Áþreifanleg stromplík bygging, þar sem eru samtals níu
færslur. Helvíti þýðir að allt er endurtekið,
ekkert færist áfram. Helvíti er frosið.
Hvað verður af öllum feitu átvöglunum þegar þau andast?
Helvíti er sloppið, mjög algeng spennumynd,
úr ógæfusálunum flæddu kristalar, og þær tókust í hendur.
Kannski er helvíti fallegt eftir allt saman. Mikið helvíti!
Með árunum hef ég komist að þeirri niðurstöðu
að í þessu landi finnist ekkert réttlæti.
Dyrabjallan hringir. Í dyrunum eru tveir
snyrtilega klæddir mormónar.
Helvíti er frosið á jörðu niðri.
Kommentahlutinn bilaði á sama tíma.
Helvíti í fjölskyldunni eða á himnum, á hvorum staðnum
ætlar þú að eyða þinni eilífð? Ég hef reynt að þola
mig sjálfa og skilja, hví ég girnist hið ófáanlega
í skutinn. Sannkallað andkapitalískt helvíti
hefur sloppið laust. Hvað gerist eftir þetta?
Við fórnuðum sex flöskum, ekkert
gerðist og útsendingartímann þarf að fylla.
Mundu að fyrir grunnmasókistanum er himnaríki helvíti.
Er helvíti kaldur eða heitur staður?
Ef helvíti er fullt, verður maður að standa upp
og bíða síns tíma. Hvað gengur að þér?
Veistu það ekki? Ef að helvíti er frosið,
hefur Finnland unnið Júróvisjón.
Rita Dahl