Kurrar í kólibrífugli » Lesbókin

Dauði Lesbókar
Lesbók Morgunblaðsins fyrir fáeinum andlitslyftingum síðan.

Lesbók Morgunblaðsins hefur smám saman verið að gefa upp öndina á síðustu misserum. Ég veit ekki hvort hún var nokkru sinni andrík, svo gamall er ég ekki eða duglegur á timarit.is – en á síðustu árum hefur hún einhvern veginn skroppið saman einsog hungurmorða vesalingur. Flestir ritdómar síðasta bókaflóðs hefðu komist fyrir í Twitter-færslu eða undir ljóðunum á mjólkurfernunum. Stundum hefur verið gripið til þess ráðs að leggja heilu síðurnar og opnurnar undir ljósmyndaverk – líkt og dagblaðapappír sé besti miðillinn fyrir háskerpuljósmyndir af átakasömu landslagi Íslands. Væntanlega til að spara pening – það er a.m.k. eina ástæðan sem ég hef getað ímyndað mér.

Þetta segi ég með fullri virðingu fyrir því ágæta fólki sem stundum hefur skrifað í Lesbókina – það hefur verið ágætt og jafnvel mjög gott efni inni á milli – en stöku ræðari í dugnaðarkasti bjargar ekki siglingu botnlauss báts.

Og nú verður líklega skorið ennþá meira niður. Morgunblaðið, sem nýlega fékk 3 milljarða úr almannasjóðum, hefur ekki efni á að reka Lesbókina. Hvorki vel né illa, virðist vera. Og því er boðaður niðurskurður, á sama tíma og nýr ritstjóri – í þessum orðum skrifuðum, líklega Davíð Oddsson – tekur til starfa.

Að mörgu leyti held ég að þetta sé ágætt. Hvorutveggja. Davíð sem ritstjóri Morgunblaðsins er í samræmi við heimsýn mína – það er eitthvað óhemju heiðarlegt við það. Auðvitað verður hann hlutdrægur, hrokafullur, sjálfsagt hálfbrjálaður, forpokaður megalomaníak – í ritstjórastól. En þannig hefur mér alltaf þótt Mogginn vera. Í 30 ár hefur hann falið það misvel. En nú lýkur því sem sagt vonandi og Mogginn byrjar aftur að koma til dyranna einsog hann er klæddur. Það er miklu auðveldara og þægilegra að takast á við hann þannig en að þurfa að láta einsog um hlutlaust dagblað sé að ræða.

Og Lesbókin deyr. Það er líka ágætt. Með því skapast rými fyrir eitthvað annað, dauðateygjunum lýkur, skepnan deyr og menningarþyrstir lesendur geta óhræddir misst vonina um upprisu Lesbókar og snúið sér annað. Augu þeirra, athygli og aurar fara í eitthvað annað – vonandi eitthvað nýrra og betra.

Hverjir eru bestir?
Ég gæti til dæmis sagt að Fyrir kvölddyrum og Hvert orð er atvik séu bestu ljóðabækur sem komið hafa út það sem af er öldinni. Ég gæti líka sagt að[...] ljóðinu verði óhætt í höndum Gerðar Kristnýjar, Sigurbjargar Þrastardóttur, Kristínar Svövu Tómasdóttur, Kristínar Eiríksdóttur, Sölva Björns Sigurðssonar (sem átti þýðingu ársins, Árstíð í helvíti eftir Arthur Rimbaud) og Ófeigs Sigurðssonar (sem sendi frá sér tvær merkilegar ljóðabækur á árinu) næstu áratugina. [...] Íslensk ljóðskáld standa framarlega, Matthías Johannessen, Þorsteinn frá Hamri, og svo kynslóðin sem í raun breytti íslenska ljóðinu, Sigurður Pálsson, Steinunn Sigurðardóttir og Þórarinn Eldjárn. Sjón gaf út eina bestu ljóðabók síðustu ára í fyrra, Söng steinasafnarans, og Kristín Ómarsdóttir og Óskar Árni Óskarsson eru sér á parti. Á þessu ári spruttu svo fram óvenjumikil efni á borð við Magnús Sigurðsson (Hálmstrá og Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu), Kári Páll Óskarsson (Með villidýrum) og Emil Hjörvar Petersen (Refur).

Þröstur Helgason í Lesbók á dögunum.

Lesbókin
Já, og ég vil bæta því við að það er skömm að ritdómum Lesbókarinnar þessa dagana – en þeir eru á lengd við það sem eitt sinn nefndist hnotskurn í einhverjum sjónvarpsþætti. “Óskar Árni rosa góður.” “Hemmi Stef er voða gamaldags.” “Stína Eiríks er sko af góðu móðerni.”

Þetta er drasl.

En svo virðist sem Lesbókinni þyki þörf á dágóðum skerfi af þolinmæði til að lesa 40 síðna myndabók, svo það er kannski ekki skrítið að þeir stytti umfjöllun sína.

Og auðvitað er það hneyksli, segi ég við nemendur mína, að Bandaríkjamenn skuli þjást af athyglisbresti, eins og sagt hefur verið frá í Time Magazine, sem ætti jú að vera með þessi mál á hreinu, þar sem tímaritið er einn helsti smitberi sjúkdómsins sem það harmar, með þessari „þú getur aldrei einfaldað nóg“ nálgun sinni á prósa og óstöðvandi kynningu ritsins á formeltum menningarafurðum. Og þar sem við vitum öll að nemendur geta ekki haldið þræði í symbólisma hinna línulegu, hefðbundnu ljóða, hvernig getum við þá mögulega búist við að þeir lesi þessi enn flóknari ljóð sem þú virðist staðráðinn í að koma inn á nemendur, grípur einn yngri kennaranna fram í, sem í sínum eigin tímum reynir ákaft að sýna fram á hugmyndafræðilegu sprungurnar í poppmenningu samtímans? Þú vilt taka hluti sem virðast aðgengilegir og línulegir, svara ég, og sýna fram á hvernig þeir séu flóknir og ólínulegir; ég vil taka hluti sem virðast flóknir og ólínulegir og sýna hvernig margslungin gerð þeirra gerir þá aðgengilega í merkingunni heyranlega (endurskoðanlega). Og, held ég áfram, bandandi út höndunum og verð óðamála á meðan augu kollega minna byrja að snúast á sporbaug, er ekki ólínuleiki hinnar svonefndu sundurlausu ljóðlistar einmitt snertipunktur við hversdagslegar menningarupplifanir flestra Norður-Ameríkana, þar sem lagskipting ólíkra diskúrsa er óhjákvæmileg afleiðing útvarpshnappa, kapalsjónvarps, símans, auglýsinga, eða einmitt, í öðrum rúmfræðilegum skilningi, borga? En eru ekki auglýsingar og söluvöruvæðing menningarinnar til marks um neikvæða þróun, sem truflar hinn opinbera intellektúal framtíðarinnar, ætti ekki ljóðlistin að standa gegn þessari þróun; og er ekki sú tegund ljóðlistar sem þú talar fyrir bara uppgjöf gagnvart firrtum, brotakenndum diskúrs póstmódernísks kapítalisma? Ef þú vilt svo vera að láta, svara ég eins og Eyrnaslapi, eins og ég hafi komið auga á sjálfan mig í Gap-auglýsingu (Robert Frost klæddist Khaki: „ég á við gapið“). En það getur ekki verið bæði og: form nýjungagröðustu ljóðlistar módernista og eftirstríðsskálda er kannski ekki sú hindrun sem þú heldur að það sé, og notaðu það ekki sem afsökun til að vísa verkunum á bug sem esóterískum. Hvorki hliðskipun né undirskipun á í eðlislægu sambandi við ljóðlist, menningarlega andspyrnu, eða aðgengileika: mistökin eru að djöfulgera róttækar hliðskipanir sem hvorutveggja vanhugsaða afurð þess versta sem á sér stað í menningunni og á sama tíma sem esóterík, en ég vil benda á að þessi tiltekna mótsögn er sérlega áhrifaríkt tól til þess að styrkja menningarlegt forræði í fjölmenningarlegu umhverfi. Og varast skaltu hlutverk hins opinbera intellektúals, vinur minn góður, því þegar The New York Times byrjar að tala um annað hvort dauða eða endurfæðingu opinberra intellektúala, þá hlýtur það að minna okkur á að intellektúalisminn, sem tegund málvísindalegrar rannsóknar, hefur um langt skeið verið bönnuð á síðum þess og að opinberir intellektúalar sem ekki voru tilbúnir til þess að láta deyfa í sér tungurnar til að geta betur valdið lesendum sínum hugsunarbresti og –röskun, voru settir út af sakramentinu fyrir löngu síðan og brottrækir gerðir af þessum vettvangi og öðrum þeim sem setja menningunni standardinn.

Charles Bernstein hér.

Stundum er ekkert jákvætt við Já og ekkert merkilegt við upphrópunarmerki (!)
„Já hefur sett sér þau markmið að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu, sjá fyrir og mæta nýjum þörfum viðskiptavina, að skapa öflugt og spennandi starfsumhverfi, þróa verðmæt viðskiptasambönd og bera sig saman við þá bestu.[1]“

Nýja símaskráin, 118 Já símaskráin 2007, er mikil og vegleg bók þar sem saman eru tekin nöfn velflestra Íslendinga og þau pöruð saman við heimasímanúmer viðkomandi, farsímanúmer og heimilisföng. Þá er einnig nokkuð um netföng og vefföng í bókinni. Nokkrar vonir hafa verið bundnar við útgáfu bókarinnar frá því einkarekna fyrirtækið Já tók við útgáfunni af Símanum í fyrra. Er þetta önnur símaskráin sem kemur út frá Já – hún er prentuð í 230 þúsund eintökum, sem þætti heldur fífldjarft upplag hjá öðrum forlögum, en þar sem bókinni er dreift ókeypis er slíkur samanburður augljóslega ómarktækur og ósanngjarn (harðspjaldaútgáfan, sem ætluð er fjármagnstekjuþegum, kostar 650 krónur).

Forlagið sem svo digurbarkalega nefnir sjálft sig einfaldlega Já! segir í auglýsingum og umfjöllun, sem ekki fór lítið fyrir kringum útgáfu ritsins, nokkrar stórar „breytingar“ hafa verið gerðar á bókinni á milli ára. Annars vegar er bókin hálfu kílói léttari en fyrr, þrátt fyrir að vera 96 síðum lengri (sem er raunar óverulegt þegar litið er til þess að heildarlengd verksins er 1584 síður!) og hins vegar fylgir henni stækkunargler fyrir þá sem finnst letrið of lítið. Önnur breytingin svo að segja afnemur hina  og eftir stendur ekkert nema sjónhverfingin: Bókin er minnkuð til þess eins að vera stækkuð aftur. Jess!

Þetta er þó langt í frá stærsti löstur þessarar svokölluðu „nýju“ bókar. Gaumgæfi lesandi kunnugur fyrri verkum ritraðarinnar þessa útgáfu, kemst téður lesandi að því að hér er að langstærstum hluta um einfalda og fjarska ófrumlega endurvinnslu á gömlu efni að ræða. Ekki er nóg með að lungi nafnanna í Símaskránni 2007 hafi birst áður í Símaskránni 2006, og raunar símaskránni 1996 ef út í það er farið, heldur er höfuðið bitið af skömminni með því að tengja nöfnin meira og minna sömu símanúmerum og heimilisföngum og áður. Eins og íslenskir bókmenntafræðingar hafa nýverið bent á í öðru samhengi er það sem krýnir sig nýtt ekki endilega neitt nýtt.

Um annað ritmál bókarinnar, þann sem er ekki einfaldlega nafnarunu- og númera kjaftavaðall, má segja það sama. Almannavarnanúmerin eru söm sem fyrr, götur á kortum að mestu leyti óbreytt – nýjungar í litamerkingum korta eru litlar ef nokkrar. Svo mætti lengi telja.

Það virðist vera ríkjandi sjónarmið útgefenda verka af þessum toga að þau sjálf þurfi ekki að vera innblásin, heldur séu þau til þess gerð að blása öðrum, viðtakandanum, lesandanum anda í brjóst. Ábyrgðinni er velt af höfundi yfir á lesanda, og ósjaldan vísað til tilraunastarfs af skyldum toga sem einkenndi vissulega slíka útgáfu um miðbik tuttugustu aldar. Hæglega má þó vísa enn lengra aftur og kenna þessa hugmyndafræði við encyclopædista upplýsingarinnar sem ætluðu verkum sínum fyrst og síðast að kortleggja heiminn, eða í öllu falli þekkingu samtíðarmanna sinna á honum. Vilji maður vera virkilega rætinn er freistandi að vísa allt aftur til forsjálla höfunda Íslendingasagnanna og langdreginna en hámódernískra ættartala þeirra, sem virðast einkum til þess fallnar að torvelda lestur – hver veit nema þar á meðal hafi leynst menn sem hugsuðu með sér: við skulum láta þá hugsa sjálfir! og átt þar við lesendur.

Maður hlýtur ósjálfrátt að velta fyrir sér hver tilgangur þessarar árlegu og undarlegu textaendurvinnslu sé – sérílagi á digital-tímum þar sem upplýsingar af þessu tagi má auðveldlega nálgast á netinu. Sé það einkum ásetningur höfunda að endurskapa anda löngu liðinna tíma, bera fram gamalt vín á nýjum belg, er þó ekki að sjá að það sé ýkja vel heppnað. Leiðinlegt er ekki samheiti við list. Lestur bókarinnar er þar að auki svo yfirgengilega leiðinleg iðja að jafnvel sjálfkrýndur konungur ljóðleiðindanna, Kenneth Goldsmith, á ekkert í þennan botnlausa hyl sem okkur er hrint ofaní ár eftir ár. Goldsmith, sem segir sjálfur að bækur sínar séu svo leiðinlegar að hann lognist iðulega út af við lestur prófarkanna, hefur það að markmiði að geta skrifað á meðan hann horfir á sjónvarpið. Nýjasta bók hans, Traffic, sem kom út fyrir skemmstu er einfaldlega uppskrifaðar útvarpslýsingar á umferðinni í New York. Fyrir honum er tungumálið lifandi hlutur sem hægt að grípa og festa niður á blað, gera úr því ljóðlist sem er allt að því steypu-ljóðlist í ljósi síðufjölda („það má drepa mann með þessu“, sagði bókmenntafræðingur og meinti það á marga vegu). Og ótrúlegt en satt þá er líf í texta Goldsmiths, hann segir okkur eitthvað um tungumálið, á meðan þessi marklausa niðurritun nafna, heimilisfanga og símanúmera – þessi andlausa skráning tungumálsins eftir festum og settum reglum sem aldrei er brugðið út af – er eitthvað allt annað og ófrumlegra. Það liggur við að sjálft tungumálið vanti í textann, ef slíkt er þá á annað borð mögulegt.

Mætum verkinu af góðum vilja, gefum okkur að því sé ætlað að vísa til The Telephone Book sem Ed Friedman gaf út í Bandaríkjunum árið 1979. Bókin, sem samanstóð af uppskrifuðum samtölum með hikum, tafsi, endurtekningum og biðtónum og telst með leiðinlegri, ólesanlegri bókum 20. aldar framúrstefnu, á ekkert, nákvæmlega ekki neitt, í þetta afskræmilega ofvaxna kjaftæði sem Símaskráin 2007 er. „Nýja“ símaskráin hefur engu við þetta verk að bæta, nema magninu, auglýsingunum – og kannski kápunni.

Hin marklausa niðurröðun kunnuglegra nafna, heimilisfanga og símanúmera samkvæmt kerfi sem í höfuðatriðum er 3000 ára gamalt, og aldrei, í öllu ritinu, er brugðið út af, virðist ekki bara ófrumleg heldur unnin án nokkurs sem kalla má listrænan ásetning. Allir Jónarnir virðast búa við Aðalstræti og Hafnarstræti. Allar Guðrúnurnar við Túngötu. Það er enginn fallegur texti í þessari bók. Höfundur setur allt undir í metafiksjónalískum leikjum, raunverulegar manneskjur eru persónur í bókinni, og lesendur geta svo sem dundað sér við að bera saman við það sem þeir vita um fyrirmyndirnar. Til dæmis á Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur línu í bókinni og líka Hermann Stefánsson. Leikir af þessu tagi (allir vita að Ólafur Jóhann er persóna í bók eftir Hermann) endurspegla einfaldlega 10-15 ára gamla umræðu.

Er veröldin jafn stöðnuð og verkið vill gefa til kynna? Erum við sömu manneskjurnar og í fyrra? Verðum við sama fólkið að ári? Er þetta þá ekki bara búið? spyrja landsmenn sig. Þau okkar sem komin eru yfir miðjan aldur muna öll þá tíð er símaskránni fylgdi eftirvænting – símaskrá sem barst ekki mikið á, þurfti ekki að mikla sig af nýmælum. Yngra fólk man ekki þessa daga. Það bíður ekki lengur. Og skyldi, að ofantöldu, engan undra.

Minnumst þess hve dyggilega og fimlega James Joyce varði verk sitt, Ulysses, á sínum tíma, sem er um margt sambærilegt – en eljan sem hann sýndi við útskýringar og leiðbeiningar lesenda og gagnrýnenda um hvernig bæri að nálgast verkið var, að segja má, nauðsynlegur og jafnvel integral hluti verksins sjálfs. Ekki hefur Já lagt sig minna fram um að koma sínu verki á framfæri, dreifa því og tryggja viðtöku. Hér verður ekki gert lítið úr bókmenntalegu vægi forma á borð við fréttatilkynningar, viðtöl eða auglýsingar – það er fjarri ásetningi höfundar þessarar greinar. En sé þessu kynningarefni fyrirtækisins ætlað ritskýringargildi bera þær vægast sagt vott um, ef ekki blátt áfram vankunnáttu og vangetu, þá sannkallaða dómadagshugsanaleti og heilindaskort. Heilindaskorturinn birtist ef til vill skýrast í undarlegum játningum útgefenda á hversu óáhugavert verk hér um ræðir: í fréttatilkynningum er bent á að umhverfisvæn framleiðsluaðferð við prentun geri fólki kleift að borða bókina án þess að verða meint af. En þessi sjálfsmeðvitund eða sjálfsháð nær ekki að sigrast á verkinu – þvert á móti sekkur ístöðuleysið því aðeins dýpra í hyl vandræðaleikans.

Símaskráin 2007 er alls ekki ritverk heldur einhvers konar uppákoma. einhver einkafyndni sem fer fyrir ofan garð og neðan hjá öllum nema allra húmorslausustu starfsmönnum Já. Það er ekki laust við að lesandi spyrji sig hvort þetta sé ekki bara búið. Við munum þá tíð er landsmenn biðu á hverju ári eftir nýrri símaskrá, hún þótti sjálfsögð á hverju heimili. Núna er svo komið að fátt fólk af yngri kynslóðum leggur sig eftir þessari útgáfu. Og skyldi engan undra. Ekkert gefur til kynna að símaskráin sé hætt að koma út, svo þetta er víst ekki alveg búið. En þetta er kannski um það bil að verða búið.

Símaskránna er hægt að fá afhenta ókeypis á sölustöðum Símans, Vodafone og á afgreiðslustöðum Flytjanda. Þá er hægt að nálgast hana á bensínstöðvum um land allt til 30. júní.

Haukur Már Helgason, Ingólfur Gíslason & Eiríkur Örn Norðdahl

Höfundar þessarar greinar hafa ekki séð símaskrána en hafna fylgispekt við þá 18. aldar heimspeki meintrar upplýsingar að þekking sé æðri fordómum.

[1] Um fyrirtækið Já af heimasíðu þess, www.ja.is.

Birtist í Lesbók Morgunblaðsins í júní 2007 – eins og fram kemur er greinin skrifuð í samstarfi við Ingólf Gíslason og Hauk Má Helgason. Greinin er svar við grein Hermanns Stefánssonar, Eitthvað nýtt!, sem birtist í Lesbók Morgublaðsins 9. júní 2007.