Mahathir Múhameð (Pantún)
.
Mahathir Múhameð á alla mjólkurmiðana í Malasíu,
munúðsamlegt meinhorn muldrandi manljóð í morgunsárið
makráður og í meðallagi mannskæður mektarmaður.
Margt mun Mahathir Múhemað muna úr móðurlífi.
Munúðsamlegt meinhorn muldrandi manljóð í morgunsárið,
um megrunarkúra, magaminnkun og meðalhóf,
margt mun Mahathir Múhameð muna úr móðurlífi,
úr myrkrinu meðhöndlandi masúrka og maístjörnur.
Um megrunarkúra, magaminnkun og meðalhóf
mælir Mahathir Múhameð mimrandi margraddað,
úr myrkrinu meðhöndlandi masúrka og maístjörnur
miskunnarlaust í miðju mótstyrmi af marglæti.
Mælir nú Mahathir Múhameð mimrandi margraddað:
„Múhameð er mjallhvítur í monstrans, mannsbítur með manséttur
miskunnarlaus í miðju mótstyrmi af marglæti
meiðyrðamundari mardallar mestmegnis messubókarlaus.“
Mahathir Múhameð er mjallhvítur í monstrans, mannsbítur með manséttur
og mumpaskælur um munninn, mélkisulegur og maðkétinn
meiðyrðamundari mardallar mestmegnis messubókarlaus
meðan múmínmamma miðar migu á mánabrúður.
Með mumpaskælur um munninn, mélkisulegur og maðkétinn,
masar Múhemað mynduglega um mýgrút módröfnóttra mótmælenda
meðan múmínmamma miðar migu á mánabrúður
í merkantilískum móð, meðfærileg með múður að morgni mánudags.
Masar Múhameð mynduglega um mýgrút módröfnóttra mótmælenda
munúðsamlegt meinhorn muldrandi manljóð í morgunsárið
í merkantilískum móð, meðfærilegur með múður að morgni mánudags,
Mahathir Múhameð á alla mjólkurmiðana í Malasíu.