MySpace er krípí

Og því hef ég komist að þeirri niðurstöðu að MySpace sé krípí.
Þú spyrð þig kannski hvernig ég hafi komist að þessu.
Nú, það skal ég segja þér.

Ég hef komist að því að fólk sem ég hef aldrei hitt veit hver ég er.
Meira að segja ég hef látið gabbast til að búa til uppblásinn vin.
Hvað halda þau að gerist?

Ég er magnaður gaur sem býr og heldur sig í Stokkhólmi, Svíþjóð.
Ég er áreiðanlegasta manneskja sem ég þekki.
Ég elska tónlist, ketti og ljósmyndun.

Ég á erfitt með að taka ákvarðanir. Ég hlusta á Bob Dylan.
Ég hef uppi áform um að losna við miðvesturríkjahreiminn bráðum.
Það sem ég á erfiðast með að fatta í heiminum er NASCAR.

GRRRRRRR, hallóóóóóóó.
Ég er gluggagægir
og skammast mín ekkert.

Þú ert lífvera sem varst sköpuð til að hljóta ást og umhyggju.
Mér fannst bara að þú ættir að vita
að í dag áttu afmæli

MySpace er krípí og fullt af myndum
þar sem allir eru með sítt hár.
Það er þetta sem ég er að meina!

Ein stelpa sem ég var að tala við
reyndist vera 14
eftir að hafa sagst vera 18.
Ein stelpa sem ég var að tala við
reyndist vera 15
eftir að hafa sagst vera 19.

Ef þú ferð á síðuna og það stendur
að hún sé 14,
vertu rólegur, við höfum ekki misst vitið.

MySpace er krípí og skrítið.
Ekki get ég ímyndað mér hvernig þeir ætla að fara að því að laga þetta.
Ég skil ekki hvers vegna ég get ekki eytt því.

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að MySpace sé krípí
og ég kann ekki lengur við það.
Ég ætti ekki að tíma mínum í MySpace.

Ég ætti alls ekki að fara á MySpace.
Því að MySpace er krípí og gerir mig leiðan.
MySpace gerir mig krípí.

Ég hjarta hópsex.
Flutghesticn.
Ég stafsetti þetta vitlaust.

Ég ýtti á backspace takkann rétt í þessu.
Það sást bara í augnablik.
MySpace er skrítið þannig.


K. Silem Mohammad