Kurrar í kólibrífugli » Árósar

Í transit-transi
Aftur á Kastrup. Mikið sem það er óspennandi og beinlínis drepleiðinlegt að hanga á flugvöllum. Eins og mér þótti þetta spennandi og skemmtilegt þegar ég var unglingur.

Innanlandsflug í Danmörku er drasl. Vélin bremsaði ítrekað ansi harkalega á vellinum fyrir flugtak. Flugstjórinn baðst velvirðingar á þessu, þetta væri ekki honum að kenna, heldur væri þetta bilun í rafkerfi vélarinnar. Sem var ekki sérlega hughreystandi, svona rétt fyrir brottför.

Tölvan brást mér í gærkvöldi. Þurfti að endurræsa forritið á sviðinu og láta fólk bíða. Ég er ekki nógu spontant og skemmtilegur til að komast upp með svona þvælu. Þetta var glatað. En ég stóð mig þó ágætlega þegar ég var kominn í gang – nema hljóðmaðurinn sveik mig og hafði alltof lágt í tölvunni. Svo þetta var mestmegnis bara öskur. Góð öskur samt – ég var nær raddlaus á eftir (það er eini mælikvarðinn sem ekki svíkur).

Árósar eru fallegir.  Á járnbrautarstöðinni í morgun sá ég múslima. Hún var 17-19 ára gömul, með kúgunartæki á höfðinu, langleiðina fram á fingurgóma og alveg niður í gólf. Hún var með plastglas með einhverju grænu ógeðslegu ískrapi og þambaði ótæpilega samtímis og hún talaði hratt í farsíma. Allt í einu, algerlega óforvarendis, sprakk stúlkan úr hlátri og frussaði græna ískrapinu út á steingólfið.

Þetta var óhuggulegt.

Við ósa
Ég er alinn upp í litlum bæ, og frá því ég man eftir mér þekkti ég allar göturnar. Ég varð ekki villtur fyrr en á fullorðinsárum. Aldrei staddur þar sem ég ekki þekkti til nema í félagi við aðra. Ég er ágætur í kortalestri, en annars gersamlega disoríenteraður. Ég geng jafnan um hálfsofandi, með höfuðið fullt af hugsunum um eitthvað allt annað en umhverfi mitt – eða, í öllu falli registrera ég ekki allt sem mörgum öðrum virðist augljóst. Eins og til dæmis að ég hafi beygt eða snúið við. Í hvaða átt er hafið, norður, hótelið mitt?

Ég er skástur í að finna hafið, reyndar. Maður finnur hafið með eyrunum.

Fyrr í dag, á leiðangri mínum um þessa ágætu borg, stóð ég á götuhorni og rýndi í kortið mitt. Ég leit mörgum sinnum upp og las götuheitið á húsinu fyrir framan mig, en fann það ekki á kortinu. Þegar ég hafði staðið svona og horft upp og niður í lengri tíma, leit ég örlítið til vinstri, og áttaði mig á að ég stóð fimm metrum frá útveggnum á risavaxinni dómkirkju.

Hana var auðvelt að finna á kortinu.

Allt gekk vel í gærkvöldi. Las Höpöhöpö Böks reyndar of snemma – ég var svo hás á eftir að ég kláraði mig ekki alveg á síðustu tveimur ljóðunum. Meðal þeirra sem komu fram í gær voru Claus Beck-Nielsen Memorial, með samnefndum forsprakka sem þekktur er úr Das Beckwerk. Í þeirri hljómsveit er bassaleikari Nikolaj Wolf, sem ég spjallaði lengi við í gærkvöldi. Hann stúderaði í konservatoríunni í Kaupmannahöfn, en tók skiptinemaár í Reykjavík – og mun góðkunningi Samma í Jagúar og Eiríks Orra í múm.

Nema hvað – bandið er bjútífúl. Ef þið smellið á myspace-hlekkinn hér að ofan, þá mæli ég með laginu Mullahocracy. Textinn í því er m.a. fenginn frá Donald Rumsfeld (“the known knowns etc.”

Í gærkvöldi las ég án undirleiks. Í kvöld mun ég treysta á tölvuna – við skulum vona að hún bregðist mér ekki. Þetta er þungur hugbúnaður og hann á það til að flæða meira eins og síróp en gvendarbrunnsvatn.

Nú ætla ég í sturtu, skola af mér þynnkuna, og síðan í hljóðprufu.

Meðal þeirra sem koma fram í kvöld er hinn hollenski Jaap Blonk, sem er hálfgert goð. Hér er hann á Youtube að flytja brot úr úrsónötu Kurt Schwitters.

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="425" height="355" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="wmode" value="transparent" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/JgNL8-FdG-k&hl=en" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="355" src="http://www.youtube.com/v/JgNL8-FdG-k&hl=en" wmode="transparent"></embed></object>

Sic transit
Og hvað varð þá af gloria mundi?

Kastrup. Ég fer huldu höfði í Kaupmannahöfn fáein augnablik. Rúmlega annar hver kjósandi í þessu landi kaus annað hvort Poul Nyrup eða Piu Kjærsgaard. Eða svo er mér sagt.

Mér finnst það óhuggulegt.

Hinumegin við sundið sitja Grikkir og selja pulsur. Og ég veit ekki hvað. Þeir selja svo margar pulsur að fólk þorir ekki lengur inn í Rosengård hverfið. Eða svo er mér sagt. Þeir tala líka með hreim.

Á næsta borði við mitt talar fólk ríkssænsku.

Ég keypti mínar frönsku pylsur af tælenskri konu sem talaði innflytjendadönsku, sem er alveg jafn óskiljanlegt hrognamál og önnur danska.

Ég heyri óstöðvandi bergmálið af íslensku utan að mér. Samt get ég ekki séð að það hafi nýlega komið vél frá Íslandi, né að það sé vél á leiðinni. Ein kenning er sú að þetta séu uppgjafadanir sem hafi gefist upp á sínu eigin tungumáli.

Í gær borgaði ég kvöldmatinn á finnlandssænsku.

Ég borga ekkert dýrara en kaffibolla á finnsku.

Allt er þetta óhuggulegt.

Eftir hálftíma fer flugið mitt til Árósa. Þar skilst mér að bíði mín gata. Við þessa götu liggja allar dyr inná bari.

Lyd + litteratur í Árósum
Á miðvikudag kem ég fram á hátíðinni Lyd + litteratur í Árósum. Hátíðin er haldin í Musikcaféen á Mejlgade 53. Meðal annarra þátttakenda eru Jaap Blonk frá Hollandi og Lars Skinnebach frá Danmörku, en sá síðarnefndi var gestur ljóðahátíðar Nýhils síðast.

Frekari upplýsingar fást hér.