Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Beðið eftir peningunum

Plakat fyrir ljóðahátíð Nýhils árið 2005
Plakat fyrir ljóðahátíð Nýhils 2005. Ljósmynd úr safni höfundar.

Dömur mínar og herrar,

Velkomin á Alljóðlega þjóðahátíð/Alþjóðlega ljóðahátíð Nýhils. Ég flyt ykkur ávarp úr rökkvuðu bakherbergi í Helsinki, nokkru eftir að síðustu sprengjur féllu í Bagdad og London. Veggirnir hafa verið dekkaðir svörtu, og á einum þeirra má sjá Halldór Arnar Úlfarsson búa til furðuhljóð með því að veifa alls kyns furðutólum. Við Halldór erum að bíða eftir peningunum. Við vitum ekki hvort nokkurn tímann kemur út Afbók, hvort öll skáld hinnar Alljóðlegu þjóðahátíðar komist á leiðarenda, er einhver búinn að greiða flugförin þeirra? Peningarnir hafa, í öllu falli, ekki látið sjá sig, og því bíðum við Halldór Arnar Úlfarsson eftir peningunum, á meðan hann spilar á furðuverkfæri og ég flyt ykkur þessa kveðju mína við sargandi hávaða, í rykmekki síðustu sprengja. Fyrir rétta miðju herbergisins er svart leðurfleti, sem ég kýs að kalla heimili mitt um nætur. Finnskir skattborgarar eru miður sín yfir þessu. Ég, sem heitið gæti túristi, evruframleiðandi af holdi og blóði, gjaldeyrisskaparinn ég, eyði engum peningum í bakherbergi í finnsku galleríi, heldur bíð eftir peningum, ég bíð eftir peningunum. Við bíðum eftir peningunum, við Halldór Arnar Úlfarsson. Við höfum beðið um peningana, og við bíðum eftir þeim. Við báðum um þá fyrir nokkru síðan. Þetta eru engar smá upphæðir, við erum ekki að sníkja okkur fyrir brauðbita eða kogara, við ætlum að sulla milljónum og tugmilljónum og milljónahundruðum og milljörðum í þessa endalausu djöfulsins hít, þessa saumsprettu veraldarinnar, þennan götótta vasa, í algeru tilgangsleysi - á meðan stríðið geisar í London og Bagdad. Ef við hættum að bíða, ef ofvænið hverfur og við hættum að sprikla, veifa út öll öngum eins og þeir taugaveikluðu mannapar sem við vissulega erum, hrynjum við til jarðar jafn örugglega og hákarlinn sem hættir að synda sogast niður á botn. Dömur mínar og herrar, við bíðum eftir peningunum. Það viðrar vel til biða í Helsinki og hefur aðeins rignt einu sinni síðan ég kom en annars hefur verið sól. Milli syðri Esplanadi, og nyrðri Esplanadi, má sjá hálfnakið ungt fólk liggja í grasinu, drekka bjór og spila á gítar, reykja gras og spila á bon-gó-trommur - þetta eru skítahippar sem hafa sjálfsagt aldrei étið kæfu eða bjúga um ævina, en ég fyrirgef þeim vegna þess að þau eru hálfnakin og bert hold þeirra gleður mig. En barirnir Helsinki eru lélegir og peningarnir eru uppurnir. Sem er víst eins gott því annars er líklegt maður léti sig hafa lélega barina og væri sullandi allan daginn í stað þess að gera það sem maður kom hingað til að gera, í stað þess að standa sig í stykkinu og bíða eftir peningunum. Ekki bíða þeir eftir sér sjálfir.

Dömur mínar og herrar við ætlum að ljóða hér í þögninni, þetta verður einskonar maraþon og það finnst engin afsökun fyrir því að sofa yfir sig á málþingið á morgun þó fylleríið í kvöld verði stíft og langt - það finnst engin afsökun fyrir að mæta ekki, dragið andann og haldið honum inni, þessu lýkur ekki fyrr en seint annað kvöld, það finnst heldur engin afsökun fyrir því að kaupa ekki Afbókina sem ÉG ritstýrði því það er alls ekkert víst að biðin eftir peningunum beri þann ávöxt sem við vonumst til og þá er eins gott að þið kaupið Afbókina sem ÉG ritstýrði því annars erum við öll gjaldþrota annars munum við öll selja foreldra okkar og líffærin úr okkur, líffærin úr foreldrum okkar, selja börnin okkar, líffærin úr þeim, og biðjast fyrir við hæla auðmanna, reyna einu sinni enn að útskýra fyrir fjáðum valdhöfum þessa lands að líf án tilgangsleysis sé alls ekkert líf - kaupið andskotans Afbókina! - en nú fáumst við ekki um það, fáumst ekki um peningaleysi þó við bíðum, og þó ég komi kannski til með að þurfa að hlusta á þessi orð skjálfandi úti í horni af hræðslu við yfirvofandi gjaldþrotaskipti, þrotabúseyðingu, skuldafangelsi og handrukkunarbarsmíðar - við fáumst ekki um slíkt í Helsinki heldur sitjum í sólinni, við Halldór Arnar Úlfarsson og vonum að bókin sé komin út, skáldin komin til landsins, í bakherbergi rétt við Esplanadi skömmu eftir síðustu sprengjuárásir, við bíðum eftir peningunum, hann sargar á hljóðfærið sitt og ég hjúfra mig saman í fósturstellinguna á leðurrúminu í þessu bakherbergi, fylgist með Halldóri Arnari á skjánum sem þekur heilan vegg - og við bíðum eftir peningunum, engum smáaurum þakka ykkur fyrir, dömur mínar og herrar, við bíðum eftir raunverulegum upphæðum, safaríkum og merkingarhlöðnum, við bjóðum ykkur velkomin og bíðum eftir peningum, það er einlæg von mín að dagskráin sé við það að hefjast, og að við Halldór Arnar Úlfarsson höfum ekki til einskis beðið eftir öllum þessum peningum.

Takk fyrir.

← Allt safnið