í sama magni, sömu tóntegund, hjá neinum öðrum.

– Þetta er ekki tilvitnun heldur fullyrðing.

(EÖN, sömu síðu, Nýhil, 2010)

Þetta samspil er einstakt fyrir Hauk Má Helgason, manninn sem ég get ekki mært nóg fyrir það sem hann hefur kennt mér frá því að við kynntumst.1

* * *

Mislæg gatnamót eru fullkomnun þeirrar vegagerðar sem sjálf skapar fjarlægðirnar sem hún yfirstígur. Þannig hefur verið sýnt fram á að ef göngu- og hjólabrautir kæmu í stað vega innan höfuðborgarsvæðisins styttust fjarlægðir milli húsa svo að göngufært yrði á milli enda borgarinnar á tíu mínútum. Sem er umtalsvert styttri tími en tekur að ganga yfir meðalstórt bílastæði.

– HMH síðar í sömu bók (Nýhil, 2010)

Einn stærsti kostur þessara ritgerða er einmitt þessi: hér eru engir bílvegir. Hér er ekki lesandinn í einum bíl og höfundur í öðrum. Maður mætir ekki Hauki vöfnum í tonnafjöld af málmi og gleri. Vefur sér ekki utan um hann á mislægum gatnamótum. Maður mætir honum ýmist þar sem hann stendur á götuhorni og virðir eitthvað fyrir sér, röltir upp og niður eftir kunnuglegum og ókunnuglegum slóðum, dillar sér undir súð á meðan rigningin gengur yfir eða súrrar framhjá á hjóli svo mann svimar (á meðan maður tekur andköf fyrir hönd okkar allra – sáuði þessa hugsun!). En maður sér ævinlega í augun á honum hindrunarlaust og heyrir hann tala – stundum við sjálfan sig og stundum við okkur en aldrei þannig að maður vilji ekki heyra.

Hér ertu sem sagt frjáls undan mislægum gatnamótum.

* * *

Þetta snýst ekki um að hafa vald á ritgerðarforminu; hafa hugsun á valdi sínu, einsog manni er tamt að segja á íslensku. Þetta snýst um að hafa tilfinningu fyrir hugsun sinni. Að hugsa í senn með hjartanu og höfðinu. Og jafnvel klofinu, þegar við á.

* * *

Réttlæti. Það er óþægilegt á popúlískum tímum að hæla einhverjum með þeim orðum að hann búi yfir ódrepandi réttlætiskennd. Þegar annar hver lýðskrumari ber sér á brjóst, þaninn af stolti og sjálfsbirgingshætti, fyrir sína ódrepandi réttlætiskennd, verður hugtakið sjálft óþægilegt, jafnvel óþolandi.

En hún – raunveruleg réttlætiskennd, sem raunar er aldrei ódrepandi heldur þvert á móti viðkvæm einsog postulínsdúkka – er frumskilyrði allrar heiðarlegrar hugsunar. Og hún þrífst ekki, dafnar ekki og blómstrar ekki – nema í formi móðukenndrar reiði – án þess að henni fylgi heiðarleg auðmýkt.

* * *

Auðmýkt er ekki miklu skárra hugtak en réttlætiskennd. Henni er of oft ruglað saman við kurteisi – þá list að vera í húsum hæfur, vera til friðs í kokteilboðum. Að reka ekki flein í merkingarvefnaðinn í kringum sig. Þá list að láta aðra kunna vel við sig. Að vera meinlaus.

Ég á við auðmýkt sem getur horfst í augu heiminn og rekið upp ramakvein þar sem það á við. Auðmýkt kýníkera og zen-munka – auðmýkt sem kann bæði að pissa á sig og fleygja skóm í hausinn á fólki – en umfram allt ekki borgaralega kurteisi. Ekki hvísl og kurteisi í heldri manna húsum. Auðmýkt sem takmarkast ekki við herbergið sem maður stendur í heldur teygir anga sína út um allt, auðmýkt sem reynir að faðma heiminn – fólkið í heiminum, hugsunina í heiminum – en gefur sig ekki, selur sig ekki fyrir slikk til að rugga ekki bátum.

* * *

Ég á við auðmýkt þess sem setur upp hanakamb á Alþingi þegar hann fær ekki að ganga bindislaus. Auðmýkt þess sem skeinir sér á kjörseðli sem hefur glatað allri merkingu. Auðmýkt þess sem dregur bónusfána að húni á Alþingi. Auðmýkt þess sem hirðir nýtan mat úr ruslagámum, hirðir húsgögn á haugunum. Auðmýkt þess sem kreppir hnefann þegar það á við, þótt hann kunni ekki að slást. Auðmýkt þess sem hnýtir sig ekki fastan við skoðanir sínar einsog þær væru siglutré og öll hugsun stormur, allar samræður vindhviður og allar afstæður haglél. Ég á við réttlætiskennd þess sem kann að gefa sér tíma til að skilja.

* * *

Þá er ekki síður mikilvægt að geta notið hugsunar, sinnar eigin og annarra. Að rækta sameign okkar – samræðuna með stóru bókstöfunum – einsog maður dundar sér við að búa til góðan mat (með eða án uppskriftar). Lykta og smakka, krydda og hræra, spjalla og sötra og bera síðan á borð. Frysta, hita upp og bera aftur á borð. (Munum auðmýkt þess sem kann að njóta afgangana, þess sem kastar ekki góðum mat).

Sá sem nýtur þess ekki að hugsa með öðrum framleiðir bara ónotalegar hugsanir sjálfur.

* * *

Haukur Már Helgason er ekki bara uppáhalds ritgerðasmiðurinn minn, hann er líka besti vinur minn. Fyrir tíu árum síðan heftaði ég fyrstu bókina hans. Ég hélt áfram að hefta fyrstu bækurnar hans þar til þeim fór að fjölga. Og hann heftaði fyrstu bækurnar mínar. Við stóðum til skiptis á ölkassa við Laugaveg og lásum upp á meðan hinn seldi. Eyddum klinkinu í kvöldmat og sígarettur. Þess vegna kann ég ekki að nefna hann – svona, hér – öðruvísi en til að þakka honum fyrir. Og því er þessi inngangur meira einsog fordrykkur.

Skál.

Eiríkur Örn Norðdahl

1 Ég er í alvöru að reyna að segja sannleikann án þess að hann hljómi einsog ástarbréf eða minningargrein – en hér (og víðar en við fólkið í heiminum nennum alla jafnan) á örlætið einfaldlega við – örlæti er a.m.k. jafn mikilvægt og hörð gagnrýni og hvorutveggja tilheyrir sama veruleika: það er nauðsynlegt að kunna að tala upphátt – og manni sem talar upphátt (t.d. HMH) svarar maður einfaldlega upphátt. Þetta er meðal þess sem ég hef lært af HMH. Ég er enn að reyna að temja mér margt annað af því sem er best í hugsun hans – t.d. yfirvegun. Ég er kominn sirka hálfa leið og hef ekki gefist upp enn.

← Allt safnið