Combat 18 og hegrar

By Eiríkur Örn

Í gær birtist komment á færsluna með Viðars-Helga-rímixinu, á ensku frá hollenskri ip-tölu. Ég hélt það væri spam og eyddi því. Kommentið var “Get a life wigger”. (wigger er “white nigger”) Netfangið sem gefið var upp var nordland-wmu@hotmail.com. Rétt áðan komst ég að því að þetta er netfangið sem gefið var upp á íslensku... »

Þegar Ísafjörður tók á móti flóttamönnum …

By Eiríkur Örn

Mér finnst merkilegt að horfa á sjónvarp, og lesa síðan umræðuna sem sprettur upp úr sjónvarpinu í öðrum miðlum. Þegar Viðar Þorsteinsson mætti í Silfur Egils í vetur var ítrekað haft eftir honum að það væru engir íslamistar í Evrópu – sem hann sagði aldrei. Í gær sagði Egill sjálfur að hann ætlaði ekki... »

Þeir eru að berja útlendinga

By Eiríkur Örn

Finnar unnu Svía 4-0. Sem þýddi að við hjónin vorum ekki myrt með brýndu felgujárni á heimleiðinni í nótt. Það er alveg í ánægjulegri kantinum. Frúnni var líka létt – þó hún sé sænsk – enda Svíar heimsins umburðarlyndustu, og geta vel unað öðrum að vinna. Reyndar var eitthvað svona væl í Dagens Nyheter,... »

Hjálp! Flóttamennirnir koma!

By Eiríkur Örn

Það líður að laugardagskvöldi í Helsinki. Í öllum hornum bera menn gel í hárið, pússa ballskóna, strauja jakkafötin, brýna kuta sína, tálga kylfur og bóna hnúajárn. Í kvöld verður keppt um bronsið á HM í íshokkí, og keppinauturinn er erkióvinurinn hinumegin sundsins: Svíþjóð. Íshokkí í Finnlandi gengur út á tvennt. Annars vegar að ná... »

Fjársjóður heimskunnar

By Eiríkur Örn

“Talsmönnum fjölmenningar er um að kenna, að andstaða við nýbúa fer vaxandi hér á landi. Alþjóðahús, séra Toshiki Toma, Salmann Tamini og fleiri hafa fylgt róttækri fjölmenningarhyggju. Hún fellur fólki ekki í geð. Það óttast innreið framandi hugmynda. Sérstaklega óttast fólk íslam, þar sem karlremba og ofbeldishyggja er á háu stigi. Fólk óttast bannhelgi... »