The Scream Literary Festival Mainstage

Ég kom fram á aðalsviðinu á The Scream Literary Festival í Toronto þann 13. júlí. Árið áður kom ég fram á minni viðburði á sömu hátíð ásamt Paul Dutton og það gekk svo vel að þau vildu fá okkur til að endurtaka leikinn á stóra sviðinu. Viðburðurinn fer fram árlega í stóru útileikhúsi í High Park. Við Paul hófum leikinn á sömu ljóðum og í fyrra, Kit Talk eftir Paul og Thou Shalt Not Morgan eftir mig. Síðan renndum við okkur í frumsamið hljóðaljóð eftir Paul og enduðum á þremur ljóðum úr einræðisherraseríunni – Pol Pot (Pantún), Batista og Swing Ding.

Smellið hér til að sjá og heyra.

Bókmenntabarinn Stanza í Malmö

Ég fór til Malmö undir lok marsmánaðar, 2009, til að lesa upp á Bókmenntabarnum Stanza (sem er atburðabar sem gerist 8 sinnum á ári). Húllumhæið fór fram á Inkonst listhúsinu og meðal annarra þátttakenda var margmálaskáldið Cia Rinne, hinn mikli nestor sænska konkretismans, Bengt Emil Johnson, hans frú, performistinn Kerstin Ståhl og ljóðagrúppan 3 advokater, með Pär Thörn, Peder Alexis Olsson, Ola Stahl, og Calle Lindh. Ég las úr einræðisherraseríunni, kreppusonnettuna og tvö mállýskuljóð (dönsku og skánsku).

Smellið hér til að sjá.

Ljóðavikan í Turku

Ljóðavikan í Turku var haldin dagana 3.-9. nóvember, 2008, og kom ég fram á miðvikudagskvöldinu á stað sem nefnist því einfalda nafni Klubi. Ásamt mér komu fram ljóðskáldin Jonimatti Joutsijärvi og Olli-Pekka Tennilä, dansarinn Satu Tuittila og tónmyndlistarmennirnir í Pink Twins. J.P. Sipilä á heiðurinn af myndbandsupptökunum, sem og stöku effekt sem kemur inn á hér og þar.

Heimasíða hátíðarinnar er hér.

Smellið hér til að sjá mína hlutdeild í hátíðahöldunum.

Ég ætti líklega að taka fram að ég var fárveikur á meðan þessum gjörningi stóð, sem og bæði fyrir og eftir.

4ja alþjóðlega ljóðahátíð Nýhils

Fjórða alþjóðlega ljóðahátíð Nýhils var haldin á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í Reykjavík, í Norræna húsinu og á Þjóðminjasafni Íslands. Ég las upp á fyrstnefnda vettvangnum. 12 íslensk skáld lásu og 6 erlend. Útlendingarnir voru Hanno Millesi, Sureyyya Evren, Ann Cotten, Ida Börjel, Nina Sös Vinther og Morten Sökilde. Auk hinna hefðbundnu ljóðapartía á föstudags- og laugardagskvöldi, var skandinavískur upplestur í Norræna húsinu, málþing um ljóðaútgáfu í Þjóðminjasafninu og málþing um hið nýja í Norræna húsinu. Ég tók einnig þátt í síðasttalda viðburðinum.

Hér eru ítarlegri upplýsingar um hátíðina og hér má sjá minn þátt í Nýhils ósköpunum.

The Scream Literary Festival: Lexiconjury Revival

Lexiconjury Revival var hluti af The Scream Literary Festival í Toronto, og var haldið þann 8. júlí, árið 2008. Meðal þáttakenda voru Natalie Walschotts, Alixandra Bamford, Steve Venright, Sharon Harris og Paul Dutton. Ég las tvö ljóð með Paul Dutton, þeim hinum sama og var í Four Horsemen, og nýtt ljóð sem er samið upp úr ljóðmælum Æra-Tobba, Úr órum Tobba – auk þess sem ég tók nokkur ljóð úr einræðisherraseríunni. Aldrei þessu vant var ég klappaður upp, og bætti þá við einu einræðisherraljóði og Höpöhöpö Böks. Daginn eftir var ég svo beðinn, með 25 mínútna fyrirvara, að semja hljóðaljóð upp úr ljóði eftir Kevin Connolly, Plenty, svo úr varð Eitt allsherjar ógurlega mikið.

Hér er heimasíða hátíðarinnar, og hér má lesa um Lexiconjury.

Smellið svo hér til að sjá myndböndin.

Nordic Summer í Vilnius

Nordic Summer hátíðin var haldin í Vilnius og Jurbarkas í Litháen, dagana 12.-15. júní, 2008. Þemað var Rithöfundurinn og andófið. Meðal þátttakenda voru Vigdis Hjorth, Maja Lundgren, Tuomas Kyrö, Marcelijus Martinaitis, Jaroslavas Melnikas, Agné Zakralyté, Andrius Jakuciunas og fleiri. Fyrsti upplesturinn fór fram á barnum Neringa í Vilnius og eru upptökurnar fengnar þaðan, en auk þess las ég á Sveitasafninu í Jurbarkas og næturklúbbnum Monopolis, í sama bæ. Ljóðin sem ég las voru (í þessari röð): The First of Many Revolutions (þýðing á Fyrst ótal byltinga); Snurvoðin snýst á veggjunum; Pol Pot (Pantún); Batista og Swing Ding.

Smellið hér til að sjá húllumhæið.

Badtaste4ever

Badtaste4ever var haldin í listamiðstöðinni Bozar í Brussel, og kúratorað af Sjón og Einari Erni Benediktssyni. Þar var allur íslenskur fjárinn í gangi, en í bókmenntadagskránni vorum það við Kristín Svava, Örvar Þóreyjarson Smárason, Byrkir úr Forgotten Lores og Sjón sjálfur sem komum fram. Hátíðin var haldin í samstarfi Bozar og íslenska menntamála- ráðuneytisins, og auk bókmenntadagskrár var myndlistardagskrá og tónlistardagskrá.

Heimasíða hátíðarinnar er hér og hér má smella til að sjá minn hluta af herlegheitunum.

FlarfFest08

Flarfljóðahátíðin 2008 var haldin á Dixon Place og hinum goðsagnakennda Bowery Poetry Club í New York. Ég hef verið viðloðandi flarf-hreyfinguna frá því ég skrifaði um þau fyrir TMM árið 2005 (sjá hér) og Katie Degentesh kom til Íslands á ljóðahátíðina 2006. Ég kom fram á báðum stöðunum – á Dixon Place flutti ég Pol Pot (Pantún) ásamt þýðingu minni Pol Pot (Not a Pantoum), en á Bowery Poetry Club las ég Thou Shalt Not Morgan við undirleik Flarfestrunnar. Þess utan lék ég á gítar með sveitinni, og brá mér örstutt í hlutverk James Brown í leikriti Mitch Highfill, The Secret History of the ’60′s.

Heimasíða hátíðarinnar er hér og hér má smella til að sjá minn hluta af herlegheitunum.

Lyd + litteratur

Ljóðahátíðin í Árósum, Lyd + litteratur, var skipulögð í samvinnu Geiger útgáfunnar og Litteratur på scenen. Hátíðin fór fram dagana 9. og 10. apríl, 2008, og auk mín komu fram meðal annars hollenski listamaðurinn Jaap Blonk, Claus Beck-Nielsen Memorial og Lars Skinnebach, sem las við undirleik tónlistarmannins Jørgen Teller. Ég kom fram bæði kvöldin, fyrra kvöldið las ég nokkur hljóðaljóð án undirleiks, en það síðara las ég Naglasúpuna úr Blandarabröndurum með aðstoð tölvu.

Heimasíða hátíðarinnar er hér, og hér má smella til að heyra og sjá minn hluta af herlegheitunum.

Oslo poesifestival

Ljóðahátíðin í Osló, Oslo Poesifestival, var haldin dagana 2.-4. nóvember, 2007. Þar kom fram fjöldi manns, bæði með upplestra og fyrirlestra, sýndar voru bíómyndir og hljómsveitir léku fyrir dansi. Meðal skálda sem þarna voru má nefna Kenneth Goldsmith, Derek Beaulieu, Ulf Karl Olov Nilsson (ásamt Njurmännen), Lone Hørslev og fleiri.

Heimasíða hátíðarinnar er hér, en hægt er að smella hér til að sjá upptökur frá mínum hluta.

Önnur upplestrarmyndbönd

Hér má finna staka upplestra frá hinum og þessum uppákomum, meðal annars Pol Pot lesið í Kiljunni, upplestur Christians Bök á Höpöhöpö Böks og upplestur minn með hljómsveitinni Reykjavík! á ljóðahátíð 2005.

Smellið hér.