Tag Archive

Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum

By Eiríkur Örn

Fyrir um tveimur árum síðan tók ég upp útvarpsþætti fyrir Rás 1 sem nefndust Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum. Þar var um að ræða fjóra þætti. Í fyrsta þættinum tók ég fyrir nokkur klassísk verk hljóðaljóðlistarinnar og spurði mig hvað hljóðaljóð væru. Í öðrum þætti skoðaði ég notkun framburðar í hljóðaljóðlist. Í... »

Makkarónuskáld

By Eiríkur Örn

Ég er að lesa til skiptis Everybody who was anybody – a biography of Gertrude Stein eftir Janet Hobhouse, Paradísarmissi Miltons og Íslenska bókmenntasögu I-V. Og nokkrar nýrri ljóðabækur raunar - Din vän datamaskinen eftir Pär Thörn, Går vidare i världen eftir Leif Holmstrand, En Famille eftir Robert Creeley og raunar hitt og þetta... »

Leif Holmstrand

By Eiríkur Örn

Framleiðsla fjandmanna Maður þvælist aðallega bara um þennan vinnustað. Konurnar, þær sem hér eru, grípa til vopna þegar þær æsast, að minnsta kosti þær nýráðnu. Andrúmsloftið er annars ágætt. Gestinum mætir þögul undran, þessar venjulegu spurnarleysur. Herbergið opnar kaldan faðm sinn. Tvístígur, brýnir raustina og segist vera hugmyndafræðilega hlynntur þessu verkefni sem hungrar í gæsku: hér finnast fullkomnar rýmingaráætlanir, hreinar fyrirætlanir og forvitnir áhorfendur, kannski... »

Leif Holmstrand

By Eiríkur Örn

Annarri af tveimur sprengjuárásum afstýrt Hvers vegna að sprengja sig í tætlur? Lögreglan nær taki á konu, skilur hana frá litla manninum sínum. Hann springur í tætlur. Hún andvarpar og votnar um hvarma. Enn með sína hleðslu. Það er miðvikudagskvöld. Og því tekur hún lögguna sína með sér á krána, nei, kennarastofuna, safnaðarheimilið. Þau hjálpa henni að taka af sér túrbaninn, hleypa út... »