Gæska: Fjallræða um samtímann
Gæska hefur sérstöðu. Í stað hefðbundinna sögupersóna og aristótelísks söguaga er hér sjónarspil hins flaumósa ímyndunarafls, eins og það birtist í meðförum afar spræks söguhöfundar, sem ryðst hér að miðju frásagnarinnar og gengur þar í fóstbræðralag við félagslega vitund sem heldur á lofti öflugri gagnrýni á Ísland samtímans. Útkoman er ein áhugaverðasta skáldsaga síðasta... »
Gæska: Fjörug og kröftug þeysireið
Gæska Eiríks Arnar Norðdahls er áleitin bók og ferskur andblær í allri þeirri íslensku listsköpun sem nú sækir andagift sína í hrunið alræmda, en allt of stór hluti hennar hefur einkennst af andleysi og fyrirsjáanlegri retórík. Það má nefnilega margt um hann Eirík segja en seint verður hann sakaður um að vera fyrirsjáanlegur í... »
Fríða um Af Steypu
Þegar maður er nýbúinn að eignast barn verður maður um hríð dálítið fattlaus á umhverfi sitt. Þannig fór það framhjá mér um miðjan september mánuð þegar birtist dómur um Af Steypu í Morgunblaðinu. Enda hafði ég um allt annað að hugsa. Ég rakst síðan á hann fyrir tilviljun bara áðan. Það er Fríða Björk... »
Gauti um Af Steypu
Sumar bækur eru ekki fyrirferðarmiklar í umræðunni, þrátt fyrir að þær færi okkur lesendum meira forvitnilegt og skemmtilegt en sumar sem fyrirferðarmeiri eru. Reyndar segir það sennilega meira um umræðuna en bækurnar, því ég er ekki frá því að íslensk umræða almennt sem bókmenntagrein sé á fremur lágu stigi og það er næsta víst... »
Að mála heiminn hlandgulan
Sigurður Hróarsson skrifar dóm um Ú á fasismann í Fréttablaðið og bregst mér ekki frekar en fyrri daginn. Hann segir reyndar tilgangslaust að skrifa um hana, en honum þótti tilgangslaust að lesa þá síðustu (I’d rather praise it than read it) svo þetta er kannski framför. “Þetta er skáldskapur sem hafnar lýrík, skáldskapur sem... »
Dómur í Víðsjá
Hjalti Snær Ægisson fjallaði um Ú á fasismann í Víðsjá í vikunni. »
Umfjöllun um Móðurlausa Brooklyn
Fjallað var um þýðingaverðlaunin í Lesbók Morgunblaðsins á helginni. Hjörvar Pétursson skrifaði um Móðurlausa Brooklyn, og má lesa umfjöllun hans með því að smella hér. Þá var líka fjallað um verðlaunin í útvarpsþættinum Seiður og hélog á Rás 1. Hægt er að hlusta á þá umfjöllun á heimasíðu þáttarins næstu tvær vikurnar. Tilkynnt verður... »