Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum

By Eiríkur Örn

Fyrir um tveimur árum síðan tók ég upp útvarpsþætti fyrir Rás 1 sem nefndust Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum. Þar var um að ræða fjóra þætti. Í fyrsta þættinum tók ég fyrir nokkur klassísk verk hljóðaljóðlistarinnar og spurði mig hvað hljóðaljóð væru. Í öðrum þætti skoðaði ég notkun framburðar í hljóðaljóðlist. Í... »

Bútgáfur Nýhils: Fjórar smábækur

By Eiríkur Örn

Nýhil gaf á dögunum út fjórar nýjar smábækur (bútgáfur) og eina þýðingu. Bækurnar eru Ég hata alla! eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, Það sem mér finnst helst að heiminum … eftir Ingólf Gíslason, Usli: Kennslubók eftir Dr. Usla, Sjálf kvíslast ég eftir Hildi Lilliendahl og Sori: Manifestó eftir Valerie Solanas í þýðingu Dr. Usla. Sú fyrstnefnda... »

Hvíslur eftir Frosta Friðriksson

By Eiríkur Örn

Ljóðabókin Hvíslur eftir Frosta Friðriksson kom út árið 2007, gefin út af Norðanbáli og fyrir henni hefur sama og ekkert farið. Á bakkápu segir að Frosti þessi sé menntaður bakari frá Iðnskólanum og myndlistarmaður frá LHÍ, auk þess sem hann mun hafa numið leikmyndahönnun í Svíþjóð og Finnlandi. Það gerist orðið sjaldan að ég... »

Eitt stykki vinstri stjórn

By Eiríkur Örn

Það er að mörgu leyti skiljanlegt að einhverjir vilji refsa flokknum og flokkurinn þarf auðvitað að taka því. Það er ekki nóg að vera í ríkisstjórn, það þarf líka að sýna forystu. En látum það nægja í bili. Svona er málum háttað: Ungt fólk hefur ekki þurft að hafa miklar áhyggjur í lífinu. Það... »

Fyrir Godot

By Eiríkur Örn

forgodot.com er rannsóknarmiðstöð fyrir ljóðlist rekin af Vladimir Zykov, Stephen McLaughlin og Gregory Laynor. Þegar menn tala um rannsóknir og ljóðlist kemur ósjálfrátt Oulipo hópurinn franski upp í hugann, en Georges Perec, Raymond Queuneau og félagar lögðu það í vana sinn að búa til hugmyndir um ljóð. Til að mynda skrifaði Perec verk sem... »