Tag Archive
Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum
Fyrir um tveimur árum síðan tók ég upp útvarpsþætti fyrir Rás 1 sem nefndust Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum. Þar var um að ræða fjóra þætti. Í fyrsta þættinum tók ég fyrir nokkur klassísk verk hljóðaljóðlistarinnar og spurði mig hvað hljóðaljóð væru. Í öðrum þætti skoðaði ég notkun framburðar í hljóðaljóðlist. Í... »
Litlive
Sænskumælandi má benda á stutta ritgerð sem ég hef púslað saman um bókina Konsumentköplagen, eftir Idu Börjel, fyrir norræna gagnrýnendakollektífið Litlive, nákvæmlega hérna. Ef ég finn fleiri aðferðir til að geta talað skiljanlega sænsku á næstu misserum munu birtast þar frekari rýnir. »
Neytendalögin
Neytendalögin (Konsumentköplagen) eftir sænska ljóðskáldið Idu Börjel er sprokmateríalískur texti – ljóðabálkur skrifaður eins og lagabálkur um samband kaupanda og lesanda, auk hins óræða þriðja – raddar sem er utanaðkomandi og ræðir við áðurnefndar persónur, kaupanda og seljanda. Þannig blandast saman lög um samskipti kaupanda og seljanda og umfjöllun kaupanda og seljanda um lögin... »
Ida Börjel
Saga sem á sér trix Danskar manneskjur eru rúnnaðar þyrstar manneskjur sem hafa ekki neitt á móti neinum hundum. Danskir hundar eru venjulegar verur með smáa flekki. Danski hundurinn lumar alltaf á trixi til að sýna á barnum. Ég er danski bareigandinn og mín setustofa er allra. Spænsku hundarnir eru latar verur með of mikla... »
Ida Börjel
NEYTENDALÖGIN juris lyrik Fyrstu ákvarðanir 1a § Það er ég sem ræð. 1b § Legis virtus haec est: imperare, vetare, permittere, punire. 1c § Máttur laganna felst í eftirfarandi: að skipa fyrir, banna, leyfa, refsa. 2a § Neytendalögin eru í meginatriðum þvingandi lög. 2b § Þau ná yfir kaup á lausum hlutum sem seljanda tekst að selja kaupenda í skiptum fyrir monninga hennar. Neytendalögin – NeytL. Góð lög.... »
