Kurrar í kólibrífugli » Svíþjóð

Ég er svo mikilvægur
Í gær fór ég ásamt eiginkonu minni og tók þátt í svonefndri foreldragrúppu. Þar mættust verðandi foreldrar ásamt ljósmóður og fengu að læra ýmislegt. Horfa á myndband af fæðingu og svona. Fátt kom á óvart. Ég hef áður verið viðstaddur fæðingu (Þormóðs, frænda míns) og síðan er þetta í meginatriðum eins í bíó. Nema það tekur lengri tíma í raunveruleikanum og maður fær sterkari samúð með ópum.

Á feðrum er sífellt hamrað á þessu: Þið eruð svo mikilvægir. Svo ofsalega mikilvægir.

Þetta kemur jafnan í kjölfar þess að konurnar fá raunverulegar praktískar upplýsingar – sem er auðvitað ágætt fyrir feðurna að vita líka en fyrst og síðast eru þetta upplýsingar til að hjálpa hinni verðandi móður að taka ákvörðun um eitt og annað, verkjalyf, stellingar, æfingar og þar fram eftir götunum. Þegar búið er að fara í gegnum eitthvað eitt efni snýr ljósmóðirin (eða bókarhöfundur, greinarhöfundur eða annar viðkomandi sérfræðingur í faginu) sér að feðrunum og segir:

Þið eru svo mikilvægir. Svo ofsalega mikilvægir. Ni anar inte.

[Fólk er alltaf að tala sænsku við mig, hvernig sem á því stendur].

Nú er ég í sjálfu sér ekki frá því að þetta sé rétt að mörgu ef ekki öllu leyti rétt athugað. Ég held það sé afskaplega þægilegt að hafa einhvern sér nákominn til að vera með við fæðingu. En við skulum ekki heldur gleyma því að í ansi mörg þúsund ár voru karlmenn hvergi nærri og það var ekki fyrren fyrir fáeinum áratugum sem við uppgötvuðum sannindin um mikilvægi okkar karlmanna við fæðingu barna. Og þó ég sé nokkuð viss um að eiginkonu minni þætti afar leiðinlegt að fæða ein og yfirgefin – eða sem sagt án mín en með hjúkrunarfólki – þá efast ég um að það myndi jafnast á við súrindin sem gegntækju mig ef ég missti af fæðingunni, af einni eða annarri ástæðu.

Ég held sem sagt að fæðingin sé mikilvægari fyrir mig en ég er fyrir hana.

Í dag var sagt frá því í Västmanlands Läns Tidning að feður hafi verið útilokaðir frá ómskoðun vegna hættu á svínaflensusmiti. Einnig kemur fram að utanaðkomandi fái almennt ekki að vera með í neinu. Ég fékk auðvitað dálítið áfall – en Nadja hringdi á spítalann og í ljós kom að feður fá nú samt að vera með við fæðingu. Sem auðvitað undirstrikar mikilvægi okkar, en er samtímis erfitt að réttlæta sé raunveruleg hætta á svínaflensufaraldri inni á spítölum.

Samkvæmt ljósmóðurinni er mikilvægi mitt eftir fæðinguna síðast en ekki síst að vera þolinmóður við konuna mína og halda sambandinu í einu lagi á meðan hún einhendir sér í að vera móðir. Þessu var lýst með eftirfarandi tveimur gröfum – það fyrra á við um pabbann og það síðara móðurina og þau sýna hvernig við skiptum upp tilvist okkar.

Pabbinn skiptir tíma sínum jafnt. Hann er 33% hann sjálfur, 33% ástmaður konu sinnar og 33% pabbi.

Móðirin er 75% móðir. Hún er 22% hún sjálf og 3% ástkona mannsins síns.

Pabbinn, áður en hann kynnist mömmunni, er heill og óskiptur hringur. Síðan skiptist hringurinn í tvennt og loks í þrennt þegar fyrsta barn fæðist. Það sama gildir um mömmuna. Ekki var farið út í það hvort hringurinn skiptist meira við næstu börn.

Maður kannski byrjar á því að spyrja sig hvers vegna hringirnir eru tveir, frekar en þrír eða einn. Hversu mikið barn er barnið og hversu mikið er barnið það sjálft? Og hvers vegna er fjölskyldunni skipt upp í tvo hringi? Væri ekki nærtækara að fjölskyldan væri annað hvort einn hringur eða jafn margir og meðlimir fjölskyldunnar? Síðan spyr maður sig hvort að þann tíma sem foreldrarnir eru foreldrar séu þeir ekki elskendur hvors annars? Erum við dæmd til að skiptast á – mun ég aldrei fá að skipta um bleyju á barninu mínu með konunni minni? Eða fara með þeim báðum eitthvað? Verð ég læstur inni í svefnherbergi á meðan konan mín og barnið lesa saman og hlusta á tónlist? Verð ég kannski sendur út?

Loks má byrja á aðalatriðinu og velta því fyrir sér hvað vakir fyrir heilbrigðisstarfsmanni í hinu jafnréttissinnaða sósíal-demókratíska ríki Svía sem býður upp á aðra eins forneskjulega kynjahlutverkaheimsku – og ber þessa rassvasafélagsfræði á borð eins og um sé að ræða vísindi?

Þegar konan mín spurði hvernig fólk hefði komist að þessari niðurstöðu, þessari skiptingu, var svarið eitthvað á þá leið að því gæti ljósmóðirin því miður ekki svarað enda væri um að ræða djúpari sálfræði en hún hefði menntun til að útskýra. En svona væri þetta sem sagt, samkvæmt helstu sérfræðingum. Sífellt var hamrað á því að móðirin lifði í symbíos með barninu eftir fæðingu (en ekki bara fyrir fæðingu) en svo virðist sem pabbinn fái engan symbíos. Hann á bara að fara út með ruslið, elda kvöldmat og vera þolinmóður gagnvart móðurinni sem annars vegar fær þunglyndisköst og hins vegar lokar sig af í sínum eigin heimi – sínum eigin symbíos – með barninu.

Í næstu viku er aftur foreldragrúppa. Þá verður kynjaskipt, einsog í kynfræðslunni í grunnskóla, og við strákarnir fáum að ræða við „karl“. Venjulega hittir maður hann víst tvisvar en nú verður það bara eitt skipti enda vinnur hann við eitthvað annað. Eftir reynslu mína hingað til af félagsvísindum um barneignir og uppeldi vona ég að hann sé alls ekki mjúkur félagsfræðingur sem ætlar að undirstrika í þúsundasta skiptið hversu mikilvægur ég sé. Ég vona að þessi vinna, sem okkur hefur verið sagt að hann stundi en ekki hver er, sé sjómennska. Eða hann sé boxari. Mig vantar nýtt sjónarhorn á feðrahlutverkið. Eitthvað handan við húmanistískar kreddur (sem eru ágætar, en dálítið litlausar og hysterískar einar og sér).

Ég er líka hræddur um að verði ég einu sinni enn upplýstur um mikilvægi mitt hætti ég að trúa því að ég skipti nokkru máli. Ef þetta væri satt þyrfti ekki að hamra svona á því.

Sjáðu sæta kúrbítinn minn
Spaugstofan!

Það var einhver að gera lítið úr sænskum húmor – einhvers staðar, einhvern tíma (ég hef bara ekki tíma til að leggja svonalagað á minnið). Það var Íslendingur sem sjálfsagt hafði tröllatrú á íslenskum húmor. Liggur án nokkurs efa í flissmóki í hvert einasta sinn sem hann sér Icelandair auglýsinguna með útlendingnum. Fær aðsvif yfir áramótaskaupinu. Skríkir af kátínu þegar hann hlustar á Gulla Helga og Svala. Jón Axel og hvað þeir nú heita allir. Allir með öllum.

Íslendingar eru jafnan á því að þeir hafi góðan húmor. Hressan húmor. Íslensk fyndni er algert æði. Svona Tíu litlir negrastrákar. Eða svona fjórréttað? Spælt egg og 3 Tuborg!

En Íslendingar hafa svo sem haldið ýmislegt fleira um sjálfa sig sem ekki hefur staðist. Einsog að bjúgu séu delikatess og að þeir séu í (víkinglegu) eðli sínu heimsmeistarar í fjárfestingum. Að þeir séu mikil bókmenntaþjóð.

Svíar (eins langt og mér þykir þægilegt að fullyrða um heila þjóð) eru vissulega upp til hópa dálítið innísig. En Íslendingar hafa aldrei átt neitt sem er jafnt fyndið og Mia och Klara.

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/eKiBhw2CxXs&hl=en&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/eKiBhw2CxXs&hl=en&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

Djáknaberg
Í dag fórum við í gönguferð um Djáknaberg sem liggur hér við hliðina á húsinu okkar. Djáknabergið (eða hóllinn) er ekki kennt við íslenska djákna (frekar en Vesturás á við ás) heldur á orðið hér við menntaskólanema og í þessu tilfelli menntaskólanema við Rudbeckianska Gymnasiet, sem lögðu stund á leikfimi og vopnaskak í garðinum.

Garðurinn er fullur af tilhöggnum steinum með alls kyns áletrunum, einum fimm hundrað talsins, aðallega á gamalli sænsku en einnig á latínu og íslensku.

(ég er ekki með nein dæmi um latínu, enda voru þau ekki jafn tíguleg – ora et labora (biðjið og vinnið) og annað álíka. Margar áletranirnar voru nafnamerkingar – hinn og þessi Svinhufvuden, Swedenborgar, Silverhjälmar og annað álíka aðalsslekti. En sumar voru jarðbundnari skilaboð eins og þessi hér:

Þarna stendur sem sagt: Försök o va folk. Reyndu að vera manneskja. Þetta gæti nú bara átt heima í hávamálum.

Hönnuðurinn á bakvið garðinn og áletranirnar var Sam nokkur Lidman sem var uppi á nítjándu öld. Nöfnin á steinunum eru nöfn aðalsins og annarra merkismanna – nema þau sem eru bara nöfn vina hans. Fyrir tæpum tuttugu árum síðan var ákveðið að á hverju ári yrði haldin samkeppni meðal skólafólks um eina nýja áletrun og vann stúlka að nafni Johanna Nyström fyrsta árið með línunni: Hér mun ég ætíð standa en þú skalt fara í veg og lifa. Ekki veit ég hvort það var vegna óánægju með þessa speki Johönnu eða hvort einhver almenn íhaldssjónarmið hafa verið á ferð en það var í öllu falli aldrei haldin önnur keppni og er þetta því eina áletrunin í garðinum fyrir utan þær sem Lidman fann upp á. Og svo auðvitað auglýsingar og aðrar slíkar merkingar – eins og þessa hér:

Það sést ekki vel á þessari mynd en grænu stafirnir undir ruslakarlinum mynda orðið Molok. Molok er finnskt ruslakompaní frá Nokia. En nafnið er fengið af eldguðnum Mólok sem meðal annars er nefndur í Paradísarmissi Miltons og Ýlfri Ginsbergs. Mólok er mikill myrkraprins sem rænir börnum af mæðrum sínum og gott ef hann étur þau ekki líka. Grikkir fórnuðu börnum sínum í eldinn fyrir Mólok. Ekki veit ég hvað vakir fyrir Finnunum í Nokia en það er sjálfsagt ekkert gott.

Rétt utan við þennan aðalsgarð, við Litlubrú yfir Svartá, fann ég svo aðra áletrun sem mér fannst ekki síður skemmtileg.

Himnaríki fyrir prestana,

helvíti fyrir kapítalistana,

jörðina fyrir öreigana!

Meiri Svíþjóð
Það rignir í Vesturási eftir stanslaust hávaðasólskin frá því við komum á laugardag. Hér lóna ég unaðsdrukkinn á kafi í sænskum lúxus. Í matvöruversluninni minni er boðið upp á 20 ólíkar mjólkurtegundir, þ.á m. sérstaka mjólk til að hita í kaffi latté. Allt kostar minni pening en í Finnlandi (þó ekki jafnist það á við þriðjaheimsprísana á Íslandi). Það eru svalir á íbúðinni, stórir opnanlegir gluggar í öllum herbergjum, hátækni eldavél og stórt eldhúsborð.  Flutningskassarnir eru flestir tómir, búið að setja saman hillur, tengja hljómflutningsgræjur og raða í skápa (að mestu). Í dag eldaði ég meðal annars omelettu með ferskum kartöflum og gulrótum (í hádeginu) og fjólumóra í tómata- og ediksósu (í kvöldmat).

Lífið í Svíþjóð er sem sagt ein paradísarvist. Raunar rennur mig í grun um að orsökina fyrir öllum þessum lúxus sé að finna í eðlislægu nöldri Svía. Þeir kvarta svo mikið að það er varla hægt að bjóða upp á neitt nema það sem er algerlega fullkomið. Nöldrið kemur auðvitað í veg fyrir að þeir njóti þess til fulls. En við útlendingarnir njótum hins vegar góðs af því. Ég er Íslendingur og geri ráð fyrir hálfkæringi í veröldinni, vegna þess að ég er alinn upp við það. En Svíarnir eiga ekkert að bjóða mér nema það allra besta.

Í dag hlustaði ég á útvarpið. Þar var meðal annars þáttur á ensku – nokkurs konar Orð skulu standa (nema léttari). Og síðan var þjóðarsál þar sem bar hæst er kona nokkur hringdi inn til að kvarta undan þeim fordómum sem áflogahundar þurfa að þola.

Við bregðum okkur úr bænum í brúðkaup á næstu helgi. Þegar við komum aftur ætla ég í frí. Ég hef ekki tekið mér frí síðan … úff. Ég man ekki einu sinni hvenær ég tók mér frí síðast. Varla síðan ég flutti aftur frá Íslandi fyrir tveimur og hálfu ári. Og þar áður eyddi ég flestum fríum í að skrifa og þýða. En jæja. Vonandi eina viku og kannski jafnvel heilar tvær.

Vesturás
Við komum til Vesturáss í morgun. Bærinn, sem er á stærð við Reykjavík, liggur vestan við Baðlundsás, en hefur nafn sitt ekki af honum heldur er það afbökun á Vestri Árósum. Eystri Árósar eru þá Uppsalir. Hér má meðal annars finna elsta menntaskóla í Svíþjóð, Rudbeckianska Gymnasiet, frá árinu 1623, og hæsta kokteilbarinn, Sky Bar, sem er á 24. hæð í húsi sem nefnist Skrapan. Sá bar er í sumarfríi og við fórum því á næsthæsta kokteilbarinn í Svíþjóð, Karlsson på taket (Kalla á þakinu). Hann er á 23. hæð. Ég geymi kokteilana þar til Sky Bar opnar aftur og fékk mér bara bjór.

Ég hef verið að kynna mér þetta og hef meðal annars komist að því að hér fannst fyrsta sænska tilfellið af kúaflensu og hér var fataverslunarkeðjan H&M stofnuð. Ég vissi fyrir að skáldið Tomas Tranströmer hefði búið hér megnið af ævi sinni en ekki að rapparinn Promoe væri héðan.

Um þriðjungur íbúana fer á reiðhjóli til vinnu og hér hefur enginn verið tekinn af lífi (af yfirvöldum) síðan árið 1900. Hér ættu allir að búa.