(óbirt færsla um kiljuna, skömmu eftir jól 2009)
Í hvert sinn sem rithöfundur sest niður til að tjá sig um gagnrýni (þá sérstaklega slæma gagnrýni) hefst úlfagólið: Ekki vera svona bitur. Rithöfundar eru skemmtikraftar og gagnrýnendur eru boðberar sannleikans um skemmtikraftana: Þetta er bara ekki fyndið. Rithöfundurinn á að vera slakur og ef hann ræður ekki við það á hann í það... »
Gat ekki haldið í sér lengur – Viðtal í DV
Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl flutti til Finnlands fyrir þremur árum og ætlar að búa í Svíþjóð næstu tvö ár með sænskri eiginkonu sinni og nýfæddum syni þeirra. Á meðan eiginkonan stundar nám í Svíþjóð ætlar Eiríkur að halda áfram að „harka“. Skrifa, þýða og reyna að krækja sér í einhverjar evrur með því að... »
Fjölmiðlar og þýðingar // Barnabók og reyfari
Ég heyrði ekki betur í síðustu Kilju en að eitthvert þeirra Egils, Páls eða Kolbrúnar hefði sagt nýja reyfarann eftir Jo Nesbø vera fyrstu bókina eftir hann á íslensku. Þetta er ekki satt. Þetta er fyrsta bókin í reyfaraseríunni – en Doktor Proktor og prumpuduftið (sem ég þýddi) er eftir sama mann. Eftir tíu... »
Tíminn og vatnið
Ég ætla að leggja fram róttæka kenningu. Í gærkvöldi var því haldið fram í Kiljunni að Tíminn og vatnið, meistaraverk Steins Steinarr, hafi ekki verið neitt atómljóð eða neinar tersínur eða neitt þannig, heldur ástarljóð. Mín kenning er þessi – og veltið þessu nú endilega vel og lengi fyrir ykkur áður en þið hafnið... »
Skjöplaðist
Myndbandið verður ekki í Kiljunni fyrren eftir áramót. »
Frír bjór
Las upp á Kaffibarnum í gær – það gekk vel, nema það er alltaf óþægilegt að halda á míkrafóninum. Svo fékk ég svo mikið af fríum bjór, ofan í allt fría hvítvínið sem ég fékk á tilnefningarkokteilnum, að ég var orðinn bæði ringlaður og tilfinningasamur. Enda úr allri baræfingu. Hallgrímur var næstum því jafn... »
Helst í fréttum: Framfarir
Ég er í Svíþjóð. Yfirgaf Helsinki fyrir viku síðan, var í Noregi yfir síðustu helgi og kom svo til Svíþjóðar, hvar ég hef eytt tíma mínum í Västerås og Linköping. Sit nú á bókasafni og stari út í heiminn eins og ég vænti einhvers. Þetta er helst í fréttum. Sigurður Hróarsson fer ljúfum orðum... »
Smekkleysi að eilífu
Allur í skýjunum eftir yndislega ferð til New York. Er að undirbúa mig fyrir ferð til Brussel á morgun þar sem ég tek þátt í Badtaste4Ever hátíðinni. Hún verður haldin í Paleis voor Schone Kunsten við Ravensteinstraat 23, miðvikudaginn 30. apríl, klukkan 18.30. Frekari upplýsingar hérna og hérna. Ég er búinn að setja inn... »
Auden, hljóðstafablús og hommska
Sigurður A. Magnússon sagði í Kiljunni í gær að W.H. Auden hefði hvergi getað hugsað sér að búa á Íslandi nema á Ísafirði. Þetta finnst mér skiljanlegt viðhorf. Af þeim stöðum sem ég hef komið á í heiminum gæti ég hugsað mér að búa á Ísafirði, Seyðisfirði, Berlín og Helsinki. Á dögunum bætti ég... »
Drullukunta á leið niður í bæ
Ísland gengur bærilega. Búinn að taka upp fjóra útvarpsþætti um hljóðaljóð, fara í viðtal hjá Agli í Kiljuna, borða kvöldmat með Lilliendahl & Son, funda með andræðaskáldi um þýðingar á vandræðaskáldi, drekka kaffi með Ingó og Viðari, spjalla við lénsfrú mína, ásamt slekti, þýða 3 ljóð eftir Linh Dinh sem fara inn á Tregawöttin... »