Tag Archive

Períóðulist

By Eiríkur Örn

Fyrir fáeinum árum síðan kallaði ég Hermann Stefánsson períóðulistamann, í ritdómi um bókina Borg í þoku. Sjálfsagt var það aðallega meint í galsa, stríðni jafnvel – ég var sjálfsagt annað hvort að erta hann, egna hann eða hefna mín eftir að hann egndi, erti eða stríddi mér. Ef ég man þá tíð ekki kolvitlaust,... »

Knappur reiðilestur:

By Eiríkur Örn

Norðurlandameistarinn í bókmenntum er ekki til sölu! Norðurlandameistari í bókmenntum í fyrra var ljóðskáldið Göran Sonnevi, eftir að hafa verið tilnefndur fimm sinnum áður um ævina, og fékk hann verðlaunin fyrir bókina Oceanen. Ég er nýbúinn að festa kaup á bókinni Mál; Verkfæri; Eldur sem gefin var út fyrir 20 árum í þýðingu Sigurðar Á.... »

Álfadrottningin e. Eva-Stina Byggmästar

By Eiríkur Örn

Álfadrottningin (eða Fljótadrottningin; Älvdrottningen á sænsku) er ellefta ljóðabók hinna finnlands-sænsku Evu-Stinu Byggmästar (f. 1967) á 21 árs ferli, en hún gaf út sína fyrstu bók aðeins 19 ára gömul árið 1986. Það fyrsta sem maður tekur eftir við bókina, sem er í sjö hlutum, er kápan. Þeir segja það sé flónska að dæma... »

Söngvar hafsins sokknu borga e. Markku Paasonen

By Eiríkur Örn

Söngvar hafsins sokknu borga (Lauluja mereen uponneista kaupungeista á finnsku) er fjórða ljóðabók finnska skáldsins Marko Paasonen (f. 1967), og hans önnur prósaljóðabók, en fyrri prósaljóðabókin, Sigurmarsinn, hlaut finnsku bókmenntaverðlaunin árið 2002. Söngvar hafsins sokknu borga skiptist í fimm mislanga hluta sem nefnast „Söngvar hafsins sokknu borga“ (16 síður); „Söngvar frá ströndum vatna“ (2 síður);... »

Eru dónar í Norðurlandaráði?

By Eiríkur Örn

Mér var bent á fyrir stuttu að það væri varla við hæfi að ég hefði ekki nokkur orð um „danann dónalega” sem snupraði Ingibjörgu Haralds, og ljóðskáld nokkurra smálanda í kringum okkur, sem öll áttu það sameiginlegt að hafa verið tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, í góðum félagsskap við skáld stórþjóðanna Danmerkur, Finnlands, Svíþjóðar og... »