Iceland Report on the Observance of Standards and Codes
Síðan má spyrja sig – er þetta list? »
Nina Sös Vinther á ljóðahátíð
Les á íslensku Les á dönsku »
Öskrum: Lexiconjury
Lexiconjury kvöldið var frábært – fékk að lesa með hinum goðsagnakennda Paul Dutton, var klappaður upp – og daginn eftir var ég látinn semja nýtt ljóð með engum fyrirvara. Myndbönd má sjá hér. Enn í Toronto – í kvöld er það þjófnaður með Kenny G. og svo alls kyns góðgæti í boði út vikuna. »
Ný myndbönd og uppfærslur
Hef sett inn ný myndbönd frá Brussel og New York, auk þess sem ég hef lagað ljóðmyndasvæðið á síðunni. Þá má lesa ferðasögur frá Brussel og New York respektíft hér og hér. Hægt er að skoða ljóðmyndasvæðið hér, myndbönd hér og konkret hér. Næst á dagskrá er að uppfæra hljóðaljóðaspilarann – og svo styttist... »
Með litlum pissuköllum
Millilendingarsólahringurinn minn í Helsinki var botnlaust kaos. Ég svaf í stuttum lotum á vitlausum tímum og ranglaði um húsið viðutan og vitlaus af þreytu. Leigði mér hasarmynd, lá í sófanum og blikkaði glyrnunum á meðan Clive Owen aflífaði mannsbyggðina, einn koll í einu, og ég hafði mestar áhyggjur af því að sofa yfir mig... »
Í borg eplanna
Fyrir tveimur vikum síðan fór ég með rútu út á flugvöll meira og minna sannfærður um að Ameríka væri ekki til, og ef hún væri til, þá myndi hún aldrei hleypa mér inn í sig. Ótrúlegustu hryllingssögur bergmáluðu í höfði mér, um fólk fast í vegabréfsskoðun á meðan ristilskoðandi tollverðir hringsnúa í sér augunum... »
Myndbönd frá Árósum
Þrátt fyrir fáein mismæli og einstaka tæknivandamál gekk upplesturinn í Árósum mjög vel. Þetta var í sjötta skiptið sem Litteratur på scenen og Geiger útgáfan standa fyrir Lyd+Litteratur hátíðinni, og það sem ég sá af dagskránni var stórgott. Ég las upp tvö kvöld í röð. Fyrra kvöldið án undirleiks og það síðara með tölvuna... »