Kurrar í kólibrífugli » RSÍ

Sálarkröm og heilabrot: Um rithöfundasambandið
Rithöfundasamband Íslands er það næsta sem íslensk skáld komast því að eiga verkalýðsfélag. RSÍ er ætlað að standa vörð um hagsmuni félaga sinna – eða þannig hef ég í það minnsta skilið það hingað til. Mér hefur löngum þótt starfsemi félagsins að mörgu leyti skrítin, að svo miklu leyti sem ég verð ekki var við hana. Ég verð ekki var við að RSÍ þrýsti opinberlega á stjórnvöld að auka fjármagn til lista – verð ekki einu sinni var við að félagið kvarti undan fáum ritlaunaúthlutunum, þó sá stakkur sé löngu orðinn þrengri en svo að úthlutunarnefndin geti sinnt hlutverki sínu. Þjóðinni fjölgar, velmegun eykst og rithöfundum fjölgar – en ritlaunamánuðum fjölgar ekki. Þannig er ritlaunasjóður miklu veiklulegra fyrirbæri en hann var fyrir 15 árum, og veiklast stöðugt. Ég á ekki við að RSÍ vinni algerlega marklaust starf, því fer fjarri – RSÍ gerir margt ágætt, en ég er að mörgu leyti ósáttur við það hversu lítið sambandið beitir sér pólitískt fyrir hagsmunum rithöfunda.

Á dögunum tók ég að mér að rissa upp bréf til stjórnar RSÍ vegna fyrstu úthlutunar hins nýstofnaða Bókmenntasjóðs, til að vekja máls á og finna að því að engar nýjar ljóðabækur skyldu fá úthlutað fé, þó gefið hefði verið í skyn fyrirfram að slíkum verkum ætlaði sjóðurinn, og ætti, að sinna. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum kærði Nýhil þennan úrskurð til menntamálaráðuneytisins, og bíður nú svars.

Ég sendi svo félögum í RSÍ fjöldapóst og sóttist eftir undirskriftum – á þremur dögum skiluðu sér 29 manns og ég sendi bréfið áfram á stjórn sambandsins sem tók erindið fyrir á fyrsta fundi sínum þar á eftir. Svarbréf barst skömmu áður en ég fór til Kanada.

Bókmenntasjóður er nýr sjóður, sameinaður úr fyrrum menningarsjóði, þýðingarsjóði og bókmenntakynningasjóði – engum hverra var ætlað að styrkja frumsamdar ljóðabækur, það best ég veit. En hlutverk hins nýja sjóðs er breiðtækara, þetta er almennari sjóður. Hins vegar held ég hann hafi ekki fengið meiri pening en hinir sjóðirnir samanlagt, þótt honum hafi verið ætlað stærra hlutverk.

Þótt ég hefði ávæning af því fyrirfram að stjórninni þætti óþægilegt að takast á við þetta, hafandi skipað fólk í úthlutunarnefndina, þóttist ég vongóður um að þegar málið yrði rætt myndi skynsemin ráða ferðinni og stjórnin myndi sinna hlutverki sínu og álykta í nafni hagsmuna félaga sinna, frekar en að taka þessu sem árás á skipan þeirra í nefndina (sem enginn hefur þó kvartað undan). Það sem ég átti von á, og það sem mér hefði þótt eðlilegast, var ályktun á borð við: „Mikið er leiðinlegt að Bókmenntasjóður skuli ekki geta sinnt hlutverki sínu vegna fjárskorts, þó fullyrt sé í lögum um sjóðinn að fjármagn eigi að duga til að hann geti rækt hlutverk sitt. Úr þessu þarf að bæta hið snarasta og finna meiri pening.“

Þess má geta að einhverjar hugmyndir hafa verið uppi um „sérstaka úthlutun“ síðar í haust, þar sem huga megi betur að frumsömdum ljóðabókum, og jafnvel komi til greina að fá í það fé úr einkageiranum. Þetta er bráðabirgðalausn sem engum í ljóðaútgáfu hugnast vegna þess að sérstakar úthlutanir eru þess eðlis að þær mæta afgangi – og það stendur hvergi í lögum um bókmenntasjóð að frumsamin ljóð eigi að mæta afgangi. Aukinheldur hef ég nokkuð góðar heimildir fyrir því að stóru forlögin hafi ekki sótt um fyrir sínar ljóðabækur í ár – þau hafi einfaldlega ekki áttað sig á möguleikanum (sem mörg minni forlögin gerðu) – og má gera því skóna að það sé ástæðan fyrir því að ekki var úthlutað til ljóðabóka, og er þá komin ágætis fótur fyrir samsæriskenningum um að íslenskur bókheimur sé ekkert nema klíkuskapur stóru forlaganna (sem t.d. veita „íslensku bókmenntaverðlaunin“, en það er fáheyrt í heiminum að útgefendur veiti sjálfum sér stærstu bókmenntaverðlaunin – enda eru þau alltaf veitt bókum frá stóru forlögunum, þó hlutdeild litlu forlaganna á fagurbókmenntamarkaði fari sívaxandi).

Stjórn RSÍ vísaði erindi 29 félagsmanna sinna á bug á sömu forsendum og stjórn bókmenntasjóðs vísaði athugasemdum Nýhils á bug: ekki þykir eðlilegt að fjalla um einstakar úthlutanir. Klausu af þessu tagi er að finna í flestum lögum um úthlutanir, til að koma í veg fyrir að stjórnin þurfi að svara öllum sem fá nei við umsóknum sínum – sem oft eru ansi margir. Það væri einfaldlega svo kostnaðarsamt að svara öllum, og þessi klausa er að mörgu leyti mjög eðlileg, þótt ákjósanlegast væri að fólk fengi svör við því hvers vegna þeim var neitað – það er einfaldlega ekki alltaf hægt. Hins vegar er tilhneiging hjá stjórnum til að fela sig á bakvið þessa klausu þegar spurt er pólitískra spurninga um eðli úthlutunar, eins og er í þessu tilfelli. Hér er einfaldlega ekki spurt hvers vegna ákveðin bók, eða ákveðnar bækur, hafi ekki fengið úthlutað, heldur hvers vegna ákveðin tegund bóka var virt að vettugi, þótt gefið hefði verið í skyn að þær væru styrkhæfar. Leitað var til RSÍ eftir stuðningi við þessa athugasemd, og felur stjórn sambandsins sig þá á bak við sams konar klausu. Hún velur að standa með þeim fulltrúum sem hún valdi í úthlutunarnefndina, gagnvart félagsmönnum sínum – og veitir í raun ekkert svar við þeirri spurningu sem var borin fram: Er eðlilegt eða ásættanlegt að nýjar ljóðabækur fái ekki styrk úr Bókmenntasjóði?

Þetta er eins og heimatilbúin þjóðarsátt, þar sem verkalýðsfélagið ákveður að taka afstöðu með vinnuveitendum, til að halda sér í mjúkinum, í stað þess að álykta um hagsmuni skrifandi stétta. Stjórn RSÍ tekur afstöðu með valdinu, í stað þess að sinna hlutverki sínu sem hagsmunafélag rithöfunda gagnvart valdinu. Sem er auðvitað afskaplega leiðinlegt. Ég fæ það næstum því á tilfinninguna að sambandið hræðist að missa aðstöðu sína til tilnefningar í úthlutunarnefndir, og líti á það sem höfuðhlutverk sitt að halda í þær stöður – og geti þar með ekki gagnrýnt úthlutanir. Sem hálfgeldir auðvitað sambandið.

Þessi afstaða veldur mér bæði sálarkröm og heilabrotum. Já, svei.

Svarbréf Rithöfundasambands
Frá stjórn RSÍ vegna úthlutunar Bókmenntasjóðs

Þegar sú staða kemur upp við úthlutun styrkja eða starfslauna að einstaklingar eða hópar telja á sér brotið eða fram hjá sér gengið, þá er sjálfsagt að gera opinskátt um það með öllum þeim meðulum sem viðkomandi telja þjóna tilganginum.

Aftur á móti er hæpið að stjórn Rithöfundasambandsins hlutist til um einstakar úthlutanir eða fari fram á skýringar, að því tilskyldu að starfað sé innan lagarammans. (http://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=”83af37ca-9bfe-432b-a2f7-077fc4eedd6d) Við teljum ekki leika vafa á að svo hafi verið að þessu sinni.

Að því er tekur til innihalds fyrstu úthlutunar útgáfustyrkja Bókmenntasjóðs til þessa, þá þyrfti stjórn RSÍ að hafa aðgang að þeim umsóknum sem sjóðnum bárust til að geta fellt dóm um niðurstöðuna. Að athuguðu máli hljóta menn að sjá að það er hvorki æskilegt né gerlegt. Þá vegur ekki síður þungt að það er fráleitt komin nein reynsla á úthlutanir sjóðs sem er í blábyrjun starfsemi sinnar. Látum að minnsta kosti þau þrjú ár líða sem núverandi stjórn situr áður en við kveðum upp dóma um störf hennar.

Við minnum á að stjórn sjóðsins er skipuð fimm fulltrúum, þar af tveimur tilnefndum af Rithöfundasambandi Íslands. Stjórn RSÍ ber fullt og óskorað traust til þessara fulltrúa sinna og treystir því að þeir standi vörð um hagsmuni bókmenntanna í bráð og lengd, frumsaminna og þýddra.

Gunnarshúsi 7. júlí 2008

Stjórn Rithöfundasambands Íslands

Bréf til Rithöfundasambandsins
Til stjórnar Rithöfundasambands Íslands

Undirrituð, sem eru meðlimir í Rithöfundasambandi Íslands, vilja fara fram á það við stjórn RSÍ að hún álykti um fyrstu úthlutun úr hinum nýja Bókmenntasjóði. Í lögum um sjóðinn segir að hlutverk hans sé meðal annars að „styrkja útgáfu frumsaminna íslenskra skáldverka og vandaðra rita sem eru til þess fallin að efla íslenska menningu,” og vilja undirritaðir meðlimir RSÍ fá að vita hver afstaða stjórnar sambandsins er til þess að engin frumsamin íslensk skáldverk hafi hlotið styrk, í þetta fyrsta og eina sinn sem veitt hefur verið úr sjóðnum. Sérstaklega er horft til þess hvers vegna engar ljóðabækur hafi fengið styrk, en skýrt er tekið fram í lögum um sjóðinn að hann eigi að styrkja útgáfur með „litla eða takmarkaða tekjuvon”, þar á meðal ljóðabækur, og getur það vart átt betur við annað en nýjar íslenskar ljóðabækur.

Þær ljóðabækur sem útgáfustyrk hlutu voru endurútgáfur eldri ljóða, og eru höfundar þeirra, að einum undanskildum, allir látnir. Gefið hefur verið í skyn að stjórn Bókmenntasjóðs hafi túlkað „frumsamin íslensk skáldverk” sem „endurútgáfur”. Sé eitthvað til í því, má spyrja hvers vegna það hafi aldrei komið fram í aðdraganda úthlutunar, þar sem útgefendur nýrra ljóðabóka voru látnir halda að bækur þeirra kæmu til greina.

Þar sem RSÍ á tvo af fimm meðlimum stjórnar Bókmenntasjóðs, og þar sem Bókmenntasjóður hefur greinilega gengið í berhögg við eigin úthlutunarlög og horft framhjá nýjum verkum með „litla eða takmarkaða tekjuvon” – og þar með framhjá meðlimum sambandsins – viljum við biðja stjórn RSÍ að álykta um málið, skýrt og skorinort: Telur stjórn RSÍ að rétt hafi verið staðið að úthlutun úr Bókmenntasjóði?

Undirrituð vilja ekki gera lítið úr endurútgáfu á verkum íslenskra stórskálda, látinna eða lifandi, heldur benda á að það að verkin séu ófáanleg og uppseld gefur ekki til kynna að þau eigi „litla eða takmarkaða tekjuvon”, heldur þvert á móti, að hin ástsælu stórskáld eigi aðdáun þjóðarinnar, og ætti að vera auðsótt stærri forlögum að koma slíkum bókum út, með réttu kynningarátaki. Þá er ekki síður rétt að benda á að margar endurútgáfur af þessu tagi eru skrautfjaðrir fyrir stærri forlögin, sem auk þess að bera sig sjálfar, bera hróður útgefandans víðar en ljóðabækur minna þekktra skálda myndu gera.

Sú staðreynd hlýtur að vera öllum þeim ljós sem koma að íslenskum bókheimi, að ljóðabókaútgáfu hefur á síðustu áratugum verið ýtt út á jaðrana. Stærri forlögin afskrifa flestar sínar ljóðabækur, þá sérstaklega ljóðabækur yngri skálda, og fá enga sérstaka athygli út á þær í skiptum. Þetta veldur því að nýjum ljóðskáldum er torsótt leiðin inn á stærri forlög. Smærri forlögin berjast í bökkum, reiða sig á sjálfboðavinnu, styrki, velvild og von – og samt komast ljóðskáld sem þar gefa út ekki upp með að reiða fram minna en sem nemur einum mánaðarlaunum til að borga með sér við útgáfu. Nú er svo komið að styrkjakerfið – sem virðist hafa verið ætlað að hvetja til nýsköpunar með nýjum Bókmenntasjóði, styrkja nýliða sem ella kæmust ekki á legg – sinnir alls ekki hlutverki sínu sem skyldi.

Forsvarsmenn Bókmenntasjóðs hafa brugðist við athugasemdum vegna síðustu úthlutunar með því að vísa til mögulegra „sérstakra ráðstafana” – einnar milljón krónu úthlutunar í haust. Þrátt fyrir að undirrituð fagni því að fé fáist mögulega til útgáfu nýrra ljóðabóka, og tillit sé tekið til þeirra athugasemda sem stjórn sjóðsins hefur borist, viljum við leggja áherslu á að nýrri íslenskri ljóðlist verði ekki ýtt út á hliðarlínurnar og bendum á að sjóðnum ber samkvæmt lögum að sinna frumsömdum íslenskum skáldverkum af krafti. Sú starfsemi á að vera einn aðalkjarni sjóðsins, og á ekki að þurfa til „sérstakar ráðstafanir”. Þá er engan veginn ásættanlegt að 1 milljón, eða 2% árlegs styrktarfé sjóðsins, sé sú heildarupphæð sem ætluð er til styrktar frumsömdum íslenskum skáldverkum.

Það væri mikil synd ef að ný íslensk ljóðlist, sem án nokkurs vafa er áhættusamasta útgáfa landsins, og áreiðanlega ekki sú þýðingarminnsta, verður áfram styrkjalaus.

Ef það er ekki markmið sjóðsins að styrkja nýjar bókmenntir þá myndum við undirrituð gjarna vilja fá það svart á hvítu. Það er einfaldlega rangt að því sé flaggað að svo sé, ef það er ekki raunin.

Með virðingu og vinsemd,

Undirrituð:

1.    Ásdís Thoroddsen

2.    Baldur Ragnarsson

3.    Bergsveinn Birgisson

4.    Eiríkur Örn Norðdahl

5.    Garðar Baldvinsson

6.    Guðjón Sveinsson

7.    Guðrún Ásmundsdóttir

8.    Ísak Harðarson

9.    Kristín Ómarsdóttir

10.    Kristlaug María Sigurðardóttir

11.    Matthías Johannesen

12.    Matthías Magnússon

13.    Ólafur Gunnar Guðlaugsson

14.    Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

15.    Sigurður Þór Salvarsson

16.    Silja Aðalsteinsdóttir

17.    Stefán Sturla Sigurjónsson

18.    Steinar Bragi Guðmundsson

19.    Súsanna Svavarsdóttir

20.    Sveinn Snorri Sveinsson

21.    Unnur Sólrún Bragadóttir

22.    Úlfar Þormóðsson

23.    Vigdís Grímsdóttir

24.    Vigfús Bjarnason

25.    Þorsteinn Guðmundsson

26.    Þorvaldur Þorsteinsson

27.    Þór Stefánsson

28.    Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir

29.    Örn Bjarnason