Undir þessari regnhlíf er önnur regnhlíf

Það var rigning & þau stóðu saman
undir strætóskýlinu þó hún héldi
á doppóttri regnhlíf sem enn var
opin & það draup af henni. Hann hugsaði,
ég þori að veðja að undir pilsinu hennar er
annað pils, eins konar millipils
& svo undirkjóll & nælonsokkar
festir með sokkabandi með sveigjanlegum
hnöppum & gúmmíhöldum innundir
mittisteygjunni & undir kápunni
hennar er peysa & svo
skyrta & svo nærskyrta
& svo brjóstahöld & svo
heldur betur
nokkuð.


Shanna Compton