Kurrar í kólibrífugli » a. rawlings
Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum
Hljóðaljóðskáldið Hugo Ball
Fyrir um tveimur árum síðan tók ég upp útvarpsþætti fyrir Rás 1 sem nefndust Kallfæri – listin að hljóða í ljóðum. Þar var um að ræða fjóra þætti. Í fyrsta þættinum tók ég fyrir nokkur klassísk verk hljóðaljóðlistarinnar og spurði mig hvað hljóðaljóð væru. Í öðrum þætti skoðaði ég notkun framburðar í hljóðaljóðlist. Í þeim þriðja spilaði ég pólitíska hljóðaljóðlist og þar var nokkuð af „spoken word“ verkum. Í fjórða og síðasta þættinum tók ég fyrir samtímahljóðaljóðlist, íslenska og erlenda – og spilaði m.a.s. verk eftir Músifölsk, Þór Eldon og Dag Sigurðarson.
Upptakan af fyrsta þættinum er týnd og tröllum gefin, en hinir þrír verða aðgengilegir hér á síðunni. Ég á hins vegar handritið að fyrsta þættinum og hef sett inn skjöl með þeim verkum sem voru spiluð. Allt er þetta hér að neðan.
Kallfæri – 1. þáttur – Hvað er hljóðaljóð?
Gagi beri bimba
Kæru hlustendur. Ljóðið sem rétt í þessu rak á fjörur ljósvakans nefnist Gadji beri bimba og var samið af þýska ljóðskáldinu og dadaistanum Hugo Ball árið 1915, en heyrðist hér í flutningi Skotans David Hopkins. Gadji beri bimba er eitt fyrstu dæmanna um 20. aldar hljóðaljóðlist, en auðveldlega má finna fyrirrennara listgreinarinnar allt aftur til árdaga mannsandans – frá allra fyrstu muldrum frummannsins sem ætluð voru til annars en tjáningar eða leiðbeiningar, í gegnum árþúsund af skáldskap sem saman var settur með ákveðna hljóðræna eiginleika að augnamiði – svo sem rím, stuðla og atkvæðaskipan – þó þeir gegndu kannski ekki sama aðalhlutverki þar og í þeim seinni tíma verkum sem verða hér til umfjöllunar í dag og næstu vikur.
„Ég skapaði nýja tegund ljóðlistar,“ er haft eftir Ball. „„Kveðskap án orða“, eða hljóðaljóð, og ég hóf að kyrja.“ Ljóðið, Gadji beri bimba, kyrjaði hann fyrst á hinum goðsagnakennda næturklúbbi dadaista, Cabaret Voltaire í Zurich í Sviss, íklæddur heiðbláum, skarlatsrauðum og gullnum pappa með hólklaga hatt á höfðinu – skáldabúningi sem öðlast hefur sess í ljóðsögunni, og mun, eftir því sem ég kemst næst, vinsæll á grímuböllum framúrstefnuskálda.
Ljóðið hefst á orðunum „gadji beri bimba glandridi laula lonni cadori, gadjama gramma berida bimbala glandri galassassa laulitalomini.“ Orðin eru engin, og þó alger – þeim er ætlað að vera hreinum, lausum úr fjötrum tungumálsins, eða nýtt hlekkjalaust tungumál – tungumál frummannsins, einhvers innra með nútímamanninum sem hefur komist óskaddaðan í gegnum úrkynjun mennskunnar.
Dadaistarnir höfnuðu eins og þekkt er allri heimspeki sem á undan þeim kom og gagnrýndu allan þann sannleik sem kynntur hafði verið til sögunnar sem argaþvælu. Hljóðaljóðlistin, sem þó var ekki alveg ný – fútúristarnir rússnesku og ítölsku höfðu áður tekið skref í þessar sömu áttir – hæfði því heimspeki þeirra fádæma vel, verandi laus undan þeirri merkingarsköpun sem hafði átt sér stað árhundruðin á undan, og í þessum mikilvægu frumskrefum listgreinarinnar er að finna öflugan og ákafan merkingarflótta, en sá þráður sköpunar hefur að nokkru leyti fylgt framúrstefnu- og tilraunakveðskap fram til dagsins í dag, mis-þvældur, -gisinn, -hnýttur, -skreyttur og -öflugur, eins og gengur. Tungumálið hefur verið strípað af samtíma sínum og flutt aftur til frummannsins, gert að muldri hellisbúans, hjali barnsins, máli þeirra sem heillast af tungumálinu án þess að skilja það og gera ekki endilega neina kröfu um að skilja það, og eftir standa nakin fónemin, hinar minnstu einingar talaðs máls, og möguleikar til samsetningar þeirra á þann hátt að ekki verði úr skiljanleg orð.
Eins og áður segir höfðu fútúristarnir áður sýnt hljóðaljóðlistinni áhuga, og hafið tilraunir innan listgreinarinnar. Einn höfuðstofnenda ítalskra fútúrista, og höfundur fútúristamanifestósins, Fillippo Tomasso Marinetti, var meðal frumkvöðla hljóðaljóðlistarinnar. Það ljóð sem hann er líklega frægastur fyrir er Zang Tumb Tumb, sem fjallar um orrustuna um Adrianópólís, í Tyrklandi. Oftsinnis hefur verið barist um Adrianópólís, en ljóð Marinettis er um þá orrustu sem hófst síðla árs 1912, þegar Búlgarir réðust inn í borgina. Orrustunnar er minnst ekki síst þekkt fyrir að þar áttu sér stað fyrstu sprengjuárásir úr lofti, þegar Búlgarar flugu yfir borgina og létu sérsmíðuðum handsprengjum rigna yfir andstæðinginn til að valda usla meðal tyrknesku hermannanna. Það er alkunna að fútúristarnir voru feykilegir aðdáendur stríðs, sem og framfara – og voru þessir tveir þættir líklega meðal sterkustu þráðanna í fagurfræði fútúrismans – og hefur þessi bardagataktík Búlgarana án nokkurs vafa fengið hinn harðfasíska Marinetti til að kikna í hnjánum af höfugri lotningu.
Ljóðið er ekki hreint hljóðaljóð, í þeim skilningi að í því sé ekki að finna skiljanleg orð, heldur er það eins konar sambræðingur orða, orðleysa og meininga, sem hljóðrænt er ætlað að kynda upp stríðsstemningu.
Þess er reyndar best að geta, áður en lengra er haldið, að fæst hljóðaljóð eru samansett úr óskiljanlegum hljóðum, eins og verk Hugos Ball, og fást þau jafnan heldur við hljóðræna eiginleika orða og setninga, frekar en að einblína á fónemin ein og sér. Mörg hljóðaljóð, sérílagi í seinni tíð, eru jafnvel samsett úr setningum sem eru blátt áfram og auðskiljanlegar.
Zang Tumb Tumb kom fyrst út í myndskreyttri útgáfu í tímaritum á árunum 1912 til 1914, eða sömu ár og orrustan stendur yfir, og var undir lok þess tímabils gefið út á bók. Í bókinni, hinni rituðu útsetningu verksins, er notast við týpógrafíska framsetningu til að koma áhrifunum til skila – margar leturtegundir koma við sögu, orð og bókstafir eru misstór og raðað á síðuna svo að úr verður myndverk til fylgis við hljóðverkið, þar sem tungumálið vefur sér leið um síðurnar og ákallar stríð sem eina möguleika heimsins til hreinsunar.
Við skulum nú hlýða á brot úr ljóðinu, í flutningi Marinettis sjálfs. Brotið nefnist einfaldlega Orrustan um Adríanópólís, og er tekið upp árið 1935, ríflega tveimur áratugum eftir útgáfu bókarinnar. Takið eftir því hvernig Marinetti hermir upp óhljóð styrjaldarinnar, skothríðirnar, ópin, söngvana, þrammið, suðið í sprengjum sem svífa til jarðar og sjálfa sprengjuhvellina – Zang Tumb Tumb.
Marinetti
Það verk í sögu hljóðaljóðlistarinnar sem hefur orðið listamönnum hvað drjúgast til eftiröpunar er líklegast Karawane, eftir Hugo Ball, en það er eitt fyrsta verk listgreinarinnar og án efa það áhrifamesta. Eins og önnur hljóðaljóð Balls er Karawane sambræðingur fónema sem mynda engin orð, en treystir þess heldur á hljóðrænuna:
jolifanto bambla o falli bambla
großiga m’pfa habla horem
egiga goramen
higo bloiko russula huju
hollaka hollala
Verkið er ekki ósvipað Gadji beri bimba, enda hefur þessi tiltekna aðferð Balls þann ókost í för með sér að verða frekar einhæf – og því miður, ef ég leyfi mér að taka svo sterkt til orða, eru margir sem enn apa upp þennan stíl, tæplega hundrað árum eftir að Ball drakk hann til þurrðar. Hins vegar eru til útgáfur af ljóðum Balls, sem vinna kreatíft með útsetningar ljóðsins, og munum við nú heyra nokkrar slíkar útgáfur.
Meðal þeirra sem hafa látið vaða í kvæðið, og gert því góð skil er pólski bandaríkjamaðurinn Jerome Rothenberg, sem er ekki síst þekktur sem safnari gamallar etnópóesíu – eða heimsljóðlistar. En Rothenberg er líka fært hljóðaljóðskáld, og við skulum heyra hann flytja Karawane, eftir Hugo Ball. Hér er verkið útsett fyrir margar raddir, slagverk og strengi, og er tekið úr hljóðaljóðleikriti Rothenbergs, Der Dada Ton, eða Dada-andanum, sem var eins konar virðingarvottur við fyrirrennara Rothenbergs og annarra hljóðaljóðskálda, og samsett úr nýjum útsetningum á verkum eftir Tristan Tzara, Kurt Schwitters, Francis Picabia og Hugo Ball.
Karawane
Eins og áður segir hefur Karawane verið flutt af mörgum ólíkum skáldum af mörgum ólíkum tímabilum, en efalaust er óvenjulegasta útgáfan – eða öllu heldur, sú útgáfa sem á ólíklegasta flytjandann af ólíklegasta tilefninu – sú sem Marie Osmond flutti í Ripley’s Believe It Or Not þættinum um miðjan níunda áratuginn. Marie Osmond er bandarísk leikkona og söngkona, og meðlimur í sjóbissness fjölskyldunni The Osmonds. Um tíma starfaði Marie við Ripley’s Believe it or Not, sem einhverjir íslenskir sjónvarpsáhorfendur ættu að kannast við, en í þættinum er fjallað um hin ýmsustu furðufyrirbæri sem oft er bágt að trúa. Um miðjan níunda áratuginn voru kynnar í þættinum tveir, annars vegar Marie og hins vegar Jack Palance, og sá siður var tekinn upp að kynnarnir tækju upp stutt brot þar sem þeir sögðu frá einhverri furðu sjálfir, og eitt þeirra verkefna sem Marie fékk var að fjalla um hljóðaljóð, í kafla sem tileinkaður var furðum tungumálsins. Sagan segir að þegar kveikt var á myndavélunum hafi Marie fært augun af textaspjöldunum og þulið Karawane utanbókar.
Karawane
Flutningur Marie Osmond er einhvern veginn tær og saklaus, og má jafnvel segja að hann sé í aðra röndina úr flútti við fagurfræði dadaismans – frummannsrödd Osmond er tær og fögur eins og smáfuglsraust.
Áður en við segjum alveg skilið við meistara Hugo Ball, skulum við heyra hljóðaljóðskáldið Christian Bök, sem tvisvar hefur sótt Ísland heim og komið fram á ljóðahátíðum Nýhils, flytja annað af höfuðverkum Balls, sem nefnist Sæhestar og flugfiskar. Sæhestar og flugfiskar er léttleikandi verk, næstum því tiplandi, kyrjandin í ljóðinu, ef svo má að orði komast, er hálfgeggjuð í rytma sem minnir að einhverju leyti á frumbyggjasöngva og að einhverju leyti á gól geðbilaðs manns – og ítónun flytjandans, sénísins Christian Bök, spillir ekki fyrir.
Seahorses and flying fish
Í upphafi lék hljóðaljóðlistin sér aðallega utan orða, fékkst við orðleysur og upphrópanir, en síðar hefur það verið upp og ofan hvort listaverk greinarinnar eru framsett í fónemum, orðum, setningum, málsgreinum eða jafnvel heilum frásögnum, og koma þá ýmis önnur element inn í spilið – element sem jafnan eru fengin að láni úr bókaljóðlist, sem á jú rætur sínar að rekja til hinnar munnlegu hefðar: endurtekningar, stuðlun, rím og svo framvegis – eiginleikum sem var líklega í upphafi ætlað að auðvelda mönnum að leggja sögur á minnið.
Meðal þeirra hljóðaljóðverka sem má standa hvað næst bókaljóðshefðinni eru upptökur Gertrude Stein á sumum þeirra portretta sem hún skrifaði af eða um þau mikilmenni sem hún umgekkst í París á öndverðri tuttugustu öldinni. Portrettin voru vissulega skrifuð fyrir bækur og blöð, en ritlist Stein var að nokkru leyti syngjandi þó hún væri prentuð á síður – Stein var heltekin af hljómi setninga, og sú ástríða hennar skilar sér í upptökur sumra verka hennar, svo málamiðlunarlaust að hefð hefur myndast fyrir að telja upplestra hennar, og þá sérílagi upplestra á portrettunum, til hljóðaljóðlistarinnar. Einn bestu vina Stein var eins og kunnugt er myndlistarmaðurinn Pablo Picasso, og hefst portrett hennar um hann, í íslenskri þýðingu þess sem hér mælir, svo:
Ef ég segði honum, kynni hann við það,
kynni hann við það ef ég segði honum,
kynni hann við það, kynni Napóleon kynni Napóleon,
kynni, kynni hann við það?
Við skulum hlýða á lestur skáldkonunnar á portretti sínu um Picasso, If I told him:
If I told him
Hér er óljóst hvaða þáttur ákveður skilgreiningu textans sem hljóðaljóðs – það má jafnvel geta sér þess til að ákallandi rödd Gertrudar sjálfrar eigi hlut í því, í bland við óhefðbundna setningaskipanina og endurtekningarnar, auk þess mikilvæga hlutverks sem Stein annars gegnir í sögu framúrstefnubókmennta. Í öllu falli er sá sem hér mælir þeirrar skoðunar að portrett hennar séu að stærri hluta önnur verk í upplestri en þau eru á blaði. Sú skoðun er líklega ekki byggð á neinu nema tilfinningu, reyndar, en svo verður stundum bara að vera.
Viðfangsefni framúrstefnuljóðlistar er oftar en ekki það að teygja á tungumálinu. Framúrstefnuskáldið spyr sig fyrst, áður en það hefur skriftir, tveggja spurninga: Í fyrsta lagi: Hvað er tungumál? Og í öðru lagi: Hvað get ég gert með tungumál? Þegar þessara spurninga eru spurt innan hljóðaljóðlistarinnar, verður sú spurnarvídd ráðandi sem kalla mætti: Hvað eru fónem? Samkvæmt lýð-alfræðiritinu Wikipediu, eru fónem hinar minnstu merkingargreinandi einingar málsins. Þar segir: „Ólíkt málhljóðum eru fónem huglægar eindir í hljóðkerfi málsins sem finnast með því að skoða venslin milli hljóða“.
Það finnast hins vegar hljóðaljóð sem hvorki innihalda orð né raddir – og því í raun engin fónem – en sem dæmi um slíkt má nefna sunnudagsljóð sænsku skáldanna Idu Börjel og Mathiasar Kristersson, þar sem hljóðin í ljóðinu koma, að því ég best get heyrt, úr tölvuprentara. Við skulum heyra stuttan bút úr Sunnudegi við Disponentgötu.
Söndag
Hér er engin rödd á ferð, en þó hljóð sem tengja má við tungumál, sem tengjast orðum þó engin leið sé að fá botn í það hvaða orð það eru – hvað eru þau Ida og Mathias eiginlega að prenta út? Eru þau að prenta út ljóð? Og ef þau eru ekki að prenta út ljóð, er þá prentarahávaðinn ljóð? Eða, er prentarahávaðinn ljóð þótt þau séu að prenta út ljóð?
Það er ljóst að hljóðin sem prentarar gefa frá sér eru ein afurð tungumálsins. Án tungumálsins, væru þessi hljóð líklega ekki til. Það má jafnvel geta sér þess til að í hinum einmanalega heimi skáldsins hljómi ljóð jafnan einmitt svona, þegar þau skríða úr tölvunni út í heiminn – að þegar kemur að hljóðum ljóðanna séu prentarahljóðin reglan, en upplesturinn undantekning.
Við skulum hlusta á eitt sunnudagsljóða þeirra Idu og Mathiasar frá byrjun til enda – það er um tvær mínútur – og ég bið hlustendur að ímynda sér hvað hér sé á ferðinni. Hversu mikið heyrist prentað í hverja línu, áður en prentarinn færir sig einn paragraf niður, og hversu mikið er prentað á hverja síðu. Ég bið ykkur að leggja við hlustir og spyrja ykkur þessarar eilífu spurningar: Er þetta ljóð?
Söndag II
Bandaríski listamaðurinn Vito Acconci hóf feril sinn sem ljóðskáld, en færði sig síðar yfir í arkítektur, innsetningar og performans-list. Næsta verk sem við hlustum á kallast „Now do you believe the dirty dogs are dead“ eða „Trúirðu því nú að hundingjarnir séu dauðir“ af kassettunni „Live to Air: Artist’s soundworks“, eða „Líf í loft: hljóðverk listamanna“. Hljóðaljóðið er að finna á D-hluta kassettunnar, sem helguð er verkum sem fjalla á einn eða annan hátt um samskipti einstaklingsins við þéttbýlisumhverfið.
Kassettan var gefin út árið 1982 í tilefni af hljóðlistasýningu í Tate-galleríinu í London, sama haust og verkin komu út. Í fylgiefni með kassettunni segir meðal annars: „Þessi verk eiga sér enga aðra birtingarmynd en sem afspilun á kassettu, annað en mörg önnur verk þar sem upptakan er notuð „óvirkt“, sem aðferð til að festa á band hlustunarviðburð, eða sem tækni til að styðja við bakið á öðru verki.“
Í „Trúirðu því nú að hundingjarnir séu dauðir“ má heyra galið geltið í taugaveikluðum borgarhundum, sem svarað er af röddu, sem ekki mælir mikið skýrara en hundarnir, þó hún sé yfirvegaðri, allt að því blíð í einfeldni sem virðist daðra við sína eigin tegund taugaveiklunar.
The dirty dogs
Því fer ekki fjarri að áheyrendur hljóðaljóðlistarinnar spyrji sig hvað það er sem einkenni hljóðaljóðið – hvað skilur að söng frá ljóði, ljóð frá samræðu, hljóð frá ljóði, hljóðfæri frá hljóðaljóði? Svarið er í raun flókið og einfalt – hljóðaljóðið, eins og önnur ljóð, er það sem með einhverjum anga sínum bendir á tungumálið, gerir tungumálið að einum aðalfókuspunkti sínum. En þar með er ekki sagt að hljóðaljóðið geti ekki verið fleira – söngur getur vissulega verið hljóðaljóð, og samræða getur það líka, rétt eins og myndverk getur líka verið ljóð. Það er jafnvel í myndinni að hljóðfæri geti bent á tungumálið með þeim hætti að kalla megi hljóðljóðlist – þó venjulegur hljóðfæraleikur falli ekki undir þann hatt.
Áður en við leggjumst í dvala næstu vikuna skulum við hlusta á kanadíska hljóðaljóðskáldið bp Nichol flytja verk sitt The Alphabet Game, eða stafrófsleikinn. Nichol má nefna höfund samtímahljóðaljóða, og hafði hann gríðarleg áhrif meðan hann lifði og fram á okkar dag, en hann lést langt fyrir aldur fram, 44 ára árið 1988. Nichol var einnig meðlimur í hljóðaljóðsveitinni The Four Horsemen, ásamt þeim Rafael Barreto-Rivera, Paul Dutton og Steve McCaffery, en þeim síðastnefnda fáum við að kynnast betur síðar.
Í stafrófsleiknum leikur Nichol sér með upptökutækni, söng og konsept stafrófsins, eins og sá maður getur einn sem elskar tungumálið af allri sinni sál.
Alphabet Game
Kallfæri – 2. þáttur – Framburður hljóðaljóða
Kallfæri – 2. þáttur
Kallfæri – 3. þáttur – Pólitísk hljóðaljóð
Kallfæri – 3. þáttur
Kallfæri – 4. þáttur – Nýrri hljóðaljóð
Kallfæri – 4. þáttur
Períóðulist
Fyrir fáeinum árum síðan kallaði ég Hermann Stefánsson períóðulistamann, í ritdómi um bókina Borg í þoku. Sjálfsagt var það aðallega meint í galsa, stríðni jafnvel – ég var sjálfsagt annað hvort að erta hann, egna hann eða hefna mín eftir að hann egndi, erti eða stríddi mér. Ef ég man þá tíð ekki kolvitlaust, þá var þetta oft einhvern veginn þannig. Ástæðan fyrir uppnefningunni var tvöföld – annars vegar var lúta framarlega í bókinni, sem ég hnaut um, og ég fór svo að skoða nafnorð bókarinnar í ljósi mögulegs ‘ytri tíma’ bókarinnar eftir að Hermann lýsti því yfir í viðtali að enginn samtími væri í bókinni. Þá fann ég sterkt fyrir því að hún gerðist ‘á tíma’ – ekki ‘utan tíma’, heldur á einhverjum tilteknum tíma.
Ég endurtek þessa sögu nú vegna þess að ég ætla að nota hugtakið ‘períóðulistamaður’ aftur – en nú í annarri merkingu sem á ekki endilega mjög vel við um ljóð Hermanns. Períóðulist Hermanns snerist um að framkvæma ákveðinn tíma – setja hann á svið með vilja og meðvitund. Það má vera að hún eigi eitthvert heimili í því sem hér fer á eftir, en hún er ekki þar sérstaklega til umræðu.
Períóðulist er heiti sem mér er tamt að nota um það fólk sem klæðir sig upp í sokkabuxur og spilar á lútu í kastölum í Evrópu. Þegar ég var lítill á Benidorm með foreldrum mínum fórum við á burtreiðarsýningar þar sem riddarar börðust – á söfnum er stundum fólk ‘í karakter’ víkinga eða kúreka. Yfirleitt er þetta performatív list, frekar en kreatív – þ.e. framkoma en ekki tilbúningur (fyrir utan spuna). Mér gengur eitthvað illa að gúggla þessu hins vegar – períóðulist – sjálfsagt hef ég þetta ekki alveg upp úr sjálfum mér, en mögulega að hálfu. Það er vonandi ekki mikið verra fyrir það.
Hin kreatíva períóðulist er þá þessi: að velja sér tímabil og apa það upp. Sem dæmi – ég inspírerast af Wordsworth sem unglingur, ákveð að gerast ljóðskáld og vel mér hið besta allra hugsanlegra tóla, hina rómantísku ballöðu, og kem mér að verki. Auðvitað eru dæmi sem þessi ekki sérlega algeng – raunar nógu óalgeng og geggjuð til að vera aðdáunarverð framkvæmdar. Mér dettur í hug Sölvi Björn – sem komst algerlega upp með það í Gleðileiknum. Þetta er það sem heitir Nýformalismi – og er jafnan leiðinda hreyfing.
En það er hægt að finna ‘tímabil’ víðar í íslenskri ljóðlist – sem og eftirhermutilhneigingar. Jafnan er samt hermt eftir nýliðnari tímum – tímum eftir ‘formbrot’ – og kannski er ‘hið alþjóðlega fríljóð’ þar algengast.
Á dögunum fjallaði Fréttablaðið um afar jákvæða umsögn danska rýnisins Thomas Bredsdorff um Blysfarir Sigurbjargar Þrastardóttur í Politiken:
Hann segir ljóðheim hennar í verkinu einangraðan og telur hana eiga meira sammerkt með bandarískum kvenskáldum en kynsystrum hennar á skáldabekk Norðurlanda.
Þetta er ekki alveg nákvæmt hjá blaðamanni – það sem Bredsdorff sagði, og má lesa hér, var þetta:
Hendes digte ligner ikke den gennemsnitlige skandinaviske poesi for øjeblikket, snarere amerikanske rolledigte af folk som Robert Lowell og Sylvia Plath.
Sem sagt: Ljóð Sigurbjargar minna ekki á skandinavíska ljóðlist samtímans, heldur frekar hin amerísku hlutverkaljóð skálda á borð við Robert Lowell og Sylviu Plath.
Ég þekki ekki danska hugtakið ‘rolledigte’ – það er kannski undarleg þýðing á konfessjónalisma þeim sem Sylvia Plath og Robert Lowell eru fulltrúar fyrir – en líklega ekki, líklega á það heldur við um eitthvað á borð við það sem Sigurbjörg gerir í Blysförum, að yrkja sér ljóðmælanda sem er á áberandi hátt ekki sjálft skáldið. Hafi ekki eitthvað stórkostlegt farið framhjá mér er ekki jafn sterkur sjálfsævisöguþráður í verki Sigurbjargar og jafnan hjá Plath og Lowell – en þá líka spurning hvort Bredsdorff hafi haldið að hér væri Sigurbjörg einfaldlega að segja sögu lífs síns? Sem er auðvitað ekkert ómögulegt – sjálfsagt veit enginn neitt um líf Sigurbjargar á ritstjórn Politiken, fyrren nú að hún var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. En svo má vera að rolledigte þýði eitthvað allt annað.
Þegar þessi jákvæði samanburður er hafður í huga – þ.e. Plath og Lowell vs. skandinavísk samtímaskáld (ég les þetta sem skot á skandinavísk samtímaskáld) – þá verður auðvitað að horfa til þess að Thomas Bredsdorff er, að ég held, löggilt gamalmenni – fimm árum yngri en Sylvia Plath. Burtséð frá því er ekki horft til kvenskálda sérstaklega, og vandséð hvernig blaðamaður fékk það út.
Fyrir fáeinum árum var þetta á hinn veginn – þá birtist maður sem gekk undir heitinu ‘dónalegi daninn’ og sagði bókina Hvar sem ég verð, eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur, alls ekki samkeppnishæfa og ekki væri hægt að búast við að smáþjóðirnar fylgdu stórþjóðunum eftir:
For at deltage i London eller Boston Marathon skal man, har jeg ladet mig fortælle, kunne stille med en hidtil bedste tid på under tre timer. Dermed har arrangørerne på forhånd siet kondiløbere fra. Hvor det gælder litterær kvalitet, findes der ingen lignende objektiv målestok.
Derfor må en grønlandsk og en islandsk poet ved dette års afstemning om Nordisk Råds Litteraturpris finde sig i at ligge som to små røde rejer på et kæmpestort fad. Ved at indstille dem har man muligvis gjort dem en isbjørnetjeneste.
Meira hér.
Þetta er kannski hin hliðin á sama teningnum. Mér hefði raunar fyrr dottið í hug að segja Hvar sem ég verð minna á Sylviu Plath en Blysfarir – þær Sylvia og Ingibjörg eru mun persónulegri en Sigurbjörg, sem fer dramatískari – í merkingunni ‘skapar persónur’ – leið að frásögu sinni.
En mig rekur af leið, eins og jafnan.
Ég hef síðustu daga furðað mig á því hversu annt íslenskum módernistum var um þögnina, samanborið við marga erlenda kollega þeirra. Gunnar Björling orti dadaísk læti – hristi ljóðið svo það nötraði – Gertrude Stein gerði kyrjandi orðleikjakeðjur – Marinetti orti fyrstu flugskeytin – já, Laxness skrifaði skríkjandi kynfæri unglinga í skóginum og Jóhann Sigurjónsson orti gargandi sorg stórborgarinnar, en annars er þetta að megninu til þögn hér á landi. Frá ‘færri og færri orðum’ Sigfúsar Daðasonar til ‘heimtufrekju orðanna’ eftir Jóhann Hjálmarsson og jafnvel enn nær okkur í tíma.
Þetta er allt hingað og þangað. Biðst forláts.
Eins og ég minntist á í upphafi sagði Hermann Stefánsson engan samtíma vera í Borg í þoku. Hún sker sig ekki úr íslenskri ljóðaflóru fyrir þær sakir einar – en hún gerir það fyrir að vera meðvituð um samtímaleysi sitt. Ljóðlistin á Íslandi, og víðar, hefur nefnilega smám saman verið að breytast í eins konar períóðulist – og þá á ég ekki við að hún innihaldi gömul tákn, eins og lútur, heldur að hún bregðist ekki við samtíma sínum í kjarna sínum, í efnistökum sínum, formi, eðli. Það sem ég dáist mest að í fari framúrstefnuhreyfinga 20. aldarinnar er kannski ekki nein ‘framúrstefna’ heldur einmitt tilraun til nútíðar, tilraun til ‘módernisma’ í grunnmerkingu þess hugtaks – tilraun sem er mun ákafari og betur heppnuð en hjá mörgum þeim sem gengust við hinum opnari stimpli módernismans.
Stórborgin var meðtekin í íslenska ljóðlist – ekki sem stórborg, ekki sem bílar og stórhýsi og alkahólismi og slagsmál og mengun og slys og langar vegalengdir og umferðateppur – heldur sem sveitasæla Fögru veraldar. Sveitaskáldin mærðu sveitina og eftir að þau fluttu á borgina urðu þau borgarskáld sem mærðu borgina. Svífur yfir Esjunni sólroðið ský, og það allt saman. Períóðulist – við þurfum kannski að búa í þessari borg, en við getum í það minnsta látið eins og hún sé í sokkabuxum með lútu. Lorca lýsti New York sem helvíti á jörð – bókstaflega – Reykjavík er svo sem ekki New York. En það er engu að síður samtími í Reykjavík og hefur verið lengi þó ekki hafi hans verið sérlega vart í reykvískum ljóðum.
Og enn síðar er lítil sem engin tilraun gerð til að mæta nýjum textaveruleika – textaveruleika sem er svo róttækt annar en hann var fyrir 15 árum síðan að líklega hefur ekki annað eins sést í mannkynssögunni, meira að segja prentverkið tók sér góðan tíma til að þróast og berast um veröldina.
Auðvitað er ósanngirni í þessu – síðustu 30 árin hefur verið e-konar samtími í reykvískum ljóðum. Það er – symbólin – hvort sem það eru tennur sem minna á raðir af strætisvögnum eða kórónamenn með ómegaúr. En það skortir enn á grunngerðina – viljann til að vera af samtíma sínum í eðli og formi. Kannski helgast þetta enn sem komið er af þeim íslenska ósið að láta af ljóðagerð þegar maður er loks að ná tökum á henni – og snúa sér að sagnagerð. Eða einfaldlega gera ljóðagerð sína að sagnagerð – örsögum, bútasaumssögum, dreymandi myndmálssögum. Þegar skáldin fullorðnast og ná tökum á ‘eigin stíl’ eða fá fullgerðari (en þó aldrei fullgerðar) hugmyndir um ‘ljóðlist’ eru þau horfin eitthvert annað.
Hinn ósiðurinn er þessi: þeir fáu sem lifa það af að verða fertugir og ennþá ljóðskáld fá jafnan undarlega kanóníseraðan status þar sem a) þorra fólks gæti ekki staðið meira á sama um þá og b) bókmenntafólk dásamar þá í slíkan hástert við útgáfu hverrar bókar að þessir ‘grand old men of letters’ (sem eru nú ekki endilega alltaf hundgamlir, en yfirleitt samt karlmenn) drabbast niður í eigin þægilegheitum og verða loks fyllilega óáhugaverðir aflestrar – því enginn rithöfundur er verri en sá sem heldur að hann viti með fullri vissu hvað hann er að gera, sá sem telur sig varla geta tekið feilspor og ef svo illa vildi til þá kynni hann svo sannarlega að taka eftir því og þurrka það út fyrir útgáfu. Og það er ægilegur greiði að gera skáldi, að sannfæra hann eða hana um slíkt.
Örlög flestra ljóðskálda – íslenskra og erlendra – er að verða fórnarlömb eins af þrennu a) afskiptaleysis b) kanóníseringar c) mýtugerðar.
a) Skáld gleymast. b) Skáld fá konungsstatus (og drottningarstatus í seinni tíð). c) Skáld fá mýtustatus.
Þau sem fá konungsstatus falla jafnan fyrir eigin hégóma – fyrir hugmyndinni um að þau séu jafn frábær og menningardálkarnir telja þeim trú um. Þessi skáld eru jafnan aflífuð af þeim sem elska þau mest. Það gildir svo einnig um þau sem fá mýtustatus – nema þar tekur völdin mýtan um skáldið sjálft, um líf þess, frekar en endilega frábæran skáldskap þeirra – sbr. til dæmis Ginsberg eða Sylvia Plath eða jafnvel sjálfur Rimbaud – sem sjaldan eru rædd án þess að líf þeirra séu dregin inn í umræðuna líka, og oftast eru rædd einvörðungu út frá lífshlaupi sínu.
Ég er ekki viss um að nokkur lifi af.
En mig rekur aftur af leið.
Við hermum eftir mýtunum – lítum í kringum okkur og rímum okkur við eitthvað úr fortíðinni. Wordsworth. Ezra Pound. Sylviu Plath. Mersey Sound-skáldin. Tomas Tranströmer. Keats. Eliot og Eluard. Pessoa.
Ég er ekki að undanskilja sjálfan mig nóta bene. En ég tel mér til afbötunar að ég er mér meðvitaður um þetta – eins og kannski fleiri. Ég á heldur ekki við að það verði að slíta á hefðina, slíta á taugina – ég held það sé margt að læra af öllum frá Wordsworth til Emily Dickinson til Rimbaud til Marinetti til Stein til Björling til Ginsberg til bp Nichol til a. rawlings, konsepsúal-skálda og flarfs. Og maður lærir ekki endilega heldur minna af þeim sem maður fílar alls ekki.
Það sem á við er kannski þetta: Það er líka hægt að spila á lútu án þess að klæða sig í sokkabuxur. Og það er m.a.s. hægt að klæða sig í sokkabuxur, spila á lútu – og samt vera algerlega af samtíma sínum. Og er kannski spurning um meðvitund – að mann dreymi ekki um að verða Pessoa eða Pound, heldur hafi metnað til svipaðrar merkingar, metnað til að vera nýr Pound frekar en sjálfur Pound. Eða eitthvað. Að unnið sé með og úr áhrifavöldum, frekar en þeir einfaldlega hermdir upp – að þessi ekkisens hermilist ljóðsins sem er skrifað inn í hugmynd skáldsins um ljóð frekar en sem sjálfstætt (og þarft) verk, heyri sögunni til.
a. rawlings
tilgreind komma, spurningarmerki? krufin komma? skjóta inn spurningarmerki, komma?
…………….Þröngvið penna í gegnum líkama textans.
…………….Þýðið texta samtímis til að hlykkja merkinguna. Pennið orð á rúmgafl.
…………….Pennið anagröm á spegil.
…………….Nælið orð nærri sérhljóðum til að forða frá tárum. Leggið pappír yfir orð
…………….svo liðist meðan þornar. Horfið á texta afliða húm.
…………….Setjið greinarmerki undir lampa til að auka heilindi.
komma, spurningarmerki lífsýni? komma krufning? spurningarmerki, komma þverskurður?
a. rawlings
a. rawlings
tilgreind komma, spurningarmerki? krufin komma? skjóta inn spurningarmerki, komma?
……………..Safnið, flokkið og rammið texta.
……………..Hvernig sofnar texti?
……………..Klípið merkingu milli morfems og fónems.
……………..Hvernig étur textinn sjálfan sig?
……………..Rennið merkingunni í umslag; geymið í kassa með merkingareyði.
komma, spurningarmerki lífsýni? komma krufning? spurningarmerki, komma þverskurður?
a. rawlings
næsta->