Eiríkur Örn NorðdahlRithöfundur · ljóðskáld · þýðandi
← Til baka í safnið

Skáldskaparfræði · Íslenska

Á meðan við bíðum dauðans

Spássían, vetur 2010.
Spássían, vetur 2010.

– Um bækurnar Ljóð á ættarmóti eftir Anton Helga Jónsson og Ég greiði mér eftir Christophe Tarkos

Fororð

Á dögunum sá ég stuttmyndina Líf á Facebook eftir Maxime Luère. Myndin gerist öll inni á félagsmiðlinum fræga – strákur stofnar reikning, strákur skrifar status, hleður upp myndum, kynnist stúlku, hættir með stúlku, kynnist stúlku, hættir með stúlku, kynnist stúlku, hættir með stúlku, verður geeeeeðveikt ástfanginn af stúlku, giftist henni, þau eignast barn og svo skyndilega er hann orðinn 170 ára og deyr (og loggar sig út).

Ljóð Antons Helga og Christophes Tarkos gerast þarna í millibilsástandinu eftir barneignir en fyrir dauða. Þegar ljóðmælendur hafa uppfyllt náttúrulega skyldu sína við heiminn – uppfyllt drauminn um klisjuna, fjölgað sér – og bíða þess eins að þeir deyi. Þeir hafa glatað markmiðinu, með því að þjónusta líffræðilegar kenningar um tilgang, og lolla áfram í taugaveikluðum, grautarlegum hægagangi. Hver status er svipaður þeim á undan: tilraun til þess að gæða merkingarlaust líf nýrri merkingu. Ljóðmælandafjöldinn dæsir. Andvarpar. Æpir. Angistin er fullkomin.

Þú vilt ekki deyja, en þú veist að þú ert dauður strax við getnað.

I

Svo leyfir þetta helvíti sér að ríða mér á stofugólfinu.

(Anton, s. 42)

Þegar ég var átján ára ætlaði ég að verða Anton Helgi Jónsson. Ég vissi reyndar ekki að hann ynni á auglýsingastofu. Ég hélt hann væri ljóðskáld. Hélt að menn ynnu bara við það. En það er svona. Ég segi ykkur þetta svo þið gerið ykkur grein fyrir því að ég er ekki hlutlaus. Ég er að upplýsa ykkur um eitthvað. Afstaða mín er fyrirfram jákvæð. Þetta er ekki krítík, þetta eru húrrahróp. Tæplega hálfa ævi mína hef ég tilbeðið ljóðskáldið Anton Helga. Og ég er ekkert að fara að hætta því. Ekki einu sinni þótt ykkur finnist það eitthvað óþægilegt. Ég skil reyndar ekki hvað þetta kemur ykkur við.

II

Eðlilegur hvítur, uppréttur maður. Hann stendur alveg eðlilega. Hann hefur það fínt. Það er verið að ríða honum í rassgatið. Hann var undir það búinn. Hann stendur uppréttur. Hann er kominn yfir fertugt og rasskinnar hans eru ekkert alltof fallegar. Venjulegur nakinn maður með buxur úr fínu efni, jakka, skyrtu, bindi, flottur.

(Tarkos, s. 14)

Ég veit ekkert um þennan Frakka, Christophe Tarkos, nema að hann (líkt og Anton Helgi) keyrir á ágengum persónufornöfnum – oftast fyrstu persónu, eintölu – og beinni ræðu. Í eftirmála bókarinnar Ég greiði mér (Jag kammar mig, í sænskri þýðingu Kristoffers Leandoer) segir þýðandinn (eða túlkurinn, ef við beinþýðum úr sænsku) að Christophe Tarkos vilji helst ekki gefa upp fæðingarár sitt og hafi tekið að skrifa sig C. Tarkos til þess að forðast kynslóðavísbendingar nafnsins. Hann vilji ekki að neinn viti neitt um sig. Komist að neinu um sig. Hann, sem hamrar á þessu þunga persónufornafni, ég, vill ekki að ókunnugir kannist við sig. Leandoer gefur reyndar upp fæðingarár hans í eftirmála, en ég ætla að halda því fyrir sjálfan mig og reyna að gleyma því. Það er okkur öllum fyrir bestu. Við skulum ekki gúggla honum. Það skiptir engu máli hvenær maður er fæddur.

III

Margir strákar skemma hann á sér með vitlausu fikti;

þegar þeir hitta stelpur þá verða þær ekki hrifnar.

Þú ættir ekki að drekka kók.

Það fer illa með eistun.

(Anton, s. 46)

„Ég held raunar að hann sé stórskáld, og þið megið trúa því að þau eru sjaldséð“1 segi ég og hef eftir Jóni Kalmani um Hannes Pétursson – (ég get ekki hætt! getur enginn stöðvað mig?) – og treð mér þannig óboðinn inn í hefð sem krefst þess að yngri reðurberinn dásami eldri reðurberann; taki þannig við reðrinum, hrifsi til sín feitan böllinn sem borist hefur niður aldirnar frá Hómer í gegnum Sapfó og Einar Ben. Jón þurfti reyndar bara að bíða í þrettán ár eftir nýrri ljóðabók frá Hannesi – ég hef mátt þola nítján ára eyðimerkurgöngu (ef frá er talinn eilítill vatnsdreitill í limrusafni fyrir fjórum árum, sem hélt í mér lífinu). Ég vissi ekki einu sinni að ég væri að bíða eftir Tarkos. Það eru komin þrjátíuogtvö ár sem ég vissi það ekki. Við erum svo fáránlega hómóerótískir hér í sæðispollinum – ég biðst velvirðingar – en það er kannski líka bara ágætt. Við meinum vel. Nú er ég sannkallaður reður og aðrir svo gott sem dauðir.

IV

Maður getur ekki verið óhamingjusamur, maður er hamingjusamur, þegar maður er óhamingjusamur þá borðar maður ekki, þegar maður borðar ekki horast maður upp og þegar maður horast upp deyr maður, maður er dauður, maður er ekki óhamingjusamur […]

(Tarkos, s. 32)

Ég greiði mér er gefin út af sænska forlaginu Pequod, sem er mikið fyrirmyndar forlag – það sérhæfir sig í þýddri samtímaljóðlist, gefur m.a. út Perec – og þýdd af Leandoer, sem er mikill sendiherra franskra bókmennta í sænskum bókmenntaheimi. Ég reikna því með að Tarkos sé ekki bara gott skáld heldur líka frægur. Á baksíðu bókarinnar segir að hann sé unga séníið í nýjustu bylgju franskrar ljóðlistar. Nýjustu dillu franskrar ljóðlistar. Þýðandinn er kallaður Tarkosfræðingur. Svona einsog Peter Hallberg er laxnessfræðingur. Og Helga Kress. Og Halldór Guðmundsson. Og Hannes Hólmsteinn (ha ha ha!).

Ég hallast helst að því að hann sé heimsfrægur, þessi Tarkos. Hann býr kannski á Rívíerunni, umkringdur fáklæddum meyjum og nóbelsverðlaunastyttum, með skítnóg af peningum – fjaðurpenna á hverjum fingri og dularfulla fortíð sem enginn kann almennilega skil á (nema kannski allra hörðustu Tarkosfræðingar).

En svo sló ég honum inn í Gegni – leitarvél bókasafnanna – og sá að hann er alls ekki neitt frægur. ‘Tarkos’ gefur engar niðurstöður. Ég hlýt að hafa verið að meina eitthvað annað.

V

Ekki segja að þú skiljir tilfinningar mínar.

Ekki segja að þú skiljir hvernig mér líður.

Svaraðu mér bara.

Hvar er prívatið?

Hvar finnur maður prívatið á þessum stað?

(Anton, s. 55)

Ef ég á að leitast við að setja blett á hið forngríska samband okkar Antons Helga mun ég segja að mér finnist titillinn – Ljóð á ættarmóti – ekki lokkandi heldur lokandi. Á bakkápu stendur síðan, til þess að undirstrika þessa tilteknu, afmörkuðu túlkun enn fremur: „Í ljóðabók Antons Helga Jónssonar heyrum við raddir fólks á ættarmóti“.

Ég sé enga sérstaka ástæðu til þess að útskýra raddakraðakið með leiksviði ættarmótsins. Þessi fjölradda bók hefði verið stjarnfræðilegri – meira þeytivindandi – ef manni væri ekki skipað að ímynda sér að öll orðin í henni væru mælt af vörum fólks með hátíðarveigar í munnholinu, eða að þau væru mælt upphátt yfir höfuð. Í heimi þar sem fyrstu persónu textum er steypt saman í kraðak á hverju horni – á Facebook og Twitter, blogginu og aðsendum greinum, kaffihúsum og vergangi, einræðum og muldri – er engin þörf fyrir þennan ramma. Það hefði verið ágætt að vera án hans. Ágætt að fá að leika lausum hala í bókinni. Ég er að hugsa um að rífa bara kápuna af eintakinu mínu. Þið getið svo fengið það lánað ef ykkur langar að leika.

VI

rödd 1:

æ mér er illt

rödd tvö:

hún þjáist

resitatíf:

sársaukinn kom yfir hana og fer ekki neitt

(Tarkos, s. 45)

Ég greiði mér inniheldur brot úr sex útgefnum ljóðabókum, auk fáeinna nýrri ljóða. Í ljóðinu „Hið illa“ úr bókinni Búrið (Buren/La Cage) er sett á svið leikrit án sviðsmyndar. Þar skiptast á rödd 1, rödd 2 og resitatíf („sönglestur“). Raddirnar tala um sársaukann, hið illa, en ræðast ekki beinlínis við. Tala í kross, skiptast á, í sama þema – en ná aldrei kontakt, þreifingu, höggi hver á aðra – einsog fimir nútímadansarar sem fara í heljarstökkum hver yfir annan án þess að snertast.

Þetta speglandi tengslaleysi einkennir líka bók Antons Helga. Bækurnar bergmála og þýðast sjálfar sig – skyldar einræður hrannast upp – við stöndum hvert með nefið ofan í annars koppi og lýsum yfir einmanaleika okkar og tilgangsleysi í þeirri von að einhver skilji okkur. En okkur mætir ekkert nema sjálfsvorkunn annarra. Það hefur enginn tíma til þess að faðma okkur. Veit þetta fólk ekki að okkur líður illa og við megum ekki vera að því að sinna vælinu í þeim? Ekki núna. Kannski seinna. Þegar okkur líður betur. Þegar við höfum náð okkur af angistinni. Dauðaþránni.

VII

Ég lifi vegna þess að mér finnst þægilegt að lifa. Ég veit hvers vegna ég lifi. Ég lifi vegna þess að ég hef gaman af því. Ég hef nú uppgötvað að það er þægilegt að lifa, að því fylgir ákveðin nautn. Ef ég er á lífi er það vegna þess að mér finnst þægilegt að lifa, vegna þess að ég hef ákveðið að lifa.

(Tarkos, s. 30)

Í eftirmála Ég greiði mér stendur: „Fyrir Tarkos er ljóðlistin allt. Hann lifir fyrir ljóðlistina og af ljóðlistinni.“

Vinur minn gúgglaði honum (þrátt fyrir að ég hefði stranglega bannað honum að gera það) og sagði mér síðan að hann væri dáinn. Hann hefði dáið árið 2004. Fjórum árum eftir að bókin Ég greiði mér kom út í Svíþjóð. Fyrir sex árum. Unga séníið.

Fyrsta bók Tarkos kom út árið 1995, fjórum árum eftir að Ljóðaþýðingar úr belgísku Antons Helga kom út. Tarkos gaf út tólf bækur – þá síðustu árið 2003. Þremur árum áður en limrusafn Antons Hálfgerðir englar og allur fjandinn kom út.

Áður en Tarkos var til, var Anton til.

Á meðan Tarkos var til, var Anton ekki til.

Nú er Tarkos ekki lengur til, en Anton er aftur til.

Textar Christophes Tarkos eru þýddir úr sænskri þýðingu Kristoffers Leandoer af greinarhöfundi.

1 „Og margsinnis skalf hjartað af hamingju ...“ Jón Kalman Stefánsson um ljóðabók Hannesar Péturssonar, Fyrir kvölddyrum, í Lesbók Morgunblaðsins 9. desember, 2006. Sú bók fjallar reyndar líka um að bíða dauðans. „Hannes er kominn á áttræðisaldurinn og yrkir um haustið í blóði sínu, að kvölddyrnar muni senn ljúkast upp; bregða fer birtu og turnklukka hringir inn síðdegið“, segir Jón enn fremur.

Ljóð af ættarmóti
Ljóð af ættarmóti eftir Anton Helga Jónsson.
Jag kammar mig
Jag kammar mig eftir Christophe Tarkos.
← Allt safnið