Fátækur og vitlaus
Ég má ekki borða kjötlokur, því kjötlokur eru of góðar fyrir mig. Ég má ekki borða ávexti eða grænmeti. Eða súkkulaði. Eða rjómaís. Ég ét linan kúk. Ég er fátækur og vitlaus. Mér hefur verið riðið, mörgum sinnum. Ég er í þessari tætingslegu, gömlu skyrtu, svo auðvitað fer ég hjá mér, en gallabuxurnar mínar eru splúnkunýjar, útvíðar að neðan. Sjáðu hérna: ég er með blekbeinagrind inni í eyranu, inni í munninum, innan á augnlokinu. Hvernig stendur á því að svona margir geta talað svona góða ensku, með fullkomna málfræði, og enga aðskotahluti, eins og til dæmis hvítkálsleifar, á milli þráðbeinna tannanna? Og hvernig getur hár þeirra lyktað svona vel? Og ég er fátækur og vitlaus?
Linh Dinh