Kurrar í kólibrífugli » brandarablandarar

Besta orðið mitt
Ég vaknaði!

Ég er einn, ég er dapur….

Ég spring.

Ég hélt það.

Ég er illur.

Ég skil ekki.

Ég dett.

Ég flýg.

Ég flýg,

Ég flýg hærra.

Ég flýg.

Ég skil ekki.

Hvað er ég?

Það frétti ég!!

Hversvegna ég?

Er ég einhver?

Ég er fastur.

Hver er ég?

Ég er hrædd,

ég græt.

Ljóðið var unnið með því að klippa & líma 1.000 blaðsíður af texta af heimasíðunni ljóð.is, sem er opinn gagnagrunnur fyrir ljóðskáld að geyma verk sín á netinu. Þvínæst var beitt fítus í Windows Word er nefnist Auto-Summarize, en með honum má gera vélræna útdrætti úr texta. Vélin var stillt á 0,1%, eða eitt prómill, svo úr varð ein síða af ljóða-essens.

Brandarablandarar V: Hvort sé rétt að leika guð í þessu máli
Fimmta ljóðið í stafrænum ljóðabálki mínum og Jóns Arnar Loðmfjörð nefnist Hvort sé rétt að leika Guð í þessu máli . Ljóðið er unnið upp úr gúgli á „málvillunni“ „hvort sé“. Ljóðið var tekið sem dæmi um „misbitastæðan“ kveðskap bókarinnar í dómi Kristrúnar Heiðu Hauksdóttur á Kistunni, og sagði: „Þessi höfundargjörð að henda tungumálinu í blandarann og týna svo ljóð upp úr gumsinu sýnir fram á fáránleikann í tjáningunni en verður útreiknanleg þegar líður á síðurnar. Höfundurinn fæst við orð en áherslan á merkinguna týnist í þessum óvæntu tengingum eða í það minnsta er örðugt fyrir lesandann að fóta sig í þessu sporti, leikurinn er kunnuglegur en lesandinn þekkir ekki reglurnar. Það er gott að vera fullur af ljóðum en maður verður ekki fullur af þessum kokteil þó það sé gaman að lesa bókina. Það er kannski ekki yfirlýst markmið ljóðalesturs að það eigi að vera gaman en titill þessa verks gefur það samt til kynna. Eiríkur hendir gaman að ljóðum og tungumálinu um leið. Reyndar klikkir hann út með tilvitnuninni á bókarkápunni: „Ágætis tilraunabókmennt en skortir allt fagurfræðilegt inntak“ og leggur gagnrýnandanum þar með orð í munn.“

Ljóðið má nálgast með því að smella hér.

Brandarablandarar IV: Vitnað í Ngin Tom
Fjórða ljóðið til að birtast úr hinni smásmjúgandi rafbók Brandarablöndurum, er Vitnað í Ngin Tom. Ljóðið er unnið upp úr módernísku meistaraverki Steins Steinarr, Tímanum og vatninu. Ljóðið kyrjar Eiríkur Örn Norðdahl og hefur þriðjungsnafni hans Jón Örn Loðmfjörð spunnið við það minimalískar sjónmyndir sem hann segir „lágvært muldur þrætt í tónvæna síframúrstefnu“.

Smellið, þrýstið, sláið og/eða ýtið hér til að sjá ljóðið.

Brandarablandarar III: Kardinálinn var svo áhugasamur um Norrænar bókmenntir
Þriðja ljóðið til að birtast úr hinni nýju rafbók EÖN og Jóns Arnar Loðmfjörð, Brandarablandarar, er Kardinálinn var svo áhugasamur um Norrænar bókmenntir – og er þar um að ræða fyrsta ljóð fyrirmyndarbókarinnar Blandarabrandarar. Við framleiðslu þess hljóðaljóðs er fylgir dreymandi myndrænni flórritun Jóns Arnars, er notast við upplestur hins kunna stórleikara Viðars Eggertssonar, sem fenginn er úr útvarpsþættinum Víðsjá. Í sama þætti sagði bókmenntafræðingurinn og framúrstefnuspekúlantinn Benedikt Hjartarson meðal annars um þetta ljóð:

„Tónninn er sjálfbirgingslegur og aðgangsharður, allt að því frekjulegur á köflum og honum er vísvitandi ætlað að ögra a.m.k. hluta lesendahópsins. Stórkarlalegar yfirlýsingar á borð við þær að nútíminn hafi nú loks hafið innreið sína í norrænar bókmenntir hljóma einnig kunnuglega. Hér má greina enduróm af þeim herskáu yfirlýsingum sem fluttar voru og gefnar út af hópum rithöfunda og listamanna á fyrstu áratugum 20. aldar, þegar vígreifar framúrstefnuhreyfingar sögðu hefðarhyggju og ríkjandi menningu stríð á hendur um leið og þær boðuðu komu nýrrar aldar í list og skáldskap. Að baki fullyrðingunni í ljóði Eiríks býr í raun aldargömul þrá eftir nýju og fersku ljóðmáli, sem geti gert manninum kleift að brjótast úr viðjum hefðbundins tungumáls, þrá eftir ljóðmáli sem geri fært að henda reiður á glundroða nútímans og bregðast kröftuglega við honum.“

Smellið hér til að bera herlegheitin augum.

Brandarablandarar II: Besta orðið mitt
Annað ljóðið til að birtast úr rafbókinni Brandarablandarar er Besta orðið mitt. Allra glöggustu ljóðaunnendur ættu að kannast við titilinn sem er stolinn frá samnefndu ljóði Dags Sigurðarsonar, en það hefst svo:

ég

besta orðið mitt

égégégégégég

égégég

Ljóðið var unnið með því að klippa & líma 1.000 blaðsíður af texta af heimasíðunni ljóð.is, sem er opinn gagnagrunnur fyrir ljóðskáld að geyma verk sín á netinu. Þvínæst var beitt fítus í Windows Word er nefnist Auto-Summarize, en með honum má gera vélræna útdrætti úr texta. Vélin var stillt á 0,1%, eða eitt prómill, svo úr varð ein síða af ljóða-essens.

Um verkið sagði bókmenntafræðingurinn Anna Björk Einarsdóttir m.a.:

Því má bæta við túlkunina á ljóðinu „Besta orðið mitt“ að það fangi stöðu einstaklingsins á póstmódernískum tímum. Hver og ein setning ljóðsins hlýtur að koma frá ólíkum höfundum, forritið tekur þær algengustu og raðar þeim upp. Við sjáum að flestir eru að semja eins ljóð. Þrátt fyrir að einstaklingnum og einstaklingsbundnum tilfinningum hans sé gert hátt undir höfði er vægi þessara einstaklinga álíka mikið og vægi lambs í hjörð, engin leið er að greina á milli þeirra.

Forritun Loðmfjarðar dansar í kringum ljóð.is þemað og má nota ljóðið til þess að garfa í þeim gagnagrunni. Smellið hér fyrir húllumhæið.

Brandarablandarar I: Naglasúpa
Á næstu vikum munu birtast hér eitt af öðru ljóð úr nýrri rafbók sem nefnist Brandarablandarar og er afbökuð afspilun á kiljunni Blandarabrandarar sem kom út í Nýhil-seríunni Norrænar bókmenntir árið 2005. Bókin sú var skrifuð algerlega með klippingum og límingum úr hinum og þessum áttum, rafrænum textavinnslum og handknúnum útúrsnúningum. Brandarablandarar er samstarfsverkefni mitt og Jóns Arnar Loðmfjörð.

Fyrst í röðinni er ljóðið Naglasúpa I-VI. Ljóðið var unnið með því að slá ofbeldisfullum sögnum í boðhætti inn í leitarvélina Google, og var gert klippiverk úr niðurstöðunum. Um fjórða ljóð flokksins sagði bókmenntafræðingurinn Benedikt Hjartarson m.a. í Víðsjá: „[Írónía nýframúrstefnunnar] kemur m.a. skýrt fram í ljóði Eiríks Arnar „Naglasúpa IV“ þar sem herskár yfirlýsingatónn framúrstefnunnar er skopstældur og settur í annað ljós með því að innlima hann í form uppskriftar og flétta honum þannig saman við neyslumenningu samtímans. Ljóðið hefst á orðunum „Rífið lambhagasalatið! Rífið börkinn“ en hverfist að lokum yfir í beina endurtekningu á mælskulist framúrstefnunnar frá fyrri öldum: „Rífið niður heimsveldið! Rífið ykkur upp úr þessum sápukúludraumórum!“ Í ljóðinu er unnið á gagnrýninn og írónískan hátt með hefð framúrstefnunnar, gengið er inn í mælskulist hennar en um leið grafið undan henni í leit að öðrum leiðum. Ljóð Eiríks er skýrt dæmi um það hvernig hinar nýútkomnu ljóðabækur ritraðarinnar Norrænar bókmenntir endurvinna orðræðuhefð framúrstefnunnar á meðvitaðan hátt, beita endurvinnslunni sem aðferð.“

Forritun dígitalíserandans Jóns Arnar er unnin við eldri útgáfu hljóðaljóðsins. Smellið hér til að upplifa látalætin.