Um

Eiríkur Örn Norðdahl er íslenskur rithöfundur og ljóðskáld. Síðastliðin ár hefur hann unnið úr evrópskum og norður-amerískum framúrstefnuhefðum, við sundurtætingu tungumálsins í myndrænar, hljóðrænar, félagslegar og málfræðilegar einingar sínar. Hann hefur gefið út tvær skáldsögur og fjórar og hálfa ljóðabók. Þá hefur hann hlotið verðlaun í Ljóðstafi Jóns úr Vör, fyrir ljóðið Parabólusetning , auk hinna erótísku stílverðlauna lestrarfélagsins Krumma, Rauðu fjöðrina , fyrir kafla úr skáldsögunni Eitur fyrir byrjendur og íslensku þýðingaverðlaunin fyrir Móðurlausa Brooklyn eftir Jonathan Lethem.

Eiríkur er búsettur í Helsinki og á Ísafirði, þar sem hann vinnur í þremur bókum. Fyrst má nefna bókina Af steypu , sem hann ritstýrir ásamt Kára Páli Óskarssyni, úr ritröð afbóka Nýhils; þá er það Ú á fasismann - og fleiri myndljóð , sem kemur út hjá Máli og menningu í haust; og loks skáldsagan Rasmus Klumpur & pólitíski ofstopinn , sem kemur út hjá Máli og menningu haustið 2009.

Þá er von á nokkrum þýðingum á komandi vetri, ber þar hæst ljóðasafn Allens Ginsberg.

Frekar má fræðast um bækur Eiríks með því að smella hér .