Kurrar í kólibrífugli » UKON

Ljóðahátíð Nýhils
Valur Brynjar Antonsson les á ljóðahátíð 2009. Myndina teiknaði Tómas Ponzi - tap.blogspot.com.

Á dögunum missti ég af ljóðahátíð Nýhils. Sem var leiðinlegt á alla mögulega kanta, þó ég hefði raunar hvergi viljað vera nema einmitt hér var það ekki vegna þess að ég vildi missa af ljóðahátíð. En ljóðahátíð er löngu orðin fullorðin og spjarar sig ágætlega án mín. Ég hef þó í huga að missa ekki af henni mikið oftar.

Ég hugga mig við að fyrir utan tvö skáldanna, Vivek Narayanan og Pelle Sigsgaard, hef ég séð allt þetta fólk troða upp. UKON kom fram á Oslo Poesifestival ásamt hinum æðislegu Njurmännen, og ég hef meira að segja gert útvarpsinnslag um hann. Ciu Rinne hef ég lesið með í Helsinki og Malmö, Dmitry Golynko las ég með í Helsinki, Angela Rawlings hefur áður verið á ljóðahátíð og ég hef hitt hana í Kanada og í Brussel, Morten Søndergaard var á Oslo Poesifestival og ég las með Mette Moestrup í Ulvik í Noregi. Það var helst ég saknaði þess að sjá Anton Helga ekki lesa upp.

Ljóðaþýðingar og ljóð á íslensku má m.a. lesa í nýju Tregawöttunum, sem Haukur Már ritstýrði. Auk þýðinganna sem má finna í Tregawöttunum eru nokkrar sem finna má á þessari síðu. Ást og stærðfræði eftir Mette Moestrup og Án titils eftir UKON. Auk þess brot úr Víður lúr fyrir fiðrildafræðinga eftir Angelu Rawlings. Þetta og margt fleira má finna með því að smella á ljóð/ljóðaþýðingar hér efst á síðunni.

Meðal viðburða á hátíðinni var myndbandsljóðasýning sem ég fékk að stýra. Fæst verkanna er hægt að horfa á á netinu en hér eru samt nokkur:

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="425" height="344" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/6LsMoUtBlDk&hl=en&fs=1&" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="344" src="http://www.youtube.com/v/6LsMoUtBlDk&hl=en&fs=1&" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

Tyger eftir William Blake.

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="425" height="344" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/2LQntvlDjXE&hl=en&fs=1&" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="344" src="http://www.youtube.com/v/2LQntvlDjXE&hl=en&fs=1&" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

The Death of William S. Burroughs eftir John Giorno og Antonella Faretta.

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="425" height="344" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/uX2ChhMiOmk&hl=en&fs=1&" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="344" src="http://www.youtube.com/v/uX2ChhMiOmk&hl=en&fs=1&" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

Just say no to Family Values eftir John Giorno og Antonella Faretta.

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="425" height="344" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/IyDkM1z_2us&hl=en&fs=1&" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="344" src="http://www.youtube.com/v/IyDkM1z_2us&hl=en&fs=1&" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

1. des ávarp forsetans eftir Jón Örn Loðmfjörð.

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="425" height="344" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/k2ba4XfxNoA&hl=en&fs=1&" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="344" src="http://www.youtube.com/v/k2ba4XfxNoA&hl=en&fs=1&" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

Margræðni málsins eftir Jón Örn Loðmfjörð.

Og síðast en ekki síst, Höpöhöpö Böks eftir sjálfan mig:

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="425" height="344" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/hc9RQBk61Os&hl=en&fs=1&" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="344" src="http://www.youtube.com/v/hc9RQBk61Os&hl=en&fs=1&" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

Loks vil ég benda á teikningar Tómasar Ponzi frá hátíðinni.

Ukon – Seiður og hélog
<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="400" height="27" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="bgcolor" value="#ffffff" /><param name="flashvars" value="playerMode=embedded" /><param name="src" value="http://www.google.com/reader/ui/3247397568-audio-player.swf?audioUrl=http://www.norddahl.org/geymsla/ukon.mp3" /><param name="wmode" value="window" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="400" height="27" src="http://www.google.com/reader/ui/3247397568-audio-player.swf?audioUrl=http://www.norddahl.org/geymsla/ukon.mp3" wmode="window" flashvars="playerMode=embedded" bgcolor="#ffffff"></embed></object>

Innslag mitt í Seið og hélog um sænska skáldið Ulf Karl Olov Nilsson.

Ulf Karl Olov Nilsson
Án titils

Þér finnst allt vont en það á eftir að versna.

Þú heldur að þú sért gáfaður en það ertu ekki.

Þú heldur að þú sért áhugaverður en þú ert leiðinlegur.

Þú heldur að þú sért sætur en þú ert ljótur.

Þú heldur að þú sért ljúfur en þú ert grimmur.

Þú segist vera lagður í einelti en það ert þú sem leggur aðra í einelti.

Þú heldur að þú kunnir frönsku en þú kannt hana ekki.

Þú heldur að þú þroskist og verðir betri en þú lærir ekki neitt.

Þú segist vera ástfanginn en þú virkar ekki ástfanginn.

Þú heldur að þú eigir eftir að hressa þig við en það verður einmitt hinsegin.

Þú segist elska börnin þín en það er bara kjaftæði.

Þú segist ætla að taka þér frí en þú átt enga frídaga eftir.

Þú segir að þér sé hótað en það ert þú sjálfur sem hótar.

Þú vonar að þú eigir eftir að þéna meiri peninga seinna meir en við vitum nú öll hvernig fer með það.

Þér finnst náttúran óhrein en allt á eftir að verða ennþá sóðalegra.

Þér finnst veröldin vera óréttlát en það er ekkert í samanburði við hvernig hún verður.

Þér finnst gatið á ósonlaginu vera stórt en það á eftir að verða ennþá stærra.

Þú heldur að þú sért gott skáld en það ertu ekki.

Þú segir að þú sért graður en það er bara ímyndun.

Þér finnst veðrið vera vont en það verður verra.

Þér finnst að nú sé mikill hryllingur og stríð í gangi en þetta er bara byrjunin.

Þér finnst þú ekki vera tiltakanlega feitur en það ertu.

Þú segist vera hamingjusamur en þú virkar ekki hamingjusamur.

Þú heldur að þú lifir en þú ert dauður.

Þú heldur að fólk fíli þig en það gerir það ekki.

Þú heldur að þú sért vel metinn starfskraftur en satt að segja ertu einskis virði.

Þú segir að aðrir séu árásargjarnir en það ert þú sem ert árásargjarn.

Þú heldur að þú sért kúl og kreisí en í sanni ertu feik.

Þú heldur að þú sért lærður og vitur og skrifir vel en í raun ertu fullkomlega óáhugaverður.

Ulf Karl Olov Nilsson

Úr einu í annað í hitt
Þessi síða hefur verið í hálfgerðum lamasessi síðustu tvo-þrjá sólarhringana, vegna þess að hýsingarkompaníið á í einhverjum tilvistarvanda. Ég geri ráð fyrir að það hafi farið framhjá flestum. En mér sýnist þetta ganga ágætlega núna.

Mér skilst að Ú á fasismann sé að verða búin á lager forlagsins. Það þýðir svo sem ekki neitt, þetta er svo lítið upplag að það gæti sem best allt legið á borðum bókaverslana og skilað sér aftur eftir jól. En það gæti líka verið góðs viti og kannski ráð að benda þeim sem eru staðráðnir í að verða sér úti um eintak á að bregðast við fyrr en síðar.

Hetja gærdagsins, Jón Bjarki Magnússon, á sér annan vinnuveitanda en DV. Hann er nefnilega starfsmaður Nýhils – gott ef það heitir ekki hreinlega framkvæmdastjóri. Hann var ráðinn strax og hann kom heim frá Kína, og forveri hans, Gísli Hvanndal, var sendur til Kína í staðinn. Ég lýg þessu ekki, þetta er allt dagsatt. Ég gæti trúað því að Jón Bjarki eigi einhvers staðar upptöku af okkur að ræða þetta í einlægni.

En mikið djöfull er hann séður. Að hafa baktryggt sig með teipinu. Ég tók ofan hattinn og hef enn ekki skilað honum aftur á sinn stað.

Ég las loksins Konur eftir Steinar Braga í gær. Það er engu upp á hana logið. En svo fannst mér líka flestar aðrar bækur Steinars magnaðar, og ég er ekki alveg viss um að Konur fari í fyrsta sæti – Hið stórfenglega leyndarmál heimsins og Áhyggjudúkkur etja þar kappi við hana. Etja kappi við þær. Konurnar.

Er líka að lesa Singular Pleasures eftir Harry Matthews – bandaríska oulipistann – í sænskri þýðingu (Enskilda nöjen, heitir hún). Þetta eru prósaljóð um fólk sem stundar sjálfsfróun við hinar undarlegustu aðstæður á hinum furðulegustu stöðum. Það er eitthvað viðeigandi við að lesa þannig á sænsku. Það er meira rými undir pervertískar víddir á sænsku en ensku.

Endurles Synopsis eftir Ulf Karl Olov Nilsson, vegna innslags í Seið og hélog sem ég verð með um hana í janúar, og er enn jafn fullur lotningar.

Og hef loksins gefið mér tíma til að hella mér í Info Ration eftir Stan Apps – sem er yndislegt ljóðskáld.

Þá barst mér pakki í dag. Ellefu tölublað tímaritsins Ský. Nei, ekki þessu sem maður fær í flugvélum, heldur hinu sem Óskar Árni og Jón Hallur ritstýrðu fyrir hátt í tuttugu árum síðan. Það er í sem skemmstu máli yndislegt tímarit. Auk alls kyns ljóðaþýðinga og texta frá fólki sem síðar varð að framvarðarhöfundum Bjarts (aðallega, en líka annars staðar), má þar finna ljóð eftir Ágúst Borgþór og Úlfhildi Dagsdóttur (nei nei, ég læt þetta vera, mun ekki klæða mig í Pol Pot búning og lesa þetta upp á Youtube, ég lofa – vildi bara segja frá þessu vegna þess að mér finnst það fyndið).

Annars er himinninn hér í Helsinki óvenju grár og þungbúinn í dag. Það er eins maður heyri reipi bæjarins herðast um svíra bæjarbúa. Mér finnst ekkert skrítið að Finnar eigi dálítið erfitt suma daga, þungbúnustu dagana. Eða að þeir gleðjist á sumrin. Maður þarf alveg að hafa sig allan við í svona veðri. En sem betur fer detta þeir inn annað veifið björtu dagarnir.