Tag Archive
Róttækir múslimar fá heilablóðfall
„Síðan er heilsufarsleg spurning um hollustu þess að beygja höfuðið niður að gólfi og setja þar með mikinn blóðþrýsting niður í höfuðið, sem gæti skaðað æðakerfið þar og orsakað heilablóðfall.“ Hermdarverkabloggarinn »
Mugison og gráðugir gyðingar
Á föstudagskvöldið var ég staddur á Næsta bar þegar þekktur menningarmógúll íslenskur kallar mig yfir til sín. Ég geng að borðinu þar sem hún sat og heilsa. Hún horfir á mig skælbrosandi og ægilega glöð og spyr: „Er það ekki Mugison sjálfur?“ Svo er Hirsi-Ali víst að skrifa barnabók sem heitir Adam og Eva. Hún... »
Þessar konur kunna að þjóna öðrum
Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir í málgagni Frjálslyndra á Akranesi, um írösku mæðurnar sem Frjálslyndir treysta sér ekki til að taka á móti. Það er auðvitað hrikalegt fyrir umræðuna að það sé fyrst að koma fram núna að þessar konur kunni að þjóna öðrum. Hvers vegna hefur Rauði krossinn þagað um þetta, og hvers eðlis er þessi... »
Fjársjóður heimskunnar
“Talsmönnum fjölmenningar er um að kenna, að andstaða við nýbúa fer vaxandi hér á landi. Alþjóðahús, séra Toshiki Toma, Salmann Tamini og fleiri hafa fylgt róttækri fjölmenningarhyggju. Hún fellur fólki ekki í geð. Það óttast innreið framandi hugmynda. Sérstaklega óttast fólk íslam, þar sem karlremba og ofbeldishyggja er á háu stigi. Fólk óttast bannhelgi... »
Friður í Evrópu
Enginn sem ég þekki á von á því að inn á heimili hans ryðjist hermenn til að drepa karlana og nauðga konunum. Eða, í það minnsta, mjög fáir. Þær kynslóðir sem muna eftir seinni heimstyrjöldinni eru smám saman að hverfa. Mín er freistað til þess að rekja uppgang almennrar xenófóbíu, og af-tabúseringu útlendingafyrirlitningar í fjölmiðlun,... »
Að gera píslarvott úr hálfvita
Mér þykja þeir sem verja málfrelsið hvað harðast – eða réttara sagt, rétt vestrænna karlmanna til að níðast á hinum, því um aðra anga málfrelsis er ekki mikið rætt – gera heldur lítið úr því hversu lágt það er andlega risið á mörgum þessara manna. Geri ég lítið úr málfrelsinu með því að viðurkenna... »
Mælir manna heilastur
Ingólfur hefur tekið sig til og afgreitt Íslamista og naívista fyrir Kistuna. Nú lít ég svo á að sú bók sé úr sögunni. Hún er svo gott sem brunnin. »
Að láta lífið
Voltaire sagðist myndu láta lífið fyrir rétt manns til að segja skoðun sína, jafnvel þó honum misbyði skoðun mannsins. Þetta er fallegt og rétt og gott. Hins vegar er það ljótur verknaður að snúa út úr þessari fallegu hugsun, og útskýra hana sem svo að Voltaire myndi heldur láta lífið en að leyfa sér að hafa... »
