Dálítið síðbúin orð í belg, og sjálfsagt biðu, um nokkuð sem, þegar allt kemur til alls, skiptir sjálfsagt voða litlu, hent saman á þeytispani á milli mikilvægari verkefna
Það er nýliðin bókmenntahátíð í Reykjavík, og hillir undir ægilegt jólabókaflóð. Úti er kolniðamyrkur, enda nótt. Síðastliðnar vikur og mánuði hafa höfundar fallið hvor um annan þveran í einlægri bölsýni.
Steinar Bragi sagðist hættur að skrifa í vor, þetta væri ömurlegt kjaftæði, að hann vildi „ekki daga uppi, vel metin höfundur, sem hefur lifað ömurlegu lífi nema á pappírnum“ – í kjölfarið, rétt þegar orð Steinars voru gleymd og hann sjálfur kominn á harðaspan með buxurnar á hælunum eftir einni eða annarri músunni, upp og niður Míluna í Edinborg, kom Eiríkur nafni minn Guðmundsson ríðandi inn í Lesbók með svipu og spjót og spurði hvers vegna íslenskir rithöfundar efuðust ekki um bókmenntir á Íslandi – í Lesbók sem var uppfull af íslenskum rithöfundum sem efuðust um bókmenntir á Íslandi, þar sem rithöfundurinn Hermann Stefánsson efaðist um það sem hann kallaði „bókmenntakerfið“ – gerði reyndar gott betur en að efast, sagði það sjúkt og óheilbrigt (og vitnaði því til stuðnings í „orð á stangli“ sem hann hefði „hlerað í veislum“) – á meðan Stefán Máni – annar rithöfundur – sagði skáldsöguna dauða (gisp! og geisp!) með þeim rökum að Victoria Beckham læsi ekki bækur, og þyrfti þess líklega alls ekki neitt. Og Þröstur Helgason, þriðji rithöfundurinn, sagði veruleikann og skáldskapinn ekki skarast nóg.
***
Hermann var þeirrar skoðunar að landlægt hatur á fagurbókmenntum stæði þeim fyrir þrifum – samkvæmt þeirri skýringu les Victoria Beckham ekki bækur vegna þess að henni hefur verið innrætt að þær séu fyrir aðra, eða hún tekur þátt í samfélagslegu samsæri um að bækur séu fyrir aðra: menntaða, eitthvað óljóst literatí sem býr á stofnunum, hefur ábyggilega aldrei migið í sjóinn eða unnið á leikskólum eða grafið skurð. Aldrei gert neitt utan við bók (alltaf að gera í bókina, ha ha ha). Út af fyrir sig er alveg hægt að sýna þessari hugmynd Hermanns skilning, en ég var engu nær eftir lestur greinarinnar hvort hann væri að segja eitthvað sem a) væri fótur fyrir eða b) skipti raunverulegu máli. Ég er ekki viss um að það skipti neinu máli hvort að fólk hatar fagurbókmenntir og elski glæpasögur, eða elski fagurbókmenntir en hati glæpasögur, elski bæði, hati bæði. Ég er ekki viss um að neitt af þessu breyti neinu um fagurbókmenntir eða glæpasögur. Það má vel vera að svo sé, ég segi það ekki. En það þyrfti að hugsast svolítið betur, skoðast betur áður en við förum að halda því fram sem gefnu (sem er alltaf hættan þegar hlutir eru bornir á borð nokkrum sinnum, eins og þeir séu sjálfsagðar niðurstöður). Ég er sem sagt ekki viss um að fagurbókmenntir og glæpasögur þurfi að eiga meiri samleið en bygg og hjólbarðar. Með fullri virðingu fyrir bæði byggi og hjólbörðum. En það má líka vel vera, mér finnast þessar pælingar bara ekki vel ígrundaðar.
* * *
„Það er líklega fátt sem þarfnast meiri umræðu í bókmenntum og listum nú um stundir en einmitt sambandið við umheiminn, pólitíkina og atburði á alþjóðlegum vettvangi. Það er satt að segja stundum auðvelt að fá það á tilfinninguna að heimur bókmennta og lista skarist afskaplega lítið við þann heim sem við köllum veruleika eða samfélag,“ segir Þröstur Helgason í Neðanmáli Lesbókarinnar. Ástralska ljóðskáldið John Tranter, og fleiri reyndar, hafa talað um nauðsyn þess að stunda bókmenntir sem pólitík frekar en að reyna að troða pólitískum ágreiningsefnum í bókmenntirnar í tilraun til að vera móðins. Þessu er ég sammála, þó ég sé síður en svo mótfallinn því að veruleikinn eða samfélagið eigi sér stað í bókmenntum, eða að pólitík dagsins nýtist höfundum. En látum það liggja á milli hluta. Þegar ég lít yfir útgáfuna síðustu ár get ég hreinlega ekki skilið hvað Þröstur er að tala um, ég sé ekki betur en flestar bækurnar fjalli hreinlega um veruleikann, jafnvel rammpólitískan veruleika. Svartur á leik, Klisjukenndir, Hugsjónadruslan (já! andskotinn hafi það), Fífl dagsins, Múrinn, Lömuðu kennslukonurnar, Lovestar, Hótel Kalifornía, Fólkið í kjallaranum, Andlit, Radíó Selfoss, Stormur, Samkvæmisleikir, Andræði, Börnin í Húmdölum, Níu þjófalyklar, Sólskinsfólkið, Áhyggjudúkkur, 39 þrep til glötunar, Ýmislegt um risafurur og tímann, Kjötbærinn, Flóttinn, Samúel - ég gæti satt best að segja haldið svona áfram helvíti lengi. Í alla blaðsíðuna ef ég nennti því. Vandamál íslenskra bókmennta liggja einhvers staðar allt annars staðar en í snertipunktum við veruleikann. Ég get ekki ávarpað þessa fullyrðingu öðruvísi en með því að gapa framan í hana. Þröstur vildi kannski segja að bókmenntaumræðan fjalli ekki nóg um veruleikann, að það sé bókmenntaumræðan sem eigi ekki snertifleti við veruleikann. Það má vel vera.
***
Stefán Máni talaði dálítið í kross, sagði fyrst að skáldsögur væru ekki eins og draumar, svo að þær væru eins og góðir draumar, síðan að þær hefðu alltaf verið tilbrigði við sama stef, og spurði loks hvort við ættum ekki að „brjóta skapalónið“, en bætti við að það væri ekki hægt og þá væri líklega best að stunda bara tilbrigði við stef: Stefán lauk sem sagt máli sínu á að hjólið væri kannski ekki hægt að finna upp aftur, en það mætti hjóla afturábak, í svefni, gera úr því tannhjól – m.ö.o. stunda það eins og það sem hann var sjálfur að kvarta undan, sem tilbrigði við stef. Reynum þetta einu sinni aftur: Skáldsagan er ekki jafn góð og draumur en alveg eins og góður draumur, og við skulum stunda hana sem tilbrigði við stef í staðinn fyrir sem tilbrigði við stef - ekki reyna að stoppa mig þó ykkur svimi, mig svimar líka, ég held að það sé tilgangurinn. Stefán Máni hefur á síðastliðnu ári stigið út úr skápnum sem einhver fremsti spunameistari goðgerðarbransans, þar sem hann vefar í kringum heimatilbúið hæpið um sjálfan sig furðulega storma, æpir „Túristi!“ upp í norðangarrann – og um leið og stíflugarðurinn brestur áttar maður sig á því að líklega býr enginn í þessari borg nema Stefán Máni sjálfur, og hann er þegar hólpinn. Við enda dags drukknar bara stakur kálfur í Lesbókinni. Og einni Lesbók síðar var Stefán búinn að næla sér í kvef undan hvítfyssandi ölduroki sjálfs síns, og kominn undir læknishendur, guði sé lof.
Stefán Máni segir líka að það sé dapurlega langt síðan hann hefur „heillast algerlega“ af skáldsögu. Nú vill svo til að undirritaður var staddur á bókmenntahátíð í Leith í Skotlandi fyrir fáeinum mánuðum síðan þar sem Stefán Máni svaraði því til í panel sem við sátum saman í að hann læsi hreint ekki lengur skáldsögur, honum þættu þær ekki standast samanburð við non-fiction skrif – gott ef hann tiltók ekki meira að segja sannsögulegar glæpasögur. Málið er þá kannski að Stefán hafi hreinlega ekki heillast af skáldsögum dapurlega lengi vegna þess að hann hefur ekki verið að leita eftir skáldsögum til að heillast að - með öðrum orðum hefur hann ekki verið opinn fyrir hugmyndinni um að heillast af skáldsögum. Ég held það sé fyllilega eðlilegt að maður heillist ekki af nema litlu hlutfalli af þeim bókum sem maður les - þannig er nú bara að ekki er allt vel skrifað OG áhugavert sem kemur út – og ef maður les mjög lítið eða ekkert af skáldsögum er mjög hæpið að maður heillist nokkuð af þeim. Stefáni sárnar þá kannski fyrst og síðast að hann skuli ekki „heillast algerlega“ af kápum skáldsagna, eða umtalinu um þær. Það er hinsvegar alveg ljóst að sá sem hefur gefið skáldsagnalestur uppá bátinn, er ekki líklegur til að heillast af skáldsögum í bráð.
Staðreyndin er sú að burtséð frá því hvort skáldsögur ná að heilla nokkurn, hvort þær eru allar góðar eða allar ömurlegar, burtséð frá því hvort nokkur fái krónu fyrir að skrifa staf í bók, og örfáir – jafnvel engir – fáist til að lesa þær, þá deyr skáldsagan ekki út sem slík. Ástæðan fyrir þessu er einföld: Skáldsagan sem fyrirbæri er tilraun. Þessi tilraun mistekst oftast, þó að mismiklu leyti sé. Og ótrúlegur fjöldi af fólki er tilbúið til að leggja ótrúlega mikið á sig við að framkvæma þessa tilraun, aftur og aftur, af ástríðu sem ber mannsandanum fagurt vitni. Barlómur Stefáns Mána breytir engu um það.
***
„Af hverju heyri ég aldrei íslenska skáldsagnahöfunda (með fáeinum undantekningum) ræða um það hvort skáldskapur sé yfir höfuð fyrirhafnarinnar virði?“ spyr Eiríkur nafni minn, en gleymir því að skáldskapur er ekki neitt eitt, ekki frekar en fyrirhöfn, ekki frekar en „íslenskir skáldsagnahöfundar“. Ég átta mig ekki á því hvaða skáldskap Eiríkur er að tala um, hversu mikil fyrirhöfn er of mikil fyrirhöfn, og hvaða fyrirhöfn – er öll fyrirhöfn kannski of mikil? Er Eiríkur kannski bara að tigna letina? Kvarta undan heimtufrekju orðanna? Finnst honum of margir gera tilkall til hásætisins? Er ekki nóg pláss lengur?
Spurningin er auðvitað miklu stærri, hluti af frumöskrinu um hvort nokkuð sé nokkurs virði. Hvort okkur væri ekki bara hollast að leggjast út af og drepast síðan. Spurningin er auðvitað líka dálítið einfölduð. Einmitt vegna þess að það vantar inn í hana óþekktu stærðirnar: hvað er hvenær og hversu lengi og hversu mikið hvers virði?
Hvað?: Skáldskapur er ekki einslags, hann er margslags. Þetta er augljóst öllu læsu fólki.
Hvenær/hversu lengi?: Skáldskapur getur haft tímabundið gildi, hann getur haft gildi hvenær sem er í framtíð, fortíð, og/eða nútíð. Hann getur haft langtíma áhrif, í 20 ár, 100 ár, 1000 ár, 10.000 ár og kannski endalaust. Hann getur þess vegna skipt öllu í eitt einasta augnablik og svo aldrei meir. Og svo getur hann skipt engu.
Hversu mikið?: Hann getur fengið eina manneskju til að hlæja, og tíu til að kasta upp, breytt lífi einnar manneskju, skemmt tuttugu manneskjum, hann getur fellt heimsveldi, tortímt veröldum. Hversu mikið er nógu mikið?
Að lokum mætti líka spyrja: Fyrir hverjum: Skáldskapur getur haft gildi fyrir þeim sem setur hann saman, þó hann skili engum öðrum neinu. Hann getur haft gildi fyrir einn eða tvo lesendur, og hann getur skipt sköpum fyrir alla jarðarbúa – þó höfundurinn jafnvel fyrirlíti hann sjálfur og vilji vart kannast við að hafa sett hann saman.
Spurningin verður flóknari og flóknari eftir því sem hún þarf að verða nákvæmari og nákvæmari.
En við getum hins vegar jafnt gefið okkur það að Eiríkur sé að spyrja hvers vegna enginn velti ofantöldu fyrir sér, og átalið hann fyrir að sleppa því sjálfur. Þetta er eins og áður sagði tilbrigði við frumöskrið, hið gríðarlega „hvers vegna?“ sem rymur á bak við mennskuna, ropar að okkur og hæðist með fingurinn á lofti. Þetta hversvegna er margslags, sumum hlutum þess er auðvelt að svara, eins og til dæmis hvers vegna himinninn sé blár (ég man ekki svarið, en ég sá það á vísindavefnum, þetta hefur eitthvað með ljósbrot að gera, minnir mig), en það er erfiðara að finna svör við persónulegri spurningum. Hvers vegna, til dæmis, elskar maður móður sína? Hvers vegna spyrja synir og dætur sig aldrei hvort það sé fyrirhafnarinnar virði? Er það ekki óþolandi ástand? Er það kannski merki um sjúkt og óheilbrigt fjölskylduástand?
Í öllu falli sækja þessar tvær spurningar mig heim á svipaðan hátt – um skáldskapinn annars vegar og móðurina hins vegar – fyrirhöfn kemur málinu ekki beinlínis við. Mér dytti ekki í hug að hætta að sinna skáldskap frekar en mér dytti í hug að slíta samskiptum við móður mína. Ég ætla ekki að segja að ég elski skáldskapinn eins og móður mína, ætla ekki einu sinni að segja að ég elski skáldskapinn – en það hefur eitthvað með ást að gera, þó það sé ekki beinlínis ást, það er fyrirbæri af sömu tegund og ást, dálítið grimmara og svartara og miskunnarlausara, en af sömu tegund og ást.
* * *
Í Lesbókinni á eftir (þeirri sem Stefán komst loksins undir læknishendur) svöruðu menn svo gífuryrðunum. Kristján Bje gekk yfir Mosfellsheiði og fann hinum megin við hana læst fólk – hvern hefði nú grunað það? Og Kristján kemur þar auðvitað inn á dálítið fyndinn punkt: Hvað ætli lesendum skáldsagna sé ekki skítsama þó Hermann, Eiríkur, Þröstur og Stefán Máni séu í tilvistarkreppu? Varðar heiminn eitthvað um það? Ég er ekki einu sinni viss um að lesendur Lesbókar varði neitt um það, bókmenntaheiminn – mig grunar að köllunum tveimur, sem standa undir bókahillu í Oxford Maríasar og Eiríks, sé meira að segja nokk sama. Þetta er ekki einu sinni efni í góða samræðu. Kannski í stutt kóan, jafnvel gott kóan, eilíft kóan? En kóanið er dautt, andskotinn hafi það.
Hegelískt kóan, það er nýtt bókmenntaform, sprelllifandi og grensudansandi.
Þrír munkar hittast í musterinu, sá fyrsti, Tesan, segir: „Æi, hvað ég nenni ekki að skrifa eða lesa, þetta er ömurlegt.“ Sá annar, Antitesan, svarar þá: „Æi hvað ég nenni ekki að hlusta á þig rífast, þetta er ömurlegt.“ Loks segir þriðji munkurinn, Syntesan: „Æi hættum þessu þá bara, þetta er ömurlegt.“ Og munkarnir þrír uppljómast samstundis.
* * *
Höfundur vill taka fram að þrátt fyrir þá óhóflega skefjalausu bjartsýni sem kemur fram í þessari grein þá hefur hann fjöldamargt við íslenskar bókmenntir að athuga, á það stundum til að grýta íslenskum bókum í veggi af hreinræktaðri beiskju og af vonbrigðum, og á ýmislegt óuppgert við íslenska rithöfunda.
