Bútgáfur Nýhils: Fjórar smábækur
Nýhil gaf á dögunum út fjórar nýjar smábækur (bútgáfur) og eina þýðingu. Bækurnar eru Ég hata alla! eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, Það sem mér finnst helst að heiminum … eftir Ingólf Gíslason, Usli: Kennslubók eftir Dr. Usla, Sjálf kvíslast ég eftir Hildi Lilliendahl og Sori: Manifestó eftir Valerie Solanas í þýðingu Dr. Usla. Sú fyrstnefnda... »
Hvíslur eftir Frosta Friðriksson
Ljóðabókin Hvíslur eftir Frosta Friðriksson kom út árið 2007, gefin út af Norðanbáli og fyrir henni hefur sama og ekkert farið. Á bakkápu segir að Frosti þessi sé menntaður bakari frá Iðnskólanum og myndlistarmaður frá LHÍ, auk þess sem hann mun hafa numið leikmyndahönnun í Svíþjóð og Finnlandi. Það gerist orðið sjaldan að ég... »
Líf mitt – tilraun til sjálfsævisögu
Hin bandarísku sprokskáld (e. language poets) eru alræmd fyrir „erfiða“ texta – hliðskipaða og langa bálka, þunga aflestrar og fulla af textatætlum sem ekki er alltaf svo auðvelt að „setja saman aftur“ – þar sem ljóðmælandi er afbyggður, óljóst er hver mælir og hvað hann talar um frá einni setningu til þeirrar næstu. Samhengislaust... »
Blátt áfram rautt: gamalt, gleymt & gott
Konkretljóðabókin Blátt áfram rautt frá árinu 1981, eftir Ásgeir Lárusson myndlistarmann er eitthvert yndislegasta dæmi íslenskrar myndljóðlistar sem ég þekki. Bókin er samsetningur úr tungumálabrotum sem fengin eru héðan og þaðan – úr handbókum, dagblöðum, kennslubókum, glansritum, auglýsingum o.s.frv. – sem klippt eru saman til að skapa situationísk áhrif þar sem ólík en skyld... »
Stamað með augunum: Um Blert eftir Jordan Scott
Broca’s camel clutch grapple thalamux flux box tonsils fresh black box tongue scatter suckle polygon syllable collar pop mullet split end leg lock glottal lip off: Úr blert eftir Jordan Scott. Þegar ég var strákur leyfði pabbi mér að skrópa í skólanum þegar ég átti sem erfiðast með að tala og við fórum saman... »
Davíð Stefánsson, Sovétríkin og Cummings
Davíð Stefánsson er fenómen! Nei djók. Ég er að lesa ævisögu Davíðs Stefánssonar, Snert hörpu mína, eftir Friðrik Golgeirsson. Hún er áhugaverð um margt, en væri það kannski síður ef ég hefði vitað mikið um Davíð fyrir, sem ekki er almennur fróðleikur. Upplög bóka hans ansi eru til dæmis mögnuð fakta – á fjórða,... »
Neytendalögin
Neytendalögin (Konsumentköplagen) eftir sænska ljóðskáldið Idu Börjel er sprokmateríalískur texti – ljóðabálkur skrifaður eins og lagabálkur um samband kaupanda og lesanda, auk hins óræða þriðja – raddar sem er utanaðkomandi og ræðir við áðurnefndar persónur, kaupanda og seljanda. Þannig blandast saman lög um samskipti kaupanda og seljanda og umfjöllun kaupanda og seljanda um lögin... »