Tag Archive

Períóðulist

By Eiríkur Örn

Fyrir fáeinum árum síðan kallaði ég Hermann Stefánsson períóðulistamann, í ritdómi um bókina Borg í þoku. Sjálfsagt var það aðallega meint í galsa, stríðni jafnvel – ég var sjálfsagt annað hvort að erta hann, egna hann eða hefna mín eftir að hann egndi, erti eða stríddi mér. Ef ég man þá tíð ekki kolvitlaust,... »

Anne Boyer

By Eiríkur Örn

Ástir hinna glaðlyndu verkamanna Í upphafi hefjum við leikinn með Woody og hugsjónakossi hans. Ég get ekki lagt frá mér Síberíu en get ekki sleppt að sleppa af henni hendinni. Varir hans voru hugleiðingar öreiganna í maí, orrusta sýklanna, þessi venjubundni ótti við nýbökuð brúðhjón, umbóta- eða byltingarsinnuð. Bjargað frá drukknun, settist ég klofvega á Woody á bolsévíska rúmdýnuna og biðlaði eins og suðupottur í... »

Rodney Koeneke

By Eiríkur Örn

Slavoj Zizek leyfið börnunum að koma til MySpace farið úr eldhúsinu eða ég sæki um skilnað stríðið eins og það átti sér stað í kennslustundum mínum kraftur internetsins versus fjölmenningarstefna samtímans Slavoj Zizek trén standa öll í blóma breiðast út fyrir sakir hárlenginga minna á YouTube það var ekki að ég vildi þetta sérstaklega hún bara gekk og þetta svona datt eiginlega af þegar... »

Shanna Compton

By Eiríkur Örn

Undir þessari regnhlíf er önnur regnhlíf Það var rigning & þau stóðu saman undir strætóskýlinu þó hún héldi á doppóttri regnhlíf sem enn var opin & það draup af henni. Hann hugsaði, ég þori að veðja að undir pilsinu hennar er annað pils, eins konar millipils & svo undirkjóll & nælonsokkar festir með sokkabandi með sveigjanlegum hnöppum & gúmmíhöldum innundir mittisteygjunni & undir kápunni hennar... »

Sharon Mesmer

By Eiríkur Örn

Óþolandi sykursýkistussa Óþolandi sykursýkistussan þín. Lystarstols- offitu- sykursýkistussan þín. Heimska, óþolandi, hæfileikalausa sykursýkistussa, éttu sykursýki. Þú og þetta tussuskrímsli sykursýkis-dóphausinn hann pabbi þinn, og sykursjúki kötturinn þinn, brjóstumkennanlegi, aldurhnigni, sykursjúki kötturinn þinn sem étur fugla – tussufugla – rassríðandi kroppaskrímsli, þú færð mig til að vilja leggjast í sykursýkisdá eins og þarna óþolandi einkaritarinn í Ally McBeal, breska freðýsu sykursýkis tussuböllurinn þinn. Sjáðu... »

K. Silem Mohammad

By Eiríkur Örn

MySpace er krípí Og því hef ég komist að þeirri niðurstöðu að MySpace sé krípí. Þú spyrð þig kannski hvernig ég hafi komist að þessu. Nú, það skal ég segja þér. Ég hef komist að því að fólk sem ég hef aldrei hitt veit hver ég er. Meira að segja ég hef látið gabbast til að búa til uppblásinn... »

Nada Gordon

By Eiríkur Örn

Gosbrunnur Veröldin lyktar eins og þvagskálar mynta í dag – líklega út af öllum „hreinsununum.“ Hvert sem maður fer er þetta „vandræðalega pláss.“ Plastpokar yfir andlitum. Svívirðilegt bongó, stúrið Vaselín, glitrandi gjarðir í kringum dvínandi ilmsmyrsl – alrúnan spinnur segul í klefa sínum. Allt er gott við endalok tímans! – og ljósir kímonóar æpa í fráhnepptu loftinu. Ég er leiðinlegur alþýðutrúbador sem tekst ekki að ríma LJÓÐRÆNA við LOFRÆÐA. Kassöndrurassgatsdrasl . . .... »

Katie Degentesh

By Eiríkur Örn

… Endurbyggjum Tvíburaturnana í New York … á pizzunni þinni Ég er reiðari en þjónn yfir tíu senta þjórfé vegna þess sem gerðist þegar ég sagði elsku hjartans möffinsinni minni að Tvíburaturnarnir – stóðu hlið við hlið, á meðan starfsliðið og ég fylgdumst með tvíburaturnunum í Heims … ég nefni þetta verkefni „Að leita að... »

K. Silem Mohammad

By Eiríkur Örn

Djöfladrengur ritgerðin sem ég á að vera að skrifa er kritísk analýsa á leikriti Shakespeares Ég vil ekki flytja til New Jersey og hvar er osturinn Mike „djöfladrengur“ Barbier bíður í biðröð eftir samlokum með grilluðum osti og beikoni ekki ósvipað og kölski Miltons vill í stríð við Guð í raun er hann El Diablo stóri dökki osturinn óseðjandi fígúra á vitsmunalegum... »

Flarf-hátíðin í New York

By Eiríkur Örn

Laugardaginn 26. apríl næstkomandi kem ég fram á ljóðahátíðinni FlarfFest í New York, á Bowery Poetry Club, sem er á 308 Bowery. Flarf er ljóðlist hins óviðeigandi, dónalega og stolna. Ég hef skrifað um Flarf fyrir Tímarit Máls og menningar, Fjórar gerlaprufur úr framandi framúrstefnuljóðlist – það er síðasti kaflinn – og hef auk... »