Opið bréf til Georges Bataille
Kæri herra Bataille,
ég vildi bara skrifa þér
til að segja að bók þín,
Saga augans,
gekk alveg fram af mér.
Sérstaklega þótti mér senan
þegar stúlkan stingur auga prestsins
fyrst upp í leggöng sín
og síðan upp í endaþarminn,
afar ósmekkleg
(ég hef n.b. ekki lesið bókina
og tel mig heldur ekki þurfa þess).
Þetta var algjört fagurfræðilegt
hryðjuverk.
Til hamingju,
þér tókst heldur betur
að hneyksla mig.
Þinn,
Kári Páll Óskarsson