Tag Archive
Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum
Fyrir um tveimur árum síðan tók ég upp útvarpsþætti fyrir Rás 1 sem nefndust Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum. Þar var um að ræða fjóra þætti. Í fyrsta þættinum tók ég fyrir nokkur klassísk verk hljóðaljóðlistarinnar og spurði mig hvað hljóðaljóð væru. Í öðrum þætti skoðaði ég notkun framburðar í hljóðaljóðlist. Í... »
Makkarónuskáld
Ég er að lesa til skiptis Everybody who was anybody – a biography of Gertrude Stein eftir Janet Hobhouse, Paradísarmissi Miltons og Íslenska bókmenntasögu I-V. Og nokkrar nýrri ljóðabækur raunar - Din vän datamaskinen eftir Pär Thörn, Går vidare i världen eftir Leif Holmstrand, En Famille eftir Robert Creeley og raunar hitt og þetta... »
Períóðulist
Fyrir fáeinum árum síðan kallaði ég Hermann Stefánsson períóðulistamann, í ritdómi um bókina Borg í þoku. Sjálfsagt var það aðallega meint í galsa, stríðni jafnvel – ég var sjálfsagt annað hvort að erta hann, egna hann eða hefna mín eftir að hann egndi, erti eða stríddi mér. Ef ég man þá tíð ekki kolvitlaust,... »
Böðvar og Gertrude: Dillandin, ástlaus ef ég segði honum
Á dögunum var ég að leita að tilraunamennsku í íslenskri ljóðlist fyrir 1960: mögulegum þráðum af áhrifum frá dada eða Gertrude Stein eða öðru slíku – og spurði hið góða fólk á ljóðlistarpóstlistanum ráða. Það kom raunar ekki margt út úr því, ekki frá því fyrir 1960, nema smá pælingar um Fútúrískar kveldstemningar Þórbergs... »
Gertrude Stein
Ef ég segði honum Frágengið portrett af Picasso ….Ef ég segði honum kynni hann við það. Kynni hann við það ef ég segði honum. ….Kynni hann við það kynni Napóleón kynni Napóleón kynni kynni hann við það. ….Ef Napóleón ef ég segði honum ef ég segði honum ef Napóleón. Kynni hann við það ef ég segði honum ef... »
Gertrude Stein
Hugsa sér eitt augu Hugsa sér það innan hliðs sem opið opnast á þeirri stundu er lokast sumar það er svo að segja. …….Öll sætin þarfnast svertunnar. Hvítur kjóll er í tákni. Dáti sannur dáti er með trosnaðar blúndur trosnaðar blúndur af ólíkum stærðum það er að segja ef hann kann að lesa, ef hann kann... »
