Hangs og leiðindi
Það er leiðinlegt að vera einn heima. Eiginlega þykir mér fátt leiðinlegra. Og nú er ég einn heima. Ég veit aldrei hvað ég á af mér að gera. Hef ekki eirð til að gera neitt. Sit bara og klóra mér og bíð, hangsa og bíð. Ég sem gæti verið í jólaboði Forlagsins. Á sunnudaginn... »
Menningarverðlaun DV
Ég spái því að Konur Steinars Braga fái Menningarverðlaun DV í dag. Það var út af fyrir sig stórfurðulegt að hún skyldi ekki tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og skýrasta sönnunin um að þar ráði klíkuskapur – kannski ekki öllu, en samt ansi mörgu. Nýhil er einfaldlega of lítill fiskur í tjörn Félags íslenska bókaútgefenda.... »
Ljúgðu Gosi, Ljúgðu
-gagnrýni á ljóðabók Steinars Braga en það er auðvitað lygi það er allt að fara til helvítis (vakna snemma; bls.39) Að níða íslenska ljóðlist verður fljótt staglkennt. Ég hef, í þessum vafasama tilgangi, skrifað þrjár greinar hér á nýhil. Til að vega upp á móti svartnætti neikvæðninnar, hef ég ákveðið að taka fyrir fáeinar... »