Hversdagsleiðin
31. maí, 2011 Tveir þriðju milljarðamæringa hófu leik með tvær tómar 31/05/2011 20:25 Bankaauglýsing sem ég sá á Gatwick á dögunum. Ekki gleyma að bankanum þínum þykir geðveikt vænt um þig. Sérstaklega ef þú ert fátæk stúlka í þriðja heiminum sem lærir heima á meðan hún byggir viðskiptaveldi sitt frá grunni með því að... »
Perspired by Iceland kynnir: Fréttatilkynningin er þjófnaður
Allur lestur er þjófnaður. Öll hlustun er þjófnaður. Allt áhorf er þjófnaður. Útgáfufélagið og bónusklúbburinn Perspired by Iceland kynnir – í samstarfi við SLIS, Sumarbúðir listhneigðra sósíalista – sína fyrstu prentuðu afurð: Ást er þjófnaður eftir Eirík Örn Norðdahl er ritgerðasafn um höfundarétt, þjófnað og framtíðina í ótal örlitlum hlutum, bók sem sett var... »
Hversdagsleiðin
1. febrúar, 2011 Runukrossar – restin – VARÚÐ SPOILERAR 01/01/2011 14:23 VARÚÐ: HÉR AÐ NEÐAN KOMA FRAM UPPLÝSINGAR SEM MUNU EYÐILEGGJA FYRIR ÞÉR BÓKINA HAFIRÐU EKKI LESIÐ HANA. Jæja. Runukrossar tekur nokkur hressileg heljarstökk á síðustu 50 blaðsíðunum – frekar tilkomumikil meira að segja. Rétt eftir að ég hafði sagt Umar og Rahman aldrei... »
Hversdagsleiðin
30. september, 2010 Eftir tvo og hálfan tíma af Ayn Rand 30/09/2010 23:23 Meðal þess sem Ayn Rand frásagði mér í dag var samtal tveggja bræðra – nýstáljöfursins Reardon og litla bróður hans, sem er hálfgerður ónytjungur sem veit ekkert hvað hann vill og búinn að vera í öllum hugsanlegum húmanískum fögum (á framfæri... »
Hversdagsleiðin
31. júlí, 2010 Out of office reply 31/07/2010 21:02 Næstu tvær vikurnar verður lítið hægt að ná í mig. Þeir sem finna engu að síður hjá sér óstjórnlega þörf til þess að ná tali af mér skulu senda mér tölvupóst (kolbrunarskald@norddahl.org). Annars verð ég hérna í einglyrninu einu fata, með penna í annarri og... »
Hversdagsleiðin
29. júní, 2010 Afmælið mitt – loksins, loksins! 29/06/2010 12:35 Ég er stjórnlaust mikið afmælisbarn. Ég hef ótrúlega gaman af eigin afmæli. Alveg skammarlega gaman. Maður á ekki að vera svona upptekinn af sjálfum sér á gamals aldri. Það vill til að ég á afmæli 1. júlí og því lendir afmælið mitt alltaf á... »
Hversdagsleiðin
31. maí, 2010 Kronikka Tänään olen syönyt hyvää Pad Thai ja tosi hyvää Tom Yam. Kiitos ja hyvä yöta. Louise Bourgeoise Sjö í rúmi eftir Louise Bourgeois – 1911-2010. Þýðingar Það er búið að ræna mig allri gleði af þýðingastörfum. Þá er að finna sér eitthvað annað að gera. Ferðalagið – myndir! Ég er... »
Gat ekki haldið í sér lengur – Viðtal í DV
Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl flutti til Finnlands fyrir þremur árum og ætlar að búa í Svíþjóð næstu tvö ár með sænskri eiginkonu sinni og nýfæddum syni þeirra. Á meðan eiginkonan stundar nám í Svíþjóð ætlar Eiríkur að halda áfram að „harka“. Skrifa, þýða og reyna að krækja sér í einhverjar evrur með því að... »
Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum
Fyrir um tveimur árum síðan tók ég upp útvarpsþætti fyrir Rás 1 sem nefndust Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum. Þar var um að ræða fjóra þætti. Í fyrsta þættinum tók ég fyrir nokkur klassísk verk hljóðaljóðlistarinnar og spurði mig hvað hljóðaljóð væru. Í öðrum þætti skoðaði ég notkun framburðar í hljóðaljóðlist. Í... »
Bútgáfur Nýhils: Fjórar smábækur
Nýhil gaf á dögunum út fjórar nýjar smábækur (bútgáfur) og eina þýðingu. Bækurnar eru Ég hata alla! eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, Það sem mér finnst helst að heiminum … eftir Ingólf Gíslason, Usli: Kennslubók eftir Dr. Usla, Sjálf kvíslast ég eftir Hildi Lilliendahl og Sori: Manifestó eftir Valerie Solanas í þýðingu Dr. Usla. Sú fyrstnefnda... »