Eðlilegra að naga svartan kveikinn
– um Brúður eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur
Stundum gerist það við lestur (góðra) (ljóða) bóka (og Sigurbjörg Þrastardóttir hefur aldrei gert betur) að hugsun manns rennur saman við hugsun bókarinnar svo erfitt verður að greina hvar manni sjálfum lýkur og bókin byrjar og hvar verður til ný hugsun, vera sem ræður sér sjálf og hefur sínar eigin meiningar um lífið og tilveruna. Þessi texti er tilgáta um lestur. Ég ætla ekki beinlínis bókinni (eða höfundinum) allar þessar hugsanir en ég ætla ekki sjálfum mér þær heldur – ég er enda ekki viss um að ég stæði með þeim (öllum) ef á mig væri þrýst (mikið). Þessar hugsanir eru hálfsjálfstætt, vaggandi og uggandi afkvæmi lesturs – að hálfu draumur, hálfu vaka. Ég er ekki beinlínis að túlka, meira svona að raula með, slá taktinn á eldhúsborðið og dilla mér við sönginn í skáldinu.
þau standa undir tyrfðri röndinni
sem hafin hefur verið upp af þessu tilefni
og
þeim vaxa hrútshorn og þau leggja
á ráðin
um kolvillt kynlíf, þó ekki með hinu
þau leggja
saman skurðina og ganga í fóstbræðralag
Stórum hluta þeirra trúlofanna sem leiða ekki til hjónabands er að sögn slitið eftir að búið er að bóka sal og senda út boðskort. Mörgum er slitið dögum og jafnvel klukkustundum fyrir brúðkaupið – önnur fara í gegnum augnabliksrof: tilætlunarsamar störur, knús, kossa, káf og/eða samfarir með ókunnugum, hórum, hórkörlum, vinum, kunningjum, fyrrverandi ástvinum – ekki bara í rómantískum gamanmyndum eða á netinu, líka í raunveruleikanum (!)
Verðandi brúðhjónin sitja í biðsalnum og velta fyrir sér hvað leynist handan dyranna og þeir sem á annað borð eru veikir fyrir svartsýni (og við erum víst ekki fá) hljóta að óttast – hljóta að sleppa ímyndunaraflinu lausu í nokkur augnablik og taka andköf. Og fleiri en þú heldur fríka út.
fólk
er falleg kjötstykki
sem við
skiptumst á
að missa
Brúður eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur er ástarljóðabók á röngunni; en andstæða ástarinnar er (í þessu tilfelli) ekki hatrið heldur einmanaleikinn, óttinn, vonleysið og gegndarlaus frelsisþráin sem fyllir mannskepnuna þar sem hún stendur á barmi þess hyldýpis sem er ástin og allar hennar skuldbindingar. Frammi fyrir hinu fullkomna loforði (sem reyndar er gengisfellt ár frá ári) sækir leikur, draumur, gleði, hræðsla og sorg á brúðirnar/brúðurnar, uppádubbaðar fyrir ritúalið sem eitt sinn boðaði endanleika en boðar nú kransakökur og dansa, heimili, hlýju og ríðingar (á meðan maður nennir því meira en maður nennir að rifta sáttmálanum) – og kannski barneignir. Allt á að vera fullkomið. Eins langt og það nær. Alls ekki lengra en það nær.
fylgjan
vart gengin fram af móðurinni
þegar hún er staðin upp og
gengin inn kirkjugólfið öðru sinni
í bleikroðnum kjól
og þegar
búið
að skipta út helft klappliðsins
Í Brúðum fara fiskarnir aldrei um án reiðhjóls. Perlum misskyldra mynda er rennt upp á sömu festi, svo úr verða stökk sem minna á kellingafleytingar: á Suðureyri standa ananastré, úti á svölum grilla karlar silung með krullujárnum – og stíllinn vegur salt á milli hversdagslegra sniðugheita fyndnu kynslóðarinnar, fágaðra nýgjörvinga módernista, flippaðra nykrana súrrealista; ljóðin eru í senn mörg brot og einn langur bálkur; sum brotin eru sjálfstæð, jafnvel skrítlur (með fullri virðingu), á meðan önnur eru einsog millispil eða hlutar úr lengri og höfugri heild.
hún sveigir fingurna
hringlausa
tveir grannir handleggir stíga upp af skrokknum líkt
og hún hafi þrýst þeim þéttingsfast út í dyrakarm
Brúður fjallar ekki um hjónabandið eða giftinguna, ekki um lífið „áður“ eða „eftir“, heldur lífið „á meðan“ – í því augnabliki sem allt breytist, þegar froskurinn verður að prinsi, prinsessan að drottningu, Gregor Samsa að skordýri, nótt að degi, fóstur að barni, fröken að frú. Einsog ýtt hafi verið á pásu í miðri fæðingu. Nú er ferðinni lokið en brúðurin/brúðan situr enn í lestinni, tínir sama föggur sínar, bíður þess að verða sótt – einsog stillt lítil stúlka. Hún er ekki lengur þar sem hún var, hún er ekki komin annað, hún er ekki einu sinni lengur á leiðinni neitt.
enginn giftir sig
að næturlagi
því
einungis á daginn lykta karamellublómin
Brúður er líka fantasía, ævintýri með nýjum táknum en ekki síður æsilegum, ekki síður karlmannlegum/kvenmannlegum – („sérdeilis heterónormatíft“, segir minn innri, aðfinnslusami, illa lyktandi og tötrum klæddi hassreykingaintellektúal, og er meðal annars ánægður með að hafa komið orðinu heterónormatíft að (það þýðir óhommalegt), og jújú, það er líka alveg rétt hjá honum) – en brúðurin/brúðan er yfirleitt makalaus. Hún ætlar að gifta sig „innan / um ísbirnina / berfætt í gulu / krapinu“ en þótt viðstödd séu þessi ógurlegu karlmennskutákn, ísbirnirnir, er enginn brúðgumi – brúðurin/brúðan giftir sig loftinu, lofar að lifa hamingjusöm um aldur og ævi, þjóna, elska og virða. Bara engan sérstakan.
Þá sjaldan hann er til staðar, er hún það yfirleitt ekki.
og
brúðguminn, þar sem hann
stendur á svölunum og blindast af endurkastinu
af tannglerungi gestanna, skiptir
aldrei
um umræðuefni, hvíslar:
hún er alltaf svo
hrikalega nálægt án
þess að hún sé
hérna
Þau eigast ekki öðruvísi en „utan vegar“ – ríða í skóginum og „honum / finnst / það mjög … miðað við aðstæður“ enda er gredda í óvígðu sambandi yfirlýsing um sameiginlega þrá, en gredda innan skuldbindingar sem felur í sér viðvarandi samfaranánd er grunsamleg, hún gefur því sem næst til kynna að mann langi að ríða einhverjum öðrum. Erótíkin magnast fyrir sakir rofsins (og stökksins) milli þess sem maður vill og þess sem maður fær: það er ekki eins að stökkva yfir brúuð fljót og villtar flúðir og við vildum öll óska þess að við værum ung. Gredda í þessu hléi, eftir „áður“ og fyrir „eftir“, þessum biðsal sem Brúður gerist í, er síðan einsog kveðjukoss – og maður kyssir engan bless nema viðurkenna að tilhugalífinu sé lokið. Þess vegna er það líka „mjög …“ – það má ekki nefna það, því allt sem er nefnt verður sjálfkrafa til.
óli krossbrá kemur og hellir blýi í
augun á mér hann er flinkur og stundvís
hann á litla regnhlíf og starir á mig
nakta – ég held það sé varasamt að
játast honum en mig langar
að
lifa hættulega
Þar stendur brúðurin nakin, skelkuð, pínd og varanlega blinduð af draumaprinsinum; telur honum helst til kosta að vera „flinkur“, „stundvís“, með smokk í veskinu („litla regnhlíf“); altso: praktískur, hentugur, fær um að vekja fullnægingar án þess að ríða á hana sigg eða geta henni börn – og hún upplifir fórn sína á frelsinu, þar sem hún játast honum, sem hættulega einsog kjallarabörn Fritzla heimsins upplifa drottnara sína í senn sem verndara og kvalara, lifa í senn hættulausu lífi í skjóli fyrir harminum uppi á yfirborðinu og spennandi lífi sem gengur út á að halda drottnaranum góðum, tipla á tánum.
Tilgáta: Natalíur elska líka og við erum kannski ekki síður blind, ekki síður fórnarlömb þess veruleika sem okkur er leyft að sjá og upplifa, við elskum kannski ekki síður þá sem takmarka okkur, elskum kannski ekki síður sjálf takmörkin og söknum þess tíma er veröldin var einfaldari og við máttum ekki jafn mikið. Ef manni leyfist að snúa út úr Donald Rumsfeld í virðulegum tímaritum, þá getum við ekki vitað hvað við vitum ekki – af þessum sannleik stafar öll spenna, öll hamingja. En einsog þegar maður kastar barni í loft upp og grípur það aftur – og barnið tryllist af hamingju – er þetta óöryggi grundvöllur gleðinnar, án þess gætum við ekki hlegið. Sem þýðir ekki að við viljum ekki láta grípa okkur aftur.
mér finnst ekki nauðsynlegt
að kveikja
á kertum á dimmum kvöldum
mér finnst eðlilegra að naga svartan kveikinn, ástin
„þau lifðu hamingjusöm / til æviloka skrifar hildur hún er sjö ára“ í ljóðinu stíll einsog til þess að undirstrika að maður þarf að vera sjö ára til þess að trúa á hamingjuna. Svartnættið verður ekki skýrara en upplýst af sakleysinu – svartholið gleypir ljósgeislana – við vitum að hér á að vera bjart, en það er það ekki. Allur þessi leikur, þessi gleði, er til þess gerður að undirstrika efann og minna okkur á að allt er aldrei bara einsog það sýnist, allt er þvert á móti relatíft og svo margbrotið í tíma og rúmi að við gætum ekki skilið það þótt við gætum numið það, séð það allt í einu og lært það utanbókar.
Hjónabandið er óyfirstíganleg þversögn í heimi þar sem ekki er flóknara að ljúka því en sem nemur heimsókn á hagstofuna, þar sem helgi þess (í veraldlegum, félagslegum skilningi) er lítil sem engin. Ég á ekki við að það sé ekki fullkomlega eðlileg framþróun í mannúðlegum heimi að fólk geti skilið án erfiðleika – ég á við að það sé furðulegt (kraftaverk) að nokkur gifti sig lengur, miðað við aðstæður. Niðurstaðan í Brúðum er enda þversagnakennd – því eftir allt húllumhæið, kransakökurnar, fylleríið, rímar brúðguminn („upp úr bókinni“), þar sem brúður hans kemur þrammandi inn í stofu, inn í hversdagsleikann:
– Þrúður mín, farðu úr þessum kjól. Þú ert eins og trúður.
