Tag Archive

Dauði Lesbókar

By Eiríkur Örn

Lesbók Morgunblaðsins hefur smám saman verið að gefa upp öndina á síðustu misserum. Ég veit ekki hvort hún var nokkru sinni andrík, svo gamall er ég ekki eða duglegur á timarit.is – en á síðustu árum hefur hún einhvern veginn skroppið saman einsog hungurmorða vesalingur. Flestir ritdómar síðasta bókaflóðs hefðu komist fyrir í Twitter-færslu... »

Hverjir eru bestir?

By Eiríkur Örn

Ég gæti til dæmis sagt að Fyrir kvölddyrum og Hvert orð er atvik séu bestu ljóðabækur sem komið hafa út það sem af er öldinni. Ég gæti líka sagt að ljóðinu verði óhætt í höndum Gerðar Kristnýjar, Sigurbjargar Þrastardóttur, Kristínar Svövu Tómasdóttur, Kristínar Eiríksdóttur, Sölva Björns Sigurðssonar (sem átti þýðingu ársins, Árstíð í... »

Lesbókin

By Eiríkur Örn

Já, og ég vil bæta því við að það er skömm að ritdómum Lesbókarinnar þessa dagana – en þeir eru á lengd við það sem eitt sinn nefndist hnotskurn í einhverjum sjónvarpsþætti. “Óskar Árni rosa góður.” “Hemmi Stef er voða gamaldags.” “Stína Eiríks er sko af góðu móðerni.” Þetta er drasl. En svo virðist sem Lesbókinni... »

Stundum er ekkert jákvætt við Já og ekkert merkilegt við upphrópunarmerki (!)

By Eiríkur Örn

„Já hefur sett sér þau markmið að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu, sjá fyrir og mæta nýjum þörfum viðskiptavina, að skapa öflugt og spennandi starfsumhverfi, þróa verðmæt viðskiptasambönd og bera sig saman við þá bestu.“ Nýja símaskráin, 118 Já símaskráin 2007, er mikil og vegleg bók þar sem saman eru tekin nöfn velflestra Íslendinga og þau... »