Seiður & hélog
Ég er hreinlega stanslaust í útvarpinu. Fjallað um Ú á fasismann í Seiði og hélogum dagsins, en þátturinn var tileinkaður nýjum ljóðabókum. Smellið hér til að hlusta. »
Dómur í Víðsjá
Hjalti Snær Ægisson fjallaði um Ú á fasismann í Víðsjá í vikunni. »
Fasisminn á Facebook
Ljóðabókin mín er komin með Facebook síðu. http://www.facebook.com/group.php?gid=47188822789&ref=mf »
Tilkynning: Ú á fasismann! – og fleiri ljóð
Ú á fasismann – og fleiri ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl er einstök myndljóðabók. Hér gefur að líta safn myndljóða þar sem stjórnmál eru beruð fyrir börnum, framtíð bókmennta kortlögð á einfaldan en átakalegan hátt, hér eru myndrænar framburðaæfingar, ljóðræn mótmæli, hvatningaorð til alþýðu svo hvín í svitaholunum, perlur úr ljóðaperlum Jónasar og það... »
Ú á fasismann
Vinna við ljóðabókina Ú á fasismann – og fleiri ljóð gengur vel og er von á bókinni frá Máli og menningu í haust. Í bókinni verða 20 myndljóð á fjörutíu síðum, og henni mun fylgja geisladiskur með hljóðaljóðum, meðal annars úr eldri bókum, sem ekki hafa komið út áður nema í beta-útgáfum á netinu.... »