Bókmenntabarinn Stanza í Malmö
Ég fór til Malmö undir lok marsmánaðar til að lesa upp á Bókmenntabarnum Stanza (sem er atburðabar sem gerist 8 sinnum á ári). Húllumhæið fór fram á Inkonst listhúsinu og meðal annarra þátttakenda var margmálaskáldið Cia Rinne, hinn mikli nestor sænska konkretismans, Bengt Emil Johnson, hans frú, performistinn Kerstin Ståhl og ljóðagrúppan 3 advokater,... »