Bókin Áræði er samstarfsverkefni nokkurra skálda og myndlistarmanna sem hófst fyrir um það bil þremur árum og stendur enn yfir. Bókin lifir sínu eigin lífi og hefur ferðast vítt og breitt um borgina, og reyndar langt út fyrir hana líka, í félagi við grænan tússpenna.

Upphaf verkefnisins má rekja til bókaþjófnaðar. Einn af höfundum Áræðis, sem ekki er hægt að nafngreina, stóð í flutningum og þurfti að losna við pappakassa sem notaðir voru undir búslóðina. Eftir mikla leit að ruslagámi fann hann loksins gám á lóð Borgarbókasafnsins. Þegar hann opnaði gáminn blasti við honum hrúga af gömlmu bókasafnsbókum. Þessi ágæti maður er mikill bókaunnandi og brá því á það ráð að ræna „rusli“ í eigu borgarinnar. Kassarnir sem til stóð að fleygja fylgdu okkar manni því aftur heim, nema að þessu sinni fullir af ólánssömum bókum.

Stundum er sagt að maður eigi ekki að dæma bækur af kápunni. Í stuttu máli sagt gerðum við það einmitt við eina af bókunum úr ruslagámnum. Bókin hét Á bláþræði og af titlinum og af kápunni að dæma virtist þetta skelfileg bók. Þess vegna kviknaði sú hugmynd að skapa nýtt verk úr henni. Græni tússpenninn var tiltækur og fyrr en varði hafði titill bókarinnar breyst úr Á bláþræði í Áræði. Síðan þá hefur hver kaflinn á fætur öðrum hlotið nýja merkingu.

Textarnir tveir sem hér birtast eru „Um víkingana“ eftir Björn Unnar Valsson og „Ró“ eftir Inga Björn Guðnason. Auk þeirra eiga eftirtaldir texta í bókinni: Ágúst Guðmundsson, Björk Þorgrímsdóttir, Daníel Gunnarsson, Eiríkur Örn Norðdahl, Finnbogi Erlendsson, Friðrik Svanur Sigurðarson, Hallur Karl Hinriksson, Haukur Már Helgason, Haukur Ingvarsson, Ólafur Þórarinsson, Sölvi Signhildar Úlfsson og Örvar Þóreyjarson Smárason.