Kurrar í kólibrífugli » e.e. cummings

Fyrstu orð og síðustu
Um daginn minntist ég á að fyrsta orð e.e. cummings hafi verið ‘húrra’.

Nú var ég að lesa að síðustu orð James Joyce hefðu verið: Does nobody understand?

Davíð Stefánsson, Sovétríkin og Cummings
Davíð Stefánsson er fenómen!

Nei djók.

Ég er að lesa ævisögu Davíðs Stefánssonar, Snert hörpu mína, eftir Friðrik Golgeirsson. Hún er áhugaverð um margt, en væri það kannski síður ef ég hefði vitað mikið um Davíð fyrir, sem ekki er almennur fróðleikur.

Upplög bóka hans ansi eru til dæmis mögnuð fakta – á fjórða, fimmta þúsund bækur í fyrsta prenti. Golgeirsson segir að það sé líklega einsdæmi á Norðurlöndum, jafnvel í heiminum.

En lýsingar á borgaralegum þjóðfundum eru þreytandi. Hver las hvaða kvæði og sæmdi hvern hvaða orðu og hverjir sungu hvaða lög samin af Páli eða Atla við texta Davíðs … og bla bla. Þetta væri kannski ekki svo slæmt ef myndirnar frá þessum gumparalegu samkomum væru aðeins glæsilegri – myndirnar í bókinni eru allar hálfsvartar, einhvernveginn, hvernig sem á því stendur.

Annars er skáldlíf Davíðs ein stanslaus sigurganga, þó Golgeirsson leggi sig fram um að gera stórmál úr því ef nokkru verki þjóðskáldsins mistekst að rista nafn sitt að eilífu í sálarberg Íslendinga. Og sjálfsagt gerði Davíð líka sjálfur úr því mikið mál. Og erfitt að finna dramatískar dýptir í jafn sigursælu lífi, en þá er kannski líka betra að byggja á hæðunum. En hið smáa er stórt í harmanna heim, eins og Einar kvað, og allt það og dirrindí.

Davíð yngri höfðar mun meira til mín en sá eldri (og nú er ég að tala um aldursskeið Davíðs Stefánssonar, en ekki Davíð og nafna hans Davíð A. Stefánsson, ljóð.iskáld). Það er kannski margt ágætt um þann eldri að segja, en það er krafturinn í þeim yngri sem heillar mig – jafnvel óregla og óþroski. Sem eru langtum ákjósanlegri eiginsköp en regla og gumpuglegheit.

Miklu púðri er eytt í að útskýra samband Davíðs við sósíalismann, og það er með áhugaverðari köflum bókarinnar. Vinskapur hans við Einar Olgeirsson og svo hvernig sósíalistar reyndu að “eigna sér” Davíð. Hvernig Einar sendi Davíð í austurveg og Davíð missti samúðina með Sovétríkjunum. Raunar er ekki alveg útséð með að hann hafi nokkru sinni haft neina samúð í þá átt. En hann stóð með verkföllurum í breskum kolanámum, og raunar “lítilmögnum” víðs vegar. Kemur heim frá Sovét og heldur að sögn nokkuð neutrala fyrirlestra um kosti og galla ráðstjórnarfyrirkomulagsins (eins og hann löngu síðar sagði samyrkjubúsformið ágætis hugmynd, svo fremi hún gengi að skapgerð manna).

Einhvernveginn endar þetta samt svo að sósíalistar hafna honum eftir að hafa tuggt svolítið á Dísu og dalakofanum, þar sem segir m.a.:

Og meðan blómin anga og sorgir okkar sofa,

er sælt að vera fátækur, elsku Dísa mín.

Eins og fólk getur ímyndað sér féll þessi boðskapur um sælu fátæktarinnar ekki í frjóan jarðveg hjá sósíal-raunsæjum.

Nema hvað – höfundur eyðir eins og áður segir miklu púðri í að greina þessi tengsl, vinstra megin, en lætur hin, hægra megin, nær alveg vera. Davíð er sagður hafa mátt gjalda stjórnmálaskoðana sinna – þó hann verði styrkfeitur í fullri vinnu sem bókavörður og selji fleiri bækur en nokkur annar. Þá er sjaldan minnst á stöðu hans í pólitíska litrófinu, þó einstaka sinnum séu ræddar afstöður hans til einstakra mála (og þá helst rýmingu sveitanna sem og almenna andstöðu hans við ofríki og einræði). En á stöku stað er skáldið samt sagt hægrisinnað, án þess að færð séu fyrir því frekari rök. Nú spyr ég mig eins og bjáni: getur verið að á meðan vel tókst til með að forða Davíð frá skolti sósíalista (þ.e. honum var forðað frá því að þeir fengju úrskurðarvald um merkingarramma ljóða hans) þá hafi honum verið sporðrennt af hægrisinnaðri borgarastétt svo rækilega að ekki þurfi að efast um það meir?

Og hvernig útskýrir maður burt ljóð eins og Vodka, sem svo að þau fjalli bara um Sovétríkin? Kannast enginn við þennan diskúrs, þetta tungutak, úr sósíal-realismanum?

Skál, skál fyrir þingi og þjóð

og þrælum sem gjalda í ríkissjóð,

og valdi, sem ver

sig með vopnuðum her,

og drottnandi stétt

sem finst ranglætið rétt.

Fleiri brennandi bál.

Meira blikandi stál.

Meira verksmiðjuskrölt.

Fleiri sýrur og sölt.

Meira silki og ull.

Meira silfur og bull.

Hégómi. Bull.

Fleiri kirkjur og krár.

Fleiri krókódílstár.

Drekkjum samvizku og sál.

Skál.

Davíð hélt til Sovétríkjanna árið 1928, og var lítið hrifinn, þrátt fyrir almennt hrifnæmi sitt. Annað hrifnæmt ljóðskáld, E.E. Cummings, fór þremur árum síðar í sama veg og var jafnvel ennþá minna hrifinn.

I feel whatever’s been hitherto told or sung in song or story concerning Russia’s revolution equals bunk …. And what has been miscalled the Russian revolution surely is more foolish than the supposable world’s attempt upon natural and upon immanent and upon perfect and upon knighthood: an attempt motivated by baseness and by jealousy and by hate and a slave’s wish to substitute for the royal incognito of humility the ignoble affectation of equality.

En Cummings – líkt og raunar Davíð, hafi ég skilið hann rétt – fyrirleit ekki síður alla hægripólitík (eða réttara sagt alla valdapólitík, til hægri eða vinstri eða norður og niður) og sagði m.a. að listamaður gæti aldrei verið kapítalisti. Munurinn á þeim var kannski sá að á meðan Davíð talaði alltaf í hálfgerðum gátum, því hvað sem leið yfirlýsingum hans um að hann vildi ekki dylja tilfinningar sínar þá er alveg ljóst að hann duldi kerfisbundið meiningar sínar og virðist raunar hafa verið óvenju var um einkalíf sitt, þá sagði Cummings skoðanir sínar beint út, no ifs ands or buts about it. Davíð sagði sjálfsagt aldrei Einari Olgeirssyni að hann væri enginn kommúnisti og þess vegna ályktaði Einar að hann væri kommúnisti þar til annað kom (smám saman) á daginn, eftir að farið var að þrýsta á hann. En hægrimenn hafa líklega ekkert þrýst, enda gerðu þeir ekki og gera ekki enn neina kröfu um að listamenn þeirra yrki um annað en blóm og bjartar sumarnætur, á meðan Davíð lifði á tímum sósíal-raunsærrar dagskipunar sem listamenn annað hvort fylktu sér að baki eða ekki. Hægrimenn gátu fyrirgefið Davíð verkalýðskvæðin, jafnvel dáð hann fyrir samúðina með lítilmagnanum, sympatíur og empatíur, á meðan sósíalistar gátu ekki fyrirgefið Dísu og dalakofann.

Ekki svo að skilja að Cummings eða Davíð hafi verið ópólitískir – þeir voru báðir ákafir einstaklingshyggjumenn. Davíð var borgari og aristókrat og Cummings var bóhem og aristókrat. Og ljóðlist þeirra, þó hún eigi eitthvað skylt í hrifnæmi og pólitík, er formrænt eins ólík og hugsast getur – enda Cummings mikill íkonaklastur. Svona orti Cummings m.a. um heimsókn sína í grafhýsi Leníns, í skáldsögunni Eimi:

facefacefaceface

facefaceface

faceface

Face

…….:all(of whom-which move-do-not-move numberlessly) Toward

the

…….Tomb

…….……...Crypt

…….…….…….…Shrine

..Grave.

..The grave.

..Toward the(grave.

..All toward the grave)of himself of herself(all toward the grave

of themselves)all toward the grave of Self.

..Move(with dirt’s dirt dirty)unmoving move un(some from nowhere)

moving move unmoving (eachotherish)

….:face

…..Our-not-their

…..faceface ;

…..Our-not-her

….. , facefaceface

…..Our-not-his

…….…….…….–toward

Vladimir our life!Ulianov our sweetness!Lenin our hope!

all–

(hand-

………fin-

…….…….claw

foot-

…….hoof

tovarich)

…….…….es : to number of numberlessness ; un

-smiling

Þetta er ekki alveg sama mælskan og í Vodka – enda Cummings kannski fyrst og síðast skáld síðunnar á meðan Davíð var skáld upplestursins. Cummings las reyndar ágætlega, en ef maður ætlar að finna samsvörun við upplestrarskáldið Davíð væri það frekar kunningi Cummings og drykkjufélagi, Dylan Thomas. En Cummings var nú samt góður – hér les hann Let’s From Some Loud Unworld’s Most Rightful Wrong:

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="400" height="27" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="bgcolor" value="#ffffff" /><param name="flashvars" value="playerMode=embedded" /><param name="src" value="http://www.google.com/reader/ui/3247397568-audio-player.swf?audioUrl=http://ubu.artmob.ca/sound/cummings_ee/Cummings-ee_Lets-From-Some-Loud.mp3" /><param name="wmode" value="window" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="400" height="27" src="http://www.google.com/reader/ui/3247397568-audio-player.swf?audioUrl=http://ubu.artmob.ca/sound/cummings_ee/Cummings-ee_Lets-From-Some-Loud.mp3" wmode="window" flashvars="playerMode=embedded" bgcolor="#ffffff"></embed></object>

Af ubu.

Fyrsta orðið sem Cummings sagði á ævinni var annars “húrra”. Húrra er auðvitað upphrópun – sem gaf til kynna að þarna væri hljóðaljóðskáld á ferðinni frekar en nostursamur greinarmerkjari og setjari.

Að næstsíðustu er sjálfsagt að minna á að nokkrar þýðingar á ljóðum eftir Cummings er að finna í ljóðaþýðingasafninu.

Að langsíðustu er svo rétt að geta þess, til enn frekari sönnunar á undirsölsun hægrimanna á Davíð Stefánssyni, að myndin sem prýðir þessa færslu er fengin af Vefþjóðviljanum og ég fann hana á gömlu bloggi Stebbafr.

e.e. cummings
Vísunda-Villi er

Vísunda-Villi er

liðinn

………hann átti það til að

….……………..ríða vatnssléttum silfur

….….….….….….….….….….….….….….stóðhesti

og brjóta einatværþrjárfjórarfimm dúfurbarasvona

….….….….….….….….….….….….….….….….….….Jesús

hann var myndarlegur maður

….….….….….….….….…en það sem ég vildi vita var

hvernig líkar þér við bláeygða piltinn þinn

Herra Dauði

e.e. cummings

e.e. cummings
ó að vera í finnlandi

ó að vera í finnlandi

eftir að rússarnir komu)

syng lágt

ljúfi hand

far

an gur

(láttu frelsin ganga pápi eða

sælokk frændi missir áhugann

e.e. cummings
mér líkar við líkama minn þegar hann er með þínum

mér líkar við líkama minn þegar hann er með þínum

líkama.    …Hann er svo gjörla nýr hlutur.

Vöðvar betur og taugar meir.

mér líkar við líkama þinn.    …mér líkar við það sem hann gerir.

hversu hann hversar.  …mér líkar við að þukla hrygg

líkama þíns og bein hans,og skjálfandi

- þéttan – mýkt leika hans og sem ég mun

aftur og aftur og aftur

kyssa,     …ég kann við að kyssa hitt og þetta á þér

ég kann við að,strjúka varlega þessa,yfirgengilegu loðnu

rafmagnaðrar gæru þinnar,og hvað-er-það kemur

yfir hold sem skilst í sundur…. Og augun stórar ástarmylsnur,

og mögulega nýt ég skjálftans

af undir mér þér svo gjörla nýrri

e.e. cummings

La Guerre
III

stórleiki fallbyssunnar

er haglegur,

en ég hef séð

dauðans snjöllu gríðarstóru rödd

sem felur sig í viðkvæmni

draumsóleyja. . . .

ég segi að stundum

á þessar löngu skrafhreifnu skepnur

séu lagðir hnefar geypilegri þagnar.

Ég hef séð alla þögnina

fulla af fjörugum hljóðlátum strákum

í Roupy

hef ég séð

milli stórskotahríða,

nóttina mæla af vörum blómlegar ósegjandi stúlkur.

E. E. Cummings

Þýðing: EÖN

Orginall.