Kurrar í kólibrífugli » flóttamenn

Vinstripólitík án mannvonsku
Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, þarf ekki nema að skrifa undir einn örlítinn pappír og síðan vaknar maður í Grikklandi. Eða Írak. Eða Afganistan. Peningalaus og allslaus.

Það náttar. Eins undarlega og það nú hljómar í skynsöm eyru þá hófst þetta með því að það dagaði og svo morgnaði. Að minnsta kosti skil ég þetta þannig. Eftir að morgnaði gerðist ekkert fyrr en það tók að kvölda. Og nú náttar, sumsé. Það er komin nótt. Þegar öll nótt er loks úti mun daga á ný. Það sér hver maður og skilja allir nema hinir allra vitlausustu.

Jóhanna er sterkasta kona Íslands. Jóhanna er líka valdamesta kona Íslands.

Í gær átti Dagblaðið Nei. afmæli. Ársafmæli. Dagblaðið hætti að koma út fyrir nokkru og er efsta fréttin sem lifir jákvæð – líkt og bjartsýn ósk deyjandi blaðs. Ný stjórnmál, stendur í fyrirsögn, og myndin er af hafi rauðra fána á Austurvelli framan við græn trén og reffilegan Jón Sigurðsson. Vetri er lokið, ríkisstjórn (löngu) farin frá, búið að halda kosningar og blaðið, sem andvarpar síðustu öndinni, vonar að allt verði gott.

Ný stjórnmál.

Ég var einhvern tíma voða ánægður með Jóhönnu Sigurðardóttur sem forsætisráðherra. Og Steingrím og Kötu Jak og allt það. Var ánægður að hafa fengið Borgarahreyfinguna á þing. En kannski er ég bara ekki hæfur um að vera sáttur í langan tíma í senn. Ég er í það minnsta ekkert ánægður lengur og mér þykja þessi nýju stjórnmál, sem virtust í sjónmáli, minna óþægilega mikið á gömlu stjórnmálin.

Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindamálaráðherra var send út af örkinni í vikunni til að halda einhverja puntræðu í tilefni af 50 ára afmæli mannréttindadómstóls Evrópu, nýbúin að fara út með ruslið, einsog Haukur Már kallaði það réttu nafni. Hún fór út með þá Nour, Múhameð og Múhameð, vísaði þeim úr landi og sendi á flóttamannahæli í Grikklandi sem hefur margsinnis verið fordæmt af alþjóðastofnunum, þaðan sem þeir verða líklega sendir til sinna upprunalegu heimalanda, þar sem allt eins er víst að þeirra bíði bara dauðinn ef ekki eitthvað ennþá skemmtilegra.

Ragna fékk sem betur fer ekki að halda ræðuna – það var þó ágætt að einhver stoppaði hana. Það hefði verið ógeðslegt.

Síðan fengu nýju stjórnmálin flog yfir aðferðafræði mótmælenda. Feisbúkkarar um víðan völl lýstu sig jafnvel sammála málstaðnum (að brottvísunin væri röng og ómannúðleg) en að maður gæti nú bara ekki gert svona. Ha? Bara baulað á ráðherrann?

Svo djúpt ristir virðingin fyrir valdi á Íslandi og er til dæmis um hryggjarlausan aumingjaskap – svo djúpstæð virðing er borin fyrir valdinu, jafnvel þegar því er misbeitt, að ekki má undir neinum kringumstæðum segja valdsmönnum til syndanna. Ekki einu sinni þegar þeir misbeita valdi sínu á þann hátt að mannslíf gætu verið í húfi. Maður á nefnilega annað hvort að kyssa vöndinn eða halda kjafti. Og alls ekki kalla fólk morðingja nema það hafi, í allra bókstaflegastri merkingu, blóð á höndunum. Með rjúkandi byssuna í höndunum og vottaða, stimplaða og undirritaða játningu sem meðtekin hefur verið af til þess gerðum dómara.

Ég verð reyndar alltaf jafn hissa á því hvað ég verð hissa á að uppgötva mannvonsku. Einsog þetta sé eitthvað nýtt fyrir manni.

Sem sagt – ég er kannski ekki að útskýra neitt með þessu röfli – þeim sem hafa engan ramma um þetta mál er bent á að lesa þetta, þetta og þetta – og þeir sem vilja stuttu útgáfuna fá þetta sítat í Helga Jóhann Hauksson:

Engin lög eða reglur banna Rögnu að veita Noor og þeim öðrum sem hún sendi nú til Grikklands hæli, eða skylda hana til að senda hann úr landi – en Ragna gerir það samt, engin lög eða reglur banna Rögnu að leyfa Noor að hafa með sér símann – en Ragna gerir það samt, engin lög eða reglur banna Rögnu að veita Noor 15 daga málsmeðferðarfrest – en Ragna gerir það samt, enginn bannar Rögnu að sjá til þess að hann/þeir geti skipt krónunum sínum í nothæfan pening en Ragna gerir það samt, enginn skyldar Rögnu til að nota heimild Dyflinnarsamningsins um endursendingu til fyrsta Shengenlands en Ragna gerir það samt.

Hér geri ég ráð fyrir að allir sem á annað borð rata hingað inn þekki til sjálfs málsins – en kannski ekki svo vel að vita allt það sem Helgi tíundar hér að ofan. Á því hefur nefnilega verið hamrað (af hægrimönnum aðallega, sem hafa komið dómsmálaráðherra svonefndrar vinstristjórnar til varnar) að Ragna hafi bara verið að fara að lögum. Það er spuni og kemur staðreyndum málsins ekki við.

Helgi hefur raunar í ofanálag bent á að Dyflinnarsamkomulagið kveði á um að þessa heimild til að senda flóttamenn til fyrsta viðkomulands í Schengen eigi ekki að nýta ef lengri tími en 3 mánuðir líða án afgreiðslu máls þeirra, og að minnsta kosti Nour mátti bíða miklu lengur en það.

Í ríkisstjórn og ríkisstjórnarflokkum er sægur fólks sem ég eitt sinn bar virðingu fyrir. Og ég skal alveg fyrirgefa þeim flest – Icesave er áreiðanlega óhjákvæmilegt, líkt og alls kyns niðurskurður (samt ekki til þróunarhjálpar, takk fyrir) og samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og NATO. Tiltektin, svonefnda, er áreiðanlega kostnaðarfrek og ósanngjörn og erfið og því má alveg kyngja með góðum vilja. Mörgu með ægirömmu óbragði, reyndar, í sumum tilvikum.

En mannvonsku á borð við þá sem Ragna Árnadóttir hefur gerst sek um verður að linna. Tafardjöfulslaust.

Að þingflokkur Vinstri-grænna þegi síðan í ofanálag yfir þessu máli á ég bágt með að skilja og líklega enn bágara með að fyrirgefa. Að ekkert þeirra skuli geta einu sinni látið svo lítið að hreyta dálitlum ónotum í dómsmálaráðherra. Hvers vegna ályktar ekki UVG? Og svæðisfélögin?

Er það einfaldlega svo að enginn andæfi dómsmálaráðherra því ekki megi rugga bátnum án þess að þjóðarskútan fari á hliðina? Án þess að Sjálfstæðisflokkurinn komist aftur í ríkisstjórn? Ef að þetta er það sem þeir kalla rekstrarkostnað í mafíubíómyndum – the cost of doing business – þá er ég hættur að kjósa. Ekki bara vinstrigræna eða aðra vinstriflokka heldur einfaldlega hættur að kjósa punktur. Ef ekki er hægt að reka vinstripólitík án þessarar mannvonsku má Sjálfstæðisflokkurinn, mín vegna, eiga þetta land með gjá og gljúfri, fjalli og fjöru, smjöri og smáralind, stöðlum og stuðlum. Og hananú.

Og nú skal ég reyna að hætta að skrifa svona einsog eitthvað moggabloggsviðrini og snúa mér aftur að heiðarlegum deleringum um ljóðlist.

Þegar Ísafjörður tók á móti flóttamönnum …
Mér finnst merkilegt að horfa á sjónvarp, og lesa síðan umræðuna sem sprettur upp úr sjónvarpinu í öðrum miðlum. Þegar Viðar Þorsteinsson mætti í Silfur Egils í vetur var ítrekað haft eftir honum að það væru engir íslamistar í Evrópu – sem hann sagði aldrei.

Í gær sagði Egill sjálfur að hann ætlaði ekki að nota orðið „rasisti“. Nú skammast allir út í Egil fyrir að segja rasisti. Sem hann og sagði. En hann kallaði ekki Magnús Þór rasista.

Magnúsi Þór er hins vegar lítil vorkunn að vera kallaður rasisti, þegar hann leggur öll sín lóð á að draga úr ferðafrelsi útlendinga til Íslands – meðal annars frá því sambandsríki sem Ísland á að hluta aðild að – og ekki síst þegar hann reynir að koma í veg fyrir að flóttamenn komi í heimabæinn hans, sem hann lætur með eins og þar ríki fátækt sem sé sambærileg við örbirgð flóttamanna (hjálpum „okkur“ fyrst, síðan „hinum“, ef öllum „okkar“ verður nokkru sinni bjargað). Magnús Þór gerir því að auki skónna að þeir sem bent hafi á Ísafjörð, og móttöku flóttamanna þar fyrir hartnær áratug, sem dæmi um að móttaka flóttamanna geti heppnast mjög vel, geri sér ekki grein fyrir því að Akranes sé í allt öðrum sporum og félagslega kerfið þar sé ekki að nokkru leyti sambærilegt við það sem gerðist á Ísafirði 1996.

En svona svo það sé rifjað upp – þá var tíundi áratugurinn ansi svartur fyrir vestan. Ekki bara var nær allri fiskvinnslu á Ísafirði lokað á þessum árum, Guggan seld og efnahagurinn í rúst eftir kvótakerfið (en þá sögu ætti Magnús að þekkja) – heldur hefði hæglega verið hægt að benda á að við „ættum nóg með okkar vandamál“ að loknum tveimur snjóflóðum í nágrannasveitarfélögum árið 1995 (og einu stóru að auki á Ísafirði árið 1994), og sameiningu sveitarfélaga árið 1996 (sem kostaði mikið, og flutti til skuldir þannig að stóra sveitarfélagið stóð nokkuð verr en litli Ísafjörður á undan – að ekki sé minnst á þau aðlögunarferli sem þurfti að keyra í gegn). Reynslan af móttöku flóttamanna á Íslandi var auk þess töluvert minni – enda er öllu sómasamlegu fólki mikil skömm af dugnaðarleysi Íslands á þeim vettvangi, og þó það hafi eitthvað batnað á síðustu árum er engan veginn nóg að gert. Ég þykist þá líka viss um að einhverjir hafi verið á biðlista eftir félagslegu húsnæði (enda fóru ríflega 40 hús til andskotans árið áður – og öll sumarbústaðabyggðin í Tungudal árið þar á undan).

Þá var sama aðstoð í boði frá ríkinu – þetta eina ár, sem Magnús Þór hefur ítrekað svo ítrekað. En auk þess var efnt til söfnunar meðal bæjarbúa, sem gáfu föt og húsbúnað, og sjálfboðaliðar hjálpuðu til við að koma húsnæði þeirra í gott horf – stuðningsfjölskyldur mynduðu vinasambönd við flóttamannafjölskyldurnar – og þar fram eftir öllum margblessuðum götunum.

En þrátt fyrir þessar bágu aðstæður, datt engum (svo ég muni) í hug að bera saman eina eymd við aðra – það datt engum í hug að forgangsraða aðstoð eftir þjóðerni þess sem þurfti aðstoð, eða hvort hann gæti talað íslensku. Þess þá síður. Súðvíkingar, Flateyringar og flóttamennirnir áttu það sameiginlegt að búa við mikinn harm – og flóttamennirnir þar á ofan mikla nauð (eigandi ekki það bakland sem fólk í friðsælum löndum getur treyst á – fjölskyldu, sterkefnað ríkisvald og vestrænt ríkisfang).

Nú rétt í þessu var að ljúka lengsta uppgangsskeiði íslensks efnahags í manna minnum. Sem þýðir ekki að það séu ekki félagsleg vandamál á Íslandi – og að þau eigi að leysa af eins miklum móð og mönnum er frekast unnt. En það þýðir ekki heldur að við séum ekki aflögufær – sem þjóð, sem bæjarfélög, og já, oft líka sem einstaklingar. Magnús Þór er hinsvegar að leika pólitík – og það popúlíska, af kaldranalegustu sort (og vísar, eins og bræður hans í Evrópu, stöðugt á einhvern óljósan „almenning“) – þegar hann reynir að telja fólki trú um að hér sé einungis hægt að gera annað hvort eða, en ekki bæði og. Með því gerir hann lítið úr Akurnesingum (hvar ég á mikla fjölskyldu í föðurætt) sem ég hef fulla trú á að séu alveg jafn almennilegt fólk og Ísfirðingar (hvar ég var alinn upp, og á mína áa) – já, eða til dæmis Írakar af palestínskum ættum – og fullt eins reiðubúnir til þess að taka til hendinni í þeim tilgangi að draga dálítið úr þeirri ofgnótt eymdar sem ríkir í heiminum.

Hjálp! Flóttamennirnir koma!
Það líður að laugardagskvöldi í Helsinki. Í öllum hornum bera menn gel í hárið, pússa ballskóna, strauja jakkafötin, brýna kuta sína, tálga kylfur og bóna hnúajárn. Í kvöld verður keppt um bronsið á HM í íshokkí, og keppinauturinn er erkióvinurinn hinumegin sundsins: Svíþjóð. Íshokkí í Finnlandi gengur út á tvennt. Annars vegar að ná sem bestum árangri á mótum, og hins vegar að rústa helvítis Svíunum. Það hefur víst ekki gengið svo vel undanfarin misseri. Taugaveiklunin verður svo mikil, froðufellandi bræðin byrgir þeim sýn og þeir leika aldrei jafn illa og á móti hinum umburðarlyndu Svíum – sem eins og frægt er kunna ekki að reiðast.

Ég er giftur inn í sænska velferðarríkið, og líklega munum við frúin hafa hægt um okkur næstu vikur. Í það minnsta ef Svíþjóð vinnur.

Vinstrimenn ala á ótta við „umræðuna um innflytjendamál“. Eða svo skilst manni. Vilja hreinlega ekkert um útlendinga tala. Enda virðist manni að sú umræða eigi, samkvæmt sömu heimildum, að vera neikvæð. Umræða um innflytjendamál á að snúast um það hvernig við getum komið í veg fyrir að til Íslands komi útlendingar. Eða hvernig við eigum fyrst að hugsa um okkar eigið fólk.

Þetta er auðvitað bara gamaldags rasismi. Eða þjóðernishyggja. Xenófóbía. Mér er svo sem nokk sama hvað það er kallað. Eitthvert undarlegt samkrull af ótta og fyrirlitningu í garð þeirra sem „eru ekki eins og við“ – þ.e. þau eru fátæk, útlensk og í vandræðum.

Með því að taka á móti flóttamönnum, eða innflytjendum frá fátækum löndum, erum við að flytja inn félagsleg vandamál. Það er staðreynd. Fólk sem er alið upp í flóttamannabúðum þarfnast mikillar aðstoðar, og það er ekki gefið að það nái nokkurn tímann að lifa eðlilegu, óttalausu lífi. Fátækt ber með sér alls kyns fylgikvilla. Hún kostar t.d. peninga – og hana verður að skilja í ljósi þess valdleysis sem hún sprettur úr og hrærist í.

En að eitthvað sé erfitt – og ekki endilega íslensku samfélagi „til góða“ (en það má í það minnsta debatera) – er ekki eini mælikvarðinn á það hvað maður á að gera og hvað ekki. Veröldin er ekki bara Ísland. Að markera það sem svo að fyrst það finnist vandamál á Íslandi eigi Íslendingar ekki að skipta sér af öðrum vandamálum, er í grunninn mannfjandsamleg einangrunarstefna. Það er rétt að forgangsraða þeim vandamálum sem maður ákveður að takast á við – en það er illyrmislegt að setja í forgang eftir þjóðerni, frekar en neyð.

Vandamálin 25 fjölskyldur á biðlista eftir félagslegu húsnæði á Akranesi og tugir milljóna á vergangi í flóttamannabúðum af pólitískum ástæðum eru einfaldlega ekki sambærileg. Ísland ætlar að taka á móti 60 (líklega, a.m.k. 30) flóttamönnum, að svo stöddu. Í hverjum mánuði bætast um 60 þúsund manns í þennan hóp, bara í Írak. Ísland getur ekki „leyst“ þennan vanda, eitt og óstutt, en heimsbyggðin getur það ekki heldur ef allir hjálpast ekki að. Þó að við myndum sleppa því að gera ráð fyrir efnahagslegum mismuni á milli þjóða (sem er gríðarlegur, og Ísland er meðal þeirra allra, allra ríkustu) og segja einfaldlega að allir ættu að leggjast á eitt og taka að sér flóttamenn í samræmi við íbúafjölda landsins, myndi það þýða 30 Íraka á mánuði fyrir Ísland, eða 360 á ári. Sem myndi raunar ekki gera nema 7,2 flóttamenn á ári á Akranesi. Þetta er sem sagt um átta ára skammtur. Hvenær tók Akranes síðast við flóttamönnum, annars? Eru meira en átta ár síðan?

Annars er það algerlega ljóst að þessi útreikningur gengur ekki upp. Í fyrsta lagi eru margar þjóðir heimsins ekki færar um að taka á móti flóttamönnum, bæði vegna pólitískra aðstæðna og efnahagslegra. Í annan stað eru þjóðir heimsins, eins og áður sagði, misríkar, og eðlilegt að þeir sem mest eiga, leggi mest af mörkum.

Ef miðað er við verga þjóðarframleiðslu á mann, og tölur frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum fyrir 2007, er Ísland með um 7,5 X meðaltalið (63.830 USD á ári miðað við 8.356 USD á ári). Mér finnst erfitt að finna út úr því hversu stór hluti heimsins getur ekki tekið við flóttamönnum af pólitískum ástæðum – og það er sömuleiðis erfitt að átta sig á því hvar fátæktin er svo mikil að þær tekjur sem verða til er beinlínis ekki hægt að nota í neitt annað en framfærslu íbúanna – en ef við leyfum okkur að miða einfaldlega við krónutöluna, þá er ljóst að  eigi allir að leggjast á eitt við að útrýma þeirri óásættanlegu óværu að fólk í heiminum búi á vergangi, stríðshrjáð, hungrað og án aðgengis að heilbrigðisþjónustu, menntun eða hreinu vatni – og Akraneskaupstaður tæki á sig sinn hluta byrðarinnar, væru það um 54 einstaklingar á ári. Sem er næstum því sextíu. Og þá erum við bara að tala um tilfærslu á litlu broti af heimsins harmi, inn á svæði þar sem auðveldara er að tækla hann. Íslendingar ættu þá að taka á móti 2.700 Írökum á ári. Tilfærslan eyðir að sjálfsögðu ekki vandamálunum, en hún getur hjálpað til – þetta er einfaldlega spurning um að koma fólki í hús áður en það deyr af einhverri þeirra ótal ástæðna sem maður deyr af í flóttamannabúðum. Þetta er alger neyðarhjálp. Og neyðin er mikil. Mér þykir það leitt gagnvart þeim 25 fjölskyldum á Akranesi sem eru á biðlista eftir félagslegum íbúðum, en neyð þeirra er einfaldlega ekki samkeppnishæf.

Annars þætti mér vænt um ef einhver gæti útskýrt það fyrir mér hvað það þýðir, að 25 fjölskyldur séu á biðlista. Er þetta fólk sem er að leita að stærra húsnæði? Sefur þetta fólk kannski á dýnum í íþróttahúsinu á Akranesi? Eða á sófum hjá ættingjum? Er þetta atvinnulaust fólk – eða duga lágmarkslaun ekki fyrir framfærslu þeirra? Það væri áhugavert að fá að vita hverjar aðstæður þessa fólks eru – og ekki væri verra að einhver léti sér detta í hug lausnir á vandamálum þeirra, aðrar en að það eigi ekki að hjálpa stríðshrjáðum útlendingum. Það hjálpar nefnilega nákvæmlega engum.