útláísl

- heimsfræg skáld frá útlöndum skrifa á tungu Snorra Sturlusonar!

Tíu þúsund tregawött gerðu víðreist fyrir þetta fyrsta tölublað sitt- fóru í útrás, gerðu strandhögg, rændu og rupluðu - og báðu hóp útlenskra ljóðskálda að athuga hvort ekki væri þeim mögulegt að skrifa á íslensku, svona eins og allt almennilegt fólk. Útlendingar eru upp til hópa hið vinalegasta fólk, eins og víðreist fólk á borð við ritstjórn Tíu þúsund tregawatta gerir sér jafnan ljóst, og brugðust hinir erlendu því fjarska vel við bónum og betli tregawattaðra. Þátttakendur í tilraun þessari eru sjö talsins, allt frá Danmörku til Finnlands til Kanada (og eiginlega bara þaðan).

a.rawlings - Maður hittir Eðli

Marko Niemi - Ljóðsvig og Goshver

Hugh Thomas - forsetningar

Gary Barwin - Skalla-Grimr

Projektet Anonyme Breve - Fjögur kvæði

derek beulieu - ljóð á íslensku

Jon Høyer - „Hestur minn íslenskur...“