Tag Archive
Ég er svo mikilvægur
Í gær fór ég ásamt eiginkonu minni og tók þátt í svonefndri foreldragrúppu. Þar mættust verðandi foreldrar ásamt ljósmóður og fengu að læra ýmislegt. Horfa á myndband af fæðingu og svona. Fátt kom á óvart. Ég hef áður verið viðstaddur fæðingu (Þormóðs, frænda míns) og síðan er þetta í meginatriðum eins í bíó. Nema... »
Sjáðu sæta kúrbítinn minn
Það var einhver að gera lítið úr sænskum húmor – einhvers staðar, einhvern tíma (ég hef bara ekki tíma til að leggja svonalagað á minnið). Það var Íslendingur sem sjálfsagt hafði tröllatrú á íslenskum húmor. Liggur án nokkurs efa í flissmóki í hvert einasta sinn sem hann sér Icelandair auglýsinguna með útlendingnum. Fær... »
Djáknaberg
Í dag fórum við í gönguferð um Djáknaberg sem liggur hér við hliðina á húsinu okkar. Djáknabergið (eða hóllinn) er ekki kennt við íslenska djákna (frekar en Vesturás á við ás) heldur á orðið hér við menntaskólanema og í þessu tilfelli menntaskólanema við Rudbeckianska Gymnasiet, sem lögðu stund á leikfimi og vopnaskak í garðinum. Garðurinn... »
Meiri Svíþjóð
Það rignir í Vesturási eftir stanslaust hávaðasólskin frá því við komum á laugardag. Hér lóna ég unaðsdrukkinn á kafi í sænskum lúxus. Í matvöruversluninni minni er boðið upp á 20 ólíkar mjólkurtegundir, þ.á m. sérstaka mjólk til að hita í kaffi latté. Allt kostar minni pening en í Finnlandi (þó ekki jafnist það á... »
Vesturás
Við komum til Vesturáss í morgun. Bærinn, sem er á stærð við Reykjavík, liggur vestan við Baðlundsás, en hefur nafn sitt ekki af honum heldur er það afbökun á Vestri Árósum. Eystri Árósar eru þá Uppsalir. Hér má meðal annars finna elsta menntaskóla í Svíþjóð, Rudbeckianska Gymnasiet, frá árinu 1623, og hæsta kokteilbarinn, Sky... »
