Tag Archive
Metafórukreppan
1. Einsog fyrsti hluti ritgerðar Þetta mjólkurkaffi er einsog nokkrar mínútur við vinnu. Á milli kaffidreitilsins og vinnu minnar er brogað samasammerki – samanbarið „einsog“. Á milli myndliðar og kenniliðar stendur þessi tengiliður sem stjórnar lífum okkar – sjálf metafóran sem ómögulegt er að komast undan og sífellt dýpkar og fjölgar lögum sínum:... »
Nietzsche, Hómer og anarkistarnir
Ég er alltaf að lesa Nietzsche. Nei annars, það er ekki satt. Einsog ég er nú gjarn á að kvarta undan því að fólk sýni ekki ljóðum – og þá sérílagi kannski undarlegum tilraunaljóðum – tilhlýðilega þolinmæði, dæmi þau úr leik ýmist sem kjánaskap og flipp eða óskiljanlegt rugl, þá er ég andskotanum latari við... »
Vinstripólitík án mannvonsku
Það náttar. Eins undarlega og það nú hljómar í skynsöm eyru þá hófst þetta með því að það dagaði og svo morgnaði. Að minnsta kosti skil ég þetta þannig. Eftir að morgnaði gerðist ekkert fyrr en það tók að kvölda. Og nú náttar, sumsé. Það er komin nótt. Þegar öll nótt er loks úti... »
Vit hunds á Icesave
Ég hef ekki hundsvit á Icesave. Ég var aldrei góður í stærðfræði og hef ekki tekið jafn virkan þátt í hagfræðivæðingu heimilanna síðustu misserin og margir aðrir. Ég veit ekki hvað sveiflujöfnunargeta er, skuggaverð þykja mér varhugaverð (eða voru það varhugaverð sem eru skuggaverð?) og mig grunar að fórnarkostnaður þýði eitthvað annað í viðskiptafræðinni... »
Þetta er ekki töff
Fólki þótti bleiki liturinn ekki töff. Karlmenn ganga ekki í bleiku án þess að vera uppnefndir. Við því er víst ekkert að gera. Ég er jafn upptekinn af því að vera töff og hver annar og hef því tekið upp svarta og gráa tóna í stað þeirra bleiku. Stríðnispúkarnir geta þá notað næstu misseri... »
Ég heiti Ísbjörg, ég er samkvæmisljón
Hann rýfur þögnina til að tjá sig um Icesave. Til að vera einsog allir aðrir. Samkvæmt öllum gildandi leikreglum bera Íslendingar ábyrgð. Ráðherrar og ríkispótintátar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að hjálpa fjársýslumönnum að koma okkur í krappan vanda. Og ekkert af þessu er Steingrími Joð að kenna, sem trúir svo á... »
Evrópusambandið, landsbyggðin og lýðræði
Ég hef verið að reyna að sætta ákveðna mótsögn sem ég þykist greina – að hálfu leyti í sjálfum mér og að hálfu leyti annars staðar. Sem sagt að fólk hafi á sama tíma þessar skoðanir: a) að það sé óeðlilegt og ólýðræðislegt að fólk hafi ójafnan atkvæðisrétt eftir landshlutum. b) að það sé eðlilegt og lýðræðislegt... »
Gasalegt drasl – blogg og blöð og ég
Ég hef ekki skrifað sérlega margar færslur upp á síðkastið. Fyrir því eru ýmsar ástæður. Efst á blaði er líklega sú að ég reif skáldsöguna mína á hol og er nú að tjasla henni saman aftur, endurskrifa stóra hluta. Hún mun heita eitthvað allt annað en ég sagði í síðustu færslu. Ég er því... »
Hin djúpa finnska kreppa (og ESB)
Fyrir rétt ríflega einu ári síðan sat ég inni í stofu og las mbl.is. Þar var sagt frá ótrúlegu fannfergi í Helsinki. Að sögn talsmanns lögreglunnar í Helsinki, Jussi Pohjonen, ríkir algjör ringulreið í höfuðborginni. En gríðarlegt fannfergi er í borginni sem og annars staðar í Finnlandi. Kom veðrið ýmsum í opna skjöldu enda hefur... »
Hræðsluáróður
Ef við göngum ekki í Evrópusambandið og tökum upp evru mun allt fara til fjandans og íslenskur efnahagur aldrei taka við sér. Það má ekki bíða. En ef við göngum í Evrópusambandið erum við að fremja landráð. Endurtaka Gamla sáttmála. Og ef við sækjum ekki um aðild erum við að forðast samræður. Eins og... »
