Ideósynkratísk nálgun á smámuni í stuttu broti í kafla í gamalli bók

By Eiríkur Örn

- um upphafsorð ‘Mauvais sang’ úr ‘Une saison en enfer’ eftir Arthur Rimbaud í sex þýðingum I Þegar til stendur að meta hvort þýðingarverk hafi „tekist“ eru mælikvarðarnir oftar en ekki dálítið abstrakt og óljósir: Flæðir textinn, nær hann anda upprunalegu útgáfunnar, er þetta jafn góð póesía á upprunamáli og markmáli? Þegar skilningur manns... »

Teemu Manninen

By Eiríkur Örn

Að verða töframaður; eða, óður til Aleister Crowley, fjallamanns frá Bretlandseyjum I Bara þó einhver segi eitthvað um sem þið eruð ekki sammála gerir það hann ekki að hálfvita. Mögulega býr hann yfir reynslu sem þið búið ekki yfir og kannski er sýn hans af því taginu sem mjög er mikilvæg og giska oft... »

Teemu Manninen

By Eiríkur Örn

Í tilefni lesturs Ljóðsins eftir Auden og Andsvars Randall Jarrell, sem lenti fyrir bíl 14. október, 1965 Kráka situr á gálganum í hálsmáli Golgötu á málverkinu eftir öldunginn Pieter Bruegel. Þessi til-og-frá ferðalög mannkyns eru eitthvað í bakgrunni þess sem gerist, eins og portrett af greifa hvers nafnbót féll í skaut föðurbróður en forgrunnurinn... »

Kurt Schwitters

By Eiríkur Örn

Anna Blume Ó þú, sem elskuð ert af mínum 27 skilningarvitum, ég elska þér! Þú þína þig þér, ég þér, þú mér, – - – – Við? Þetta á annars (í framhjáhlaupi) ekki að vera hér. Hver ert þú, ótalda kvenpersóna? Þú ert, ert þú? Fólkið sagði að þú værir. Leyfum því segja, það... »

Sölvi og Rimbaud (húrra, húrra, húrra!)

By Eiríkur Örn

Sölvi Björn er tilnefndur til íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir Árstíð í helvíti eftir Rimbaud – og er það vel verðskuldað. Bókin er einfaldlega fjári vel þýdd, og ekki auðvelt verk – og mun hvorutveggja tíundað í grein sem birtist í Tregawöttunum á næstu dögum. Ég átti ekki sæti í dómnefnd, þó ég hafi unnið í... »

Oscar Rossi

By Eiríkur Örn

4 ljóð úr Bréf til lögreglunnar Kæri herra lögreglumeistari Ég sný mér til yðar þar sem undirsátar yðar hafa í mínum skilningi ítrekað farið illa með mig. Ég vísa til runu atburða sem að mínu mati voru í hæsta máta undarlegir og óskemmtilegir og mun ég reyna að segja frá þeim svo nákvæmlega og... »

Bill Holm er látinn

By Eiríkur Örn

Að sleppa taki á því sem ekki er hægt að halda aftur af Látum þá dauðu fara núna, reipið í vatninu, styrktarokinn á klettinum gagnast þeim ekkert lengur. Látum þá falla, sökkva, fara burt, verða ósýnilega, einsog þeir reyndu svo mikið til í dauða sínum. Við þurftum að angra þá með því sem við... »

Gertrude Stein

By Eiríkur Örn

Ef ég segði honum Frágengið portrett af Picasso ….Ef ég segði honum kynni hann við það. Kynni hann við það ef ég segði honum. ….Kynni hann við það kynni Napóleón kynni Napóleón kynni kynni hann við það. ….Ef Napóleón ef ég segði honum ef ég segði honum ef Napóleón. Kynni hann við það ef... »

Mette Moestrup

By Eiríkur Örn

Ást og stærðfræði ……………………………………..tileinkað Evu / Nam Sook Ég drakk jasmínte janúarmorgun árið 2004. Ég var ringluð og 34 vetra. Mér fannst ég tala í tölum. Rödd innra með mér reyndi að muna u.þ.b. 500 ára gamalt, kóreskt ástarljóð eftir Hwang Chin-I (1506-1544), en önnur reyndi að skilja § 1,1 í Lögum um breytingar... »

Anne Boyer

By Eiríkur Örn

Ástir hinna glaðlyndu verkamanna Í upphafi hefjum við leikinn með Woody og hugsjónakossi hans. Ég get ekki lagt frá mér Síberíu en get ekki sleppt að sleppa af henni hendinni. Varir hans voru hugleiðingar öreiganna í maí, orrusta sýklanna, þessi venjubundni ótti við nýbökuð brúðhjón, umbóta- eða byltingarsinnuð. Bjargað frá drukknun, settist ég klofvega... »