Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum

By Eiríkur Örn

Fyrir um tveimur árum síðan tók ég upp útvarpsþætti fyrir Rás 1 sem nefndust Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum. Þar var um að ræða fjóra þætti. Í fyrsta þættinum tók ég fyrir nokkur klassísk verk hljóðaljóðlistarinnar og spurði mig hvað hljóðaljóð væru. Í öðrum þætti skoðaði ég notkun framburðar í hljóðaljóðlist. Í... »

William Blake

By Eiríkur Örn

Það styttist stöðugt í nýtt tölublað af Tregawöttunum – þau eru sjö dögum of seint á ferðinni, eða fjórum mánuðum og sjö dögum of seint á ferðinni, en þá ber að horfa til þess að eitt tölublað frestaðist fyrst um tvo mánuði og féll svo loks niður. Það mun ekki gerast í þetta skiptið... »

Períóðulist

By Eiríkur Örn

Fyrir fáeinum árum síðan kallaði ég Hermann Stefánsson períóðulistamann, í ritdómi um bókina Borg í þoku. Sjálfsagt var það aðallega meint í galsa, stríðni jafnvel – ég var sjálfsagt annað hvort að erta hann, egna hann eða hefna mín eftir að hann egndi, erti eða stríddi mér. Ef ég man þá tíð ekki kolvitlaust,... »

Ginsberg í dag

By Eiríkur Örn

Í dag ræði ég við bókmenntafræðinginn Mathias Rosenlund um Allen Ginsberg og þýðingar á honum í Arkadia Bookshop, Pohjoinen Hespariankatu 9, klukkan 18.00. Ef einhver skyldi vera í Helsinki. Meira hér. »

Allen Ginsberg

By Eiríkur Örn

Ég er stundum mjög viðutan, og þá sérstaklega þegar ég bregð út af rútínum dagsins. Í gær lá mér á að komast úr húsi og ákvað að taka morgunmatinn úti. Ég hljóp af stað, tók með mér kaffibolla af Ryytmi, og fór að sinna erindum. Sjö klukkustundum síðar, þar sem ég var á gangi,... »

Ginsberg í Víðsjá

By Eiríkur Örn

Ræddi við Eirík Guðmundsson um Ginsberg í Víðsjá á föstudag. Ég ber ekki ábyrgð á djassmúsíkinni. En ég setti nýtt met í semsögtum, hérnum og þústum. Smellið hér til að hlusta. »

Maíkonungurinn – valin ljóð eftir Allen Ginsberg

By Eiríkur Örn

Allen Ginsberg (1926–1997) var eitt mikilvægasta ljóðskáld 20. aldar og með áhrifamestu einstaklingum hennar í menningu og listum. Hann hefur verið nefndur æðstiprestur bítkynslóðarinnar, guðfaðir hippakynslóðarinnar, langafi pönkkynslóðarinnar – hann blés móði í brjóst listamönnum af ótal kynslóðum, frá Jack Kerouac til Bobs Dylan til The Clash til Rage Against the Machine. »

Allen Ginsberg V: Playboy viðtal

By Eiríkur Örn

Playboy: What kind of life do you think these young people want to lead? AG: Here I can talk only about the life I’d like: more contact with nature; more and more occupation with exploration of subjective consciousness and enlargement of areas of inner and outer sensibility; more participation in rhythmic theater; and... »

Ginsberg IV: Hippi

By Eiríkur Örn

„Allen Ginsberg – er hann ekki bara einhver hippi?“ spurði mig virðulegt heldra skáld fyrir eins og einu misseri. Orðunum fylgdi hljómur sem gaf til kynna að hippisminn væri ekki helsta stefna andleg á 20. öldinni, heldur frekar nokkurs konar skammarleg einfeldni og þar að auki laus við alla dramatíska dýpt agressjónar og freyðandi... »