Ideósynkratísk nálgun á smámuni í stuttu broti í kafla í gamalli bók
- um upphafsorð ‘Mauvais sang’ úr ‘Une saison en enfer’ eftir Arthur Rimbaud í sex þýðingum I Þegar til stendur að meta hvort þýðingarverk hafi „tekist“ eru mælikvarðarnir oftar en ekki dálítið abstrakt og óljósir: Flæðir textinn, nær hann anda upprunalegu útgáfunnar, er þetta jafn góð póesía á upprunamáli og markmáli? Þegar skilningur manns... »
Sölvi og Rimbaud (húrra, húrra, húrra!)
Sölvi Björn er tilnefndur til íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir Árstíð í helvíti eftir Rimbaud – og er það vel verðskuldað. Bókin er einfaldlega fjári vel þýdd, og ekki auðvelt verk – og mun hvorutveggja tíundað í grein sem birtist í Tregawöttunum á næstu dögum. Ég átti ekki sæti í dómnefnd, þó ég hafi unnið í... »
Períóðulist
Fyrir fáeinum árum síðan kallaði ég Hermann Stefánsson períóðulistamann, í ritdómi um bókina Borg í þoku. Sjálfsagt var það aðallega meint í galsa, stríðni jafnvel – ég var sjálfsagt annað hvort að erta hann, egna hann eða hefna mín eftir að hann egndi, erti eða stríddi mér. Ef ég man þá tíð ekki kolvitlaust,... »
Menningarverðlaun DV
Ég spái því að Konur Steinars Braga fái Menningarverðlaun DV í dag. Það var út af fyrir sig stórfurðulegt að hún skyldi ekki tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og skýrasta sönnunin um að þar ráði klíkuskapur – kannski ekki öllu, en samt ansi mörgu. Nýhil er einfaldlega of lítill fiskur í tjörn Félags íslenska bókaútgefenda.... »
Hið fagra er fyrir innanhúsarkítekta
I Íslensk ljóðlist er að mörgu leyti, líkt og frændsystkini hennar um víða veröld, þjóðlegt fyrirbæri og sem slíkt er hún oft einangruð og hefur í gegnum tíðina jafnvel verið afundin gagnvart því sem kalla mætti „erlenda strauma“. Í Reykjavík er ekki heiglum hent að finna nýjar ljóðabækur frá Norðurlöndunum, utan þeirra allra mikilvægustu... »
Meira að drekka, minni búllsjitt
- um Gleðileikinn djöfullega eftir Sölva Björn Sigurðsson Ríflega 200 blaðsíðna ljóðabálkur Sölva Björns Sigurðssonar, Gleðileikurinn djöfullegi, hlýtur að teljast til tíðinda í íslenskri ljóðlist 21. aldarinnar, ef ekki hreinlega fyrir að vera fjári góður þá í það minnsta fyrir að vera einfaldlega það sem hann er: Ríflega 200 blaðsíðna ljóðabálkur í þríliðahætti ortur... »