Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Tilvistin · Íslenska

Bruninn sem knýr lestina

Forsíða Spessi 1990–2020.
Forsíða Spessi 1990–2020.

Mig langar að kalla það eymd en það er ekki eymd. Það er ekki heldur reisn eða hráslagi, ekki skortur eða frelsi, blús eða tregi, ekki sorg eða þrautseigja, ekki friður, friðleysi eða ófriður. Og samt er það allt í senn. Sennilega er ekki rétt að á íslensku sé til orð yfir allt sem hugsað er á jörðu – en þá eigum við myndir.

Til einföldunar skulum við samt kalla það eymd.

*

Eymdin sem ég á við er landslagið í verkum Spessa – frá Breiðholtinu til bensínstöðvanna, frá Kárahnjúkastarfsmönnum til vogskorinna andlita (hversdags)hetjanna. En hún segir okkur fátt ein og sér, því myndir Spessa eru alls ekki eymdarlegar myndir – eymdin er ekki sögnin í þeim og ekki mórall þeirra og sannarlega ekki viðeigandi lýsing á viðfangsefnum þeirra – heldur eru þetta myndir af sjálfsvirðingu, kærleika, sorg, þolinmæði, þrjósku, uppgjöf, kergju, hörku og gott ef ekki stundum – á sínum kraftmestu augnablikum – af sjálfum tímanum. Öllu því sem mótar fyrir í landslagi þessarar eymdar, því sem sker sig úr einmitt vegna þess að það er ekki sjálft þessi eymd.

Flestar ljósmyndir biðja augað að festa sig við einhverja hreyfingu – maður fellur, par kyssist, barn öskrar – og við skiljum að eitthvað hefur gerst, er að gerast, mun gerast. Í myndum Spessa er gjarnan lítil eða engin hreyfing – farartæki eru kyrrstæð, persónur standa gleiðbeintar með hendur með síðum og horfa beint fram einsog þær séu að búa sig undir að taka á sig brot, og í stað þess að sjá þær ferðast í gegnum tíma og rúm sjáum við alltíeinu tíma og rúm ferðast í gegnum þær, sjáum öldurnar brotna. Við sjáum verurnar ekki lengur kyssast eða falla eða öskra, en sjáum hvort þær hafa kysst, hvort þær hafa fallið, hvort þær hafa öskrað. Athyglin beinist að sigginu, veðrun veggjanna, hinu löturhæga, því sem vex, því sem eyðist og hverfur og því sem birtist þegar það vex, eyðist og hverfur. Ljósmyndin er þá ekki bara skrásetning augnabliks heldur krufning fortíðar, þess sem hefur gerst í tilteknu rými, í tilteknu andliti, á tilteknum stað, og spádómur um það sem gerist næst.

Viðfangsefni Spessa eru gjarnan fólk (eða hús eða herbergi) með óvenju mikla reisn og stundum er „eymd“ þeirra ekki annað en eðlilegt mark tímans. Eymdin sem ég tala um er þannig einsog lóðin á ljósmynd af kraftajötni – eða boxpokinn í einu svefnherbergi, kross á vegg í öðru, svo tekin séu dæmi úr myndum Spessa – fyrst og fremst til marks um styrk módelsins, og hún lýsir sér í ýmsu. Hún getur verið í proppsinu – hasspípum og byssum og handtöskum – og hún getur verið í heilu strigunum: fjöllum, húsum, lokuðum herbergjum og hyldjúpum ásjónum. Söguhetjan er gjarnan eftirlifandinn – sá sem lifir af sveitina, smábæinn, borgina, veðrið, væntingarnar og sjálfan sig. Eymdin veitir kontrastinn þar sem frásögnin stingur í stúf, hún er auðnin þar sem fólkið hefur byggt sér líf – oft með ærnum tilkostnaði, svo sem merkja má af bæði ásjónum þeirra, eigum og vistarverum. Einsog í blúslaginu eru forsendurnar gjarnan þekktar. Ljóðmælandi vaknaði blankur, konan farin og búið að stela skónum. Yfirgefin bensínstöð saknar sinna gesta, önnur situr í borgarysnum miðjum og saknar rósemdarinnar. Ísfirðingur eftir Ísfirðing stillir sér upp í heimabæ – ekki bara sínum, heldur líka heimabæ Spessa (og mínum) – þar sem fortíðin og framtíðin berjast viðstöðulítið um athyglina. Sagan fjallar ekki (frekar en blúslagið) um þau örlög sem við deilum öll – heldur um afstöðu söguhetjunnar til örlaga sinna, hvort hún hlær eða grætur, fer aftur að sofa eða skríður á fætur. Þetta á vel að merkja ekki síður við um þær mörgu myndir þar sem ekki er að sjá neitt fólk – þar sem söguhetjan er herbergi eða hús – og kannski eru þær myndir jafnvel enn „mannlegri“ en hinar.

Frásögnin í myndunum er þannig ýmist um syndarann sem eymdin hefur sótt – um þann Júdas Iskaríot sem þarf að lifa með sjálfum sér – eða þann sem fæðist inn í hana, barnið sem við vonum að sleppi en vitum að gerir það (sennilega) ekki, frekar en við. Hún er um horfna eymd og nýrisna – um innreið samtímans í kotbýli fortíðar, bensínstöðina sem boðar kannski upphafið að endalokum byggðarinnar, og yfirtöku hins flóðlýsta og yfirdrifna á veruleikanum sem við fáum í staðinn. Og hún er um það hvernig fegurðinni tekst alltaf að vefa sig inn í allt – jafnvel sjálft vonleysið – þegar upp sprettur örlítill snertur eða filma af kátínu eða létti, sem afhjúpar mýktina bakvið kúlið.

Við endum á því að skilja þessa eymd betur. Vesaldómur, volæði og víl, en eymdin er svo miklu meira. Eymdin er það sem að við forðumst dagana sem við komumst ekki fram úr. Það er eymdin sem við lifum af dagana sem við deyjum ekki. Hún er ófæran sem við þrömmum í gegnum þegar við höfum ekki um neitt að velja. Og þá þrömmum við ekki endilega af krafti eða átakagleði – þótt það komi fyrir – heldur kannski bara af sorg eða sjálfsvorkunn. Því við vitum að eymdin leiðir ekki neitt og ef hún tekur einhvern tíma enda – sem hún gerir mislengi af og til, og á endanum fyrir fullt og allt – er það sjaldnast okkur sjálfum að þakka heldur einhverjum kosmískum öflum sem okkur hefur aldrei tekist að beisla, hvað sem líður öllum heimsins sjálfshjálparbókum, trúarritum, drykkjutúrum, skáldskap, mixtúrubruggi og matarkúrum. Kannski vegna þess að þessi eymd er líka forsendan fyrir sigrum annarra. Hinna glottandi borubröttu og áhyggjulausu. Eymdin er byggð inn í vélvirkið – hún er bruninn sem knýr lestina.

Þegar við höfum meðtekið eymdina og tileinkað okkur hana höfum við síðan engu að tapa, ekkert að vinna. Við græðum ekkert á því lengur að bera okkur vel, græðum ekkert á að bera okkur illa, skuldum engum neitt, og munar ekkert um að standa svolítið gleiðbeint, svolítið upprétt, svolítið fött, draga andann djúpt og líta í myndavélina.

Augnaráðið bugar okkur ekki.

Ekkert bugar okkur.

← Allt safniðHöfundur fæðist í skuld →