Til að skapa ódauðleg listaverk …
Til að skapa ódauðleg og eftirminnileg listaverk hjálpar ekki til að vanda sig við að finna leið frá a til ö sem móðgar engan og stígur ekki á neinar tær. Þvert á móti þurfa höfundar, og listamenn allir, að skemmta og ögra sjálfum sér til að neytendur finni að hér sé komið verk, unnið... »
Gæska: Fjallræða um samtímann
Gæska hefur sérstöðu. Í stað hefðbundinna sögupersóna og aristótelísks söguaga er hér sjónarspil hins flaumósa ímyndunarafls, eins og það birtist í meðförum afar spræks söguhöfundar, sem ryðst hér að miðju frásagnarinnar og gengur þar í fóstbræðralag við félagslega vitund sem heldur á lofti öflugri gagnrýni á Ísland samtímans. Útkoman er ein áhugaverðasta skáldsaga síðasta... »
Logi í Beinni – viðtal
Ég fór og spjallaði við Loga Bergmann um bókina Gæsku, hljóðaljóð og ýmislegt fleira. Auk mín voru þarna Eivör Pálsdóttir og Karl Ágúst Úlfsson. »
Varð að bregðast við innrás veruleikans – viðtal í Bæjarins besta
Eiríkur Örn Norðdahl hefur sent frá sér sína þriðju skáldsögu, Gæsku. Bókin hefur fengið góðar viðtökur og frábæra dóma. Henni voru gefnar fjórar stjörnur bæði í Morgunblaðinu og á Pressan.is og gagnrýnendurnir báðir sammála um að hér sé sennilega á ferðinni besta skáldsagan um hrunið. Auk þess lofa þau Eirík Örn í hástert fyrir... »
Gat ekki haldið í sér lengur – Viðtal í DV
Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl flutti til Finnlands fyrir þremur árum og ætlar að búa í Svíþjóð næstu tvö ár með sænskri eiginkonu sinni og nýfæddum syni þeirra. Á meðan eiginkonan stundar nám í Svíþjóð ætlar Eiríkur að halda áfram að „harka“. Skrifa, þýða og reyna að krækja sér í einhverjar evrur með því að... »
Þrúgandi nærvera – moggaviðtal
ÞAÐ hefur verið ríkuleg uppskera af hrunsbókum fyrir þessi jól og þá af öllum stærðum og gerðum. Í því safni sker sig nokkuð úr skáldsagan Gæska eftir Eirík Örn Norðdahl, en hún fléttar saman ævintýri og grjótharðri pólitík svo úr verður býsna beitt ádeila á græðgisamfélagið sem við lifum og hrærumst í. Smellið á... »
Gæska – Víðsjárviðtal
Gæska heitir nýjasta skáldsaga Eiríks Arnar Norðdahl. Gæska er þriðja skáldsaga Eiríks en hann hefur einnig getið sér gott orð sem ljóðskáld og þýðandi. Í nýju bókinni fylgjast lesendur framanaf til skiptist með Freyleifu, ungri konu sem býr sig undir að stökkva út úr háhýsi, og íhaldsþingmanninum Halldóri Garðari, sem sér veröldina skyndilega í... »
Gæska: Fjörug og kröftug þeysireið
Gæska Eiríks Arnar Norðdahls er áleitin bók og ferskur andblær í allri þeirri íslensku listsköpun sem nú sækir andagift sína í hrunið alræmda, en allt of stór hluti hennar hefur einkennst af andleysi og fyrirsjáanlegri retórík. Það má nefnilega margt um hann Eirík segja en seint verður hann sakaður um að vera fyrirsjáanlegur í... »
„Fádæma stílisti“ – fullt hús, fjórar stjörnur á Pressunni!
Hér er sem sagt fengist við alvarleg málefni, hrun, byltingu og nýtt samfélag. En sagan er, sérstaklega framan af, uppfull af ólíkindalátum og fjöri. Persónunum og athöfnum þeirra er stundum lýst í hálfkæringi, stundum í fúlustu einlægni, oft og tíðum grunar maður söguhöfund um að vera gegnumírónískan, öðrum stundum verður frásögnin allt að því... »
Allir fá á kjaftinn – fjórar stjörnur í Mogga
Farsakennd ólíkindalæti kitla hláturtaugarnar í stórskemmtilegri skáldsögu Eiríks Arnar Norðdahl um ástandið á Íslandi sem enginn sér fyrir endann á, hvorki í raunveruleikanum né skáldskapnum. Höfundur Gæsku er feikna stílisti sem þrátt fyrir látlausan flaum orða hefur hárbeittan, írónískan tón og gott vald á framvindunni og persónum sínum. Í bók Eiríks fá eiginlega... »